www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á meðan ég man
Mánudagur, 05. janúar 2009

Margir tala núna um "Nýja Ísland" og tengja það við einhverja endurreisn.

Mér finnst gróðærið vera "Nýja Ísland" og að Ísland, "gamla Ísland" sé landið mitt sem við fundum þarna í rústunum þegar þetta Nýja Ísland hrundi.

Og mér finnst gott að gamla Ísland var þarna með gildi sem flestir voru búnir að gleyma. Annars hefðum við ekkert til að byggja á.

Kannski á ég bara eftir að venjast þessu.

Eitt veit ég. Daginn sem við förum að kalla Nýja Ísland "NÍ" veit ég að við erum komin á villigötur aftur.


| anna | 20:13 |
comments

Mér finnst þetta nýja íslandstal líka óviðkunnanlegt, og þá út af bókinni hans Huxleys, Brave New World... það var ekki glæsilegur "nýr" heimur.

En mikið hjartanlega er ég sammála þér.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 5.01.2009 | 21:29:36 | [+] |

Mikið vildi ég að ég hefði skrifað þetta en ekki þú!

Nr. 2 | posted by: Pétur G | 5.01.2009 | 23:21:49 | [+] |

Viltu hætta að stela hugmyndum frá mér!

Sumsé, eins og talað úr mínu hjarta. Vil bara fá gamla góða Ísland aftur. Helst með Andrés Björnsson aftur sem útvarpsstjóra og Flosa sem umsjónarmann áramótaskaupsins. Fresca og Sinalco sem tyllidagagos.

En það er víst ekki á allt kosið.

Nr. 3 | posted by: Daníel | 5.01.2009 | 23:54:34 | [+] |

vá hvað ég er sammála!

Nr. 4 | posted by: hildigunnur | 6.01.2009 | 7:50:38 | [+] |

Tek undir þetta og þakka fyrir síðast.

Nr. 5 | posted by: Kristín | 6.01.2009 | 13:26:13 | [+] |

NÍ -snilld. Og hagkerfið heitir þá NI group.

Nr. 6 | posted by: Eva | 6.01.2009 | 23:49:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web