Sprengikraftur vopnsins er slíkur að fólk tætist í sundur, en bónus planið er að inní vopninu er efni (tungsten) sem talið er valda krabbameini. Svo ef þú lifir af, muntu fá krabbamein og deyja. Hægar.
Skv. Wikipedia hafa Bandaríkjamenn verið að þróa þetta vopn frá árinu 2000.
Loka stig í þróun á lyfjum er að prófa lyfið á fólki.
Það er sennilega loka stig í vopnaþróun líka.
Ég velti fyrir mér hvort þetta er vinagreiði eða hvort Ísraelski herinn taki þóknun fyrir að prófa þetta á fólki.
Það getur nú tæplega verið, w er ekki íslenskur stafur. Það hlýtur að vera til betra íslenskt nafn, svona eins og þrýstiloftsflugvél eða sjálfrennireiðartogleðurshringur.
Anna,
Veistu, miðað við lýsinguna fellur virkni þessa vopns mjög mikið við fjarlægð frá miðpunkti sprengingar. Það má því segja að ef maður á annað borð verður fyrir áhrifum þessa vopns þá er krabbamein frekar neðarlega á áhyggjulistanum. Hvað er eiginlega "pointið" hér, að vopn séu almenn til þess fallin að meiða fólk eða að það séu sum vopn sem meiða meir en siðlegt getur talist ?
Nr. 3 | posted by: Depeche |
6.01.2009 | 21:28:03 | [+] |
Þeir sem verða fyrir vopninu deyja, klárlega. En þeir sem fá í sig sprengjuflísar og gætu lifað af fá líka í sig fínan salla sem veldur krabbameini.
Mér finnst hugsunin á bak við þetta vopn sjúk.
Nr. 4 | posted by: anna |
6.01.2009 | 22:11:38 | [+] |
Hugsunin á bak við öll árasárvopn er sjúk. Þess vegna þykjast menn alltaf verjast og þurfa því ný "varnarvopn".
Vopn sem veldur krabbameini getur seint talist varnarvopn.
Nr. 6 | posted by: anna |
7.01.2009 | 11:00:42 | [+] |
Neibb, en þeir eru að "verjast" eldflaugaárásum Hamas. Svo segja amk talsmenn þeirra. Allur viðbúnaður þeirra miðast líka við að "verja" landið. Þeir eru alltaf að verjast.