www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ef ég má benda á hið augljósa..
Miðvikudagur, 28. janúar 2009

Við þurfum ekki þrjá Seðlabankastjóra. Höfum aldrei þurft þrjá.

Það sem hinsvegar vantar hér, og hefur vantað lengi, er daggæsla fyrir afdankaða pólitíkusa sem þrjást af stjórnunaraðskilnaðarkvíðaröskun.

Væri Kaupþingshúsi ekki upplagt fyrir þannig starfsemi?

Sýnist það vera notað undir skipulagða glæpastarfsemi í dag og mér finnst þetta full íburðamikið hús til að nota sem fangelsi. Ef þú mættir ráða, hvaða ríkisstofnun myndir þú flytja í Kaupþingshúsið?

Við þurfum nefnilega ekki þessa þrjá banka heldur.


| anna | 13:16 |
comments

Mjög góður punktur ... punktar.

Húsið gæti hentað undir skóla - t.d. málaskóla – veit ekki hvort það er nógu stórt fyrir Listaháskólann.

En við þurfum örugglega á allskyns endurhæfingarstöðvum að halda næstu árin.

Nr. 1 | posted by: Líba | 28.01.2009 | 15:46:49 | [+] |

Virkar vatn ekki róandi á fólk? Mætti ekki skella geðdeild þarna inn?

Þeir eru með stóra lóð þarna líka, væri hægt að rækta upp almenningsgarð og svona. Hafa þetta huggulegt.

Nr. 2 | posted by: anna | 28.01.2009 | 16:19:14 | [+] |

Það er sennilega hægt að opna fleiri glugga á fangelsum landsins heldur en Seðlabankahúsinu. Besti bankinn þessa dagana er sennilega koddinn og niðurgreiðsla á lánum.

Er að verða til alvöru andspyrnuhreyfing á Íslandi?

Nr. 3 | posted by: Árni | 28.01.2009 | 19:17:20 | [+] |

ps.

Hefur einhver séð seðla banka?

Nr. 4 | posted by: Árni | 28.01.2009 | 19:23:55 | [+] |

Skilgreindu "andspyrnuhreyfing".

Ég hef aldrei séð seðla banka, en ég hef reyndar ekki verið að skimast mikið eftir því.

Nr. 5 | posted by: anna | 28.01.2009 | 20:30:16 | [+] |

Hvort sé tími til að mynda mótafl (framboð) við hin fimm 'usual suspects', flokkakerfið?

Nr. 6 | posted by: Árni | 28.01.2009 | 20:45:15 | [+] |

Hvað finnst þér?

Nr. 7 | posted by: anna | 28.01.2009 | 21:12:52 | [+] |

Finnst það á ákveðinn hátt ekki fair play ef keyra á kosningar í gegn innan nokkurra vikna - það gerir öðrum framboðum ekki undirbúningurinn auðveldur.

Nr. 8 | posted by: Árni | 28.01.2009 | 22:13:37 | [+] |

Síðan hvenær hafa þessar flokkamaskínur boðið almenningi upp á fair play?

Merkilegt samt, því það er það eina sem við erum að fara fram á.

Nr. 9 | posted by: anna | 28.01.2009 | 22:55:10 | [+] |

Við þurfum reyndar ekki þessa þrjá banka og allan þennann fjölda af sparisjóðum. En að sama skapi þurfum við ekki atvinnuleysið aukalega sem skapast að því að loka 2-3 ,,stofnunum" í viðbót. ´
Ég styð því frekar að halda þessum fjölda af bönkum og sparisjóðum og deila litlu yfir á marga, frekar en miklu yfir á fáa.

Allt fyrir atvinnu.

Nr. 10 | posted by: Rúnar Ágúst | 30.01.2009 | 4:02:29 | [+] |

Ég er viss um að andspyrnuhreyfing verður til og getur alveg náð slatta fylgi. Kvennaframboð var t.d. tilkynnt í nótt skv. RÚV. Ekki ætla ég að kjósa einn af gömlu flokkunum.

Nr. 11 | posted by: Kristín | 30.01.2009 | 8:45:04 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web