www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bál
Þriðjudagur, 20. janúar 2009

Var að koma heim af Austurvelli.

Hitti þjóðina.


| anna | 21:08 |
comments

Hvaða þjóð hittir þú ?
Ég hitti nefnilega þjóð í dag, hún var ekki niðri á Austurvelli. Kannski hefur það verið einhver önnur þjóð ...

Nr. 1 | posted by: Hugz | 20.01.2009 | 21:12:43 | [+] |

Láttu nú ekki svona Geir.

Nr. 2 | posted by: anna | 20.01.2009 | 21:13:52 | [+] |

Það verður gaman að sjá Harde-Geir í fjölmiðlum í fyrramálið, haldandi því fram að ríkisstjórnin ætli ekki að láta undan þrýstingi mótmælenda.

Mér sýnist annars að skilaboðin séu skýr, og að það sé orðin ansi mikin samstaða um að þingið, FME og Seðlabankinn eigi að laxera.

Það sem skúffar -- en kannski er það kostur, veit það ekki -- er að það hefur enn ekki fæðst uppreisnarforningi, sem etv. getur tekið að sér forystu í uppbyggingu landsins.

Kannski að Ísland sé þar sem Pólland var árið 1980?

"The growing debt burden became insupportable in the late 1970s and economic growth had become negative by 1979.”

"The Gdańsk Agreement is very important to the politics of Poland because the strikes exposed the corruption and negligence within the state’s leadership. In recognizing individual rights, such as the freedom of expression, the government is opened for the creation of civil societies. "

http://en.wikipedia.org/wiki/Gda%C5%84sk_Agreement

Er næsta skrefið ekki að búa til 15-20 kröfur á hendur stjórnvöldum og semja?

Nr. 3 | posted by: Outlaw | 20.01.2009 | 22:50:30 | [+] |

Við erum byrjuð að vinna í þessu.

Saman.

Nr. 4 | posted by: anna | 20.01.2009 | 22:56:56 | [+] |

Var þar líka, líst vel á þessa þjóð.

Nr. 5 | posted by: HT | 20.01.2009 | 23:47:35 | [+] |

Ég er búinn að hugsa mikið um þetta, og líst eiginlega mjög illa á kosningar.

Ég er ekki viss um að það kerfi sem er gallað eigi að nota nokkurn tíma framar.

Áður en haldið er í kosningar hefði ég vilja sá 10-20 skýr atriði sem núverandi stjórnmálamenn verða að skrifa undir.

Það þarf að gera kröfu um og semja um tam. gagnsæi, opna stjórnsýslu, osfrv. áður en lengra er haldið. Annars heldur sama pukrið áfram í gegnum næstu kosningabaráttu, og við endum uppi með Framsóknarflokkinn sem margfaldan sigurvegara, sem fer beint í ríkisstjórn með leifunum af Samfylkingunni.

Nr. 6 | posted by: Outlaw | 21.01.2009 | 1:07:52 | [+] |

Algjörlega sammála þér. Hvers vegna heldurðu að við séum að þessu: www.lydveldisbyltingin.is

Annars vil ég reyndar e.k. fagstjórn/neyðarstjórn í minnst hálft ár áður en við kjósum. Fólk sem tæklar ástandið og kemur því í viðunnandi farveg. Ég veit ekki um einn stjórnmálamann sem ég treysti til þess.

Nr. 7 | posted by: anna | 21.01.2009 | 1:10:58 | [+] |

En þar er lagt upp til kosninga, ekki satt?

Ég er eiginlega á því að Pólska leiðin sé málið. Setja fram kröfur hér og nú, og skilgreina náið hvernig á að ná þeim fram.

Láta and...... stjórmálamenn skrifa persónulega undir yfirlýsingar og standa við þær (tam. að gefa upp alla hlutabréfaeign sl. 5 ár og til dagsins í dag). Árið 1980 höfðu starfsmenn skipasmíðastöðvarinnar í Gdansk gífurleg áhrif. Með Samstöðu.

Nr. 8 | posted by: Outlaw | 21.01.2009 | 1:16:45 | [+] |

Það væri auðvitað draumastaðan, en til þess þurfum við að semja það sem við viljum, og við erum byrjuð á því.

Mér er nákvæmlega sama hver sér um að breyta reglunum, hvort það er núverandi stjórn eða stjórnin sem tekur við af þeim. Mér er sama, svo lengi sem þessu er breytt.

Nr. 9 | posted by: anna | 21.01.2009 | 1:21:37 | [+] |

Það sem háir mótmælunum nú er að kröfurnar miða að því að þessir höfðingjar segi af sér, og að það verði boðað til kosninga.

Það hentar orðið flestum flokkum að gera það, og á sama tíma myndu þeir ekki skuldbinda sig til að gera eitt eða neitt.

Ég vil sjá skuldbinginar -- ekki kosningaloforð -- áður en verður svo mikið sem hugsað um kosningar.

Nr. 10 | posted by: Outlaw | 21.01.2009 | 1:27:46 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web