www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Á dauða mínum átti ég von..
Mánudagur, 26. janúar 2009

..en að Ólafur Ragnar kæmi svona sterkur inn.. það sá ég ekki fyrir.

Hann setti fjögur skilyrði fyrir stjórnarmyndun.
Hér er þetta fjórða:

Í fjórða lagi þá tel ég einnig nauðsynlegt, á þessum tímamótum sé hugað að því að skapaður sé farvegur fyrir þá umræðu sem við verðum mjög vör við í okkar þjóðfélagi þar sem fólk varpar fram hugmyndum og kröfum um nýja stjórnskipan, endurskoðun á stjórnarskrá, nýtt lýðveldi, eins og sumir orða það, eða þjóðfélagslegan sáttmála, eins og ég orðaði það í mínu nýársávarpi - hvaða orð sem menn annars velja fyrir þessa hugsun, þá er það alveg greinilegt að ásamt ákvörðunum sem hefðbundnar eru við þau tímamót að stjórn lætur af störfum og ný þarf að taka við þá er greinilegt að það þarf einnig að hugsa að farvegi fyrir þessa lýðræðislegu umræðu þjóðarinnar allrar um með hvaða hætti við viljum skipa okkar lýðveldi og okkar stjórnkerfi til frambúðar í ljósi þeirrar reynslu sem við þekkjum öll hver hefur orðið.
- Ólafur Ragnar Grímsson, RUV 26. janúar, 2009.

Ég bendi á, að farvegurinn er kominn. Fólk er að taka þátt og það hefur skoðanir og mikinn áhuga.

Það eina sem vantar er að ráðamenn lesi tillögurnar, komi jafnvel þarna sjálfir inn með tillögur, leggji okkur til sérfræðikunnáttu til að vinna úr hugmyndunum sem þegar eru komnar - og klára þetta. Það eina sem þarf er vilji.

Stjórnin fallin og þó ég sé ekkert hrifin af því að mynda nýja úr því fólki sem er á þingi núna þá er það sennilega eitthvað sem ég þarf að sætta mig við.

Og að allt öðru. Í dag fékk ég tölvupóst þar sem kom fram að marel.com vefurinn hefur, ástamt fimm öðrum vefjum, verið tilnefndur hjá svef sem besti fyrirtækjavefurinn - sem þýðir að ég tók þátt í að setja saman einn af fimm bestu fyrirtækjavefjum ársins 2008.

Ég get alveg farið sátt að sofa í kvöld, og rúmlega það.


| anna | 19:47 |
comments

Orðið "farvegur" er tískufyrirbæri, heitt loft, vindhögg, ekkert annað en vitni um það, að þeir sem þau nota hafa farið í fótsnytrtingu þar sem boðið er upp á hugmyndafræði um verkefnastjórnun sem er jafn instant og neskaffi.

Nr. 1 | posted by: Árni | 26.01.2009 | 22:37:52 | [+] |

Til að fyrirbyggja misskilning, þá er vísað í tilvísun - stjórnmálamenn eru alltaf að tala um að hitt og þetta sé í eðlilegum farvegi. Er ekki að vísa í linkinn, þvert á móti, styð heilshugar þá hugmynd. Sorry! Þyrfti að geta editerað. clown

Nr. 2 | posted by: Árni | 26.01.2009 | 22:40:54 | [+] |

Ef þú lest nákvæmlega það sem hann sagði, þá er það eiginlega eins og að lesa frumvarp. Það má klippa 90% í burtu án þess að skaða innihaldið, sem myndi rúmast í einni góðri setningu.

Þar sem frumvörp eru opin fyrir túlkunum þá túlka ég þetta mér að sjálfsögðu í hag. wink

Nr. 3 | posted by: anna | 26.01.2009 | 22:41:59 | [+] |

Takk!

Maður þarf að hafa þind á við vindsæng í fullorðinsstærð til að lesa setninguna í einum rykk.

Manni ornar líka alltaf við orðin "...í ljósi þeirrar reynslu...". Þetta er ljóðrænn frasi sem gengur annars undur nafninu "...stórkostlegt klúður".

Nr. 4 | posted by: Árni | 26.01.2009 | 22:55:04 | [+] |

lol já.

En ef hann gerir alvöru úr þessu, þá er það viss yfirbót myndi ég segja. Hann væri maður að meiri í mínum huga. Það eina sem getur í raun varpað einhverjum skugga á stórkostlegt klúður er stórkostleg yfirbót - sem þetta gæti orðið.

Þetta gæti hinsvegar líka verið tæki til að drepa umræðuna með því að gera hana að ríkisumræðu (hring eftir hring og þegar allir eru orðnir ringlaðir fara þeir heim að sofa).

Við látum það náttúrlega ekkert gerast wink

Nr. 5 | posted by: anna | 26.01.2009 | 23:05:22 | [+] |

Til hamingju með tilnefninguna

Nr. 6 | posted by: Agnes | 27.01.2009 | 19:09:44 | [+] |

Takk Agnes! smile

Nr. 7 | posted by: anna | 28.01.2009 | 0:42:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web