www.anna.is
ravings of a lunatic í janúar 2009
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Helvítis, fokking, fokk!
Fimmtudagur, 01. janúar 2009

helvitisfokkingfokk.png


Happy 2009!

always,
anna


| anna | 0:00 | permalink | comments (4) |
Byrjar vel..
Fimmtudagur, 01. janúar 2009

IMG_1595.png


| anna | 3:19 | permalink | comments (4) |
..og aldrei það kemur til baka
Fimmtudagur, 01. janúar 2009

Janúar

Ég byrjaði árið á því að leggja grunn að baráttu um hvaða kerfi átti að nota fyrir vefinn hjá Marel. Þetta tók svo mikla orku að ég framdi morð á blogginu og í lok janúar sat ég í fangelsi. Það var ágætt.

Febrúar

Glitnir vann til verðlauna fyrir glitnir.is sinn og ég var í skýjunum. Baráttan um kerfið hélt áfram hjá Marel. Þetta var orðið þannig að ég vissi að mér væri ekki stætt á að halda áfram hjá Marel ef kerfið sem ég vildi ekki nota yrði fyrir valinu. Ég vissi að þetta yrði frekar tæpt jafnvel þó ég væri með gott kerfi. Með vont kerfi átti ég ekki séns.

Stephen, írski vinur minn, hafði óvænt samband og kom í kjölfarið í helgarferð til Íslands. Þegar hann kom neyddist ég til að kúpla mig algjörlega útúr öllu tengdu vinnu og vá hvað ég hafði gott af því. Þetta var yndisleg helgi - eiginlega eins og að stökkva inní fullmótað samband, án líkamlega hlutans. Mér þykir vænt um Stephen og þó ekkert hafi gerst á milli okkar fannst mér rosalega erfitt þegar hann fór. Það er nefnilega svo furðulegt að þó við höfum aldrei hist áður þá höfum við talað svo mikið saman á msn og í svo mörg ár að við þekkjum hvort annað mjög vel og fúnkerum einhvernvegin saman. Þetta var mjög furðulegt og ég saknaði þess að eiga mann í fyrsta skipti í mjög langan tíma. Við erum í góðu sambandi í dag, þó það muni aldrei verða meira en vinasamband.

Það var erfitt að kúpla sig aftur inní vinnuna eftir þessa helgi því þetta ruglaði mig í ríminu og mig fór að langa í annað líf en það sem ég lifi. Sem betur fer gat ég sökkt mér í vinnu og hætt að hugsa um þetta.

Mars

Ég fékk að nota kerfið sem ég vildi nota og það þýddi að ég þurfti að byrja á að taka vefinn sem var uppi hjá Marel og flytja hann yfir í nýja kerfið - áður en ég gæti farið að búa til nýjan vef frá grunni. Ég hafði tæpar þrjár vikur til að gera þetta en við Dacoda púlluðum það off og gátum opnað á réttum tíma.

Apríl

Fór á fyrirlesturinn hjá Al Gore. Læknirinn sem ég er hjá vildi senda mig í blóðrannsókn vegna þess að mér fannst ég vera svo slöpp alltaf. Skýringin á slappleikanum átti eftir að koma í ljós seinna. Ég vann í keppninni um hver yrði söngvari í bandinu hans Sigsteins.

Maí

Allt og ekkert mánuður. Fór á stefnumót sem leiddu ekkert. Myndatökur. Fór til tannlæknis.

Júní

Í júní fór ég á stefnumót með manni sem mér líkaði strax við. Ég komst að því að hann er ekki bara ljón heldur skriðdrekaljón. Á sama tíma var ég farin að vinna mikið og ákvað í lok mánaðarins að hætta að mæta í vinnuna hjá Marel svo ég gæti sinnt nýja vefnum eins og ég þurfti að gera. Þetta var algjör vendipunktur á verkefninu.

Júlí

Þessi mánuður og næstu tveir fóru mest megnis í vinnu. Ég var búin að segja krökkunum að þegar törnin væri búin myndum við gera eitthvað æðislegt saman og þau sýndu mér ótrúlega þolinmæði og stuðning. Doddi lærði að elda. Ég hitti skriðdrekaljónið ekki oft þar sem hann býr fyrir utan höfuðborgarsvæðið, en ég gat hvort sem er ekki mikið hitt hann því ég sá fram á að ég myndi falla á tíma með vefinn. Ég tók ákvörðun um að hætta að skrifa um Skriðdrekaljónið á síðuna en gerði það of seint. Skriðdrekaljónið er síðasti maðurinn sem ég skrifa um á þessum vettvangi sem er ekki klár uppspuni. Það er bara orðið þreytt að hafa endalaust rangt fyrir sér on record í þessum málum og auk þess held ég að það sé aldrei gott þegar veiðimaður veit nákvæmlega hvað bráðin er að hugsa. For that matter ætti ég sennilega að hætta að skrifa alveg ef ég hitti einhvern mann í framtíðinni sem vekur áhuga minn.

Ágúst

Meiri vinna, veislustjóri, erfitt brúðkaup, single again.

Ég skrifaði langa færslu um þetta brúðkaup sem ég ákvað að birta ekki vegna þess að það var of persónulegt. Því þetta var erfitt kvöld fyrir mig. Mjög erfitt. Frá því ég skildi hefur fólk spurt mig á fjölskyldusamkomum hvort ég ætli ekki að finna mér mann, og það hefur ekki farið í taugarnar á mér því ég var ekki að leita að manni. Í þetta skipti fékk ég aðra spurningu "af hverju ertu alltaf ein Anna?" Ég gat ekki svarað spurningunni.

Tölvan mín dó en Bob Moran hjálpaði mér að setja upp nýja vél. Ég hljóp tíu km í maraþoni Glitnis á verri tíma en í fyrra og án þess að æfa mig mikið.

Ljónið kom og kvaddi mig með faðmlagi áður en hann flutti út. Ég sagði honum ekki að koma aftur, þetta væri sökkvandi sker. Hafði ekki hugmynd um hversu rétt ég hafði fyrir mér.

September

Þessi mánuður var þvæla. Ég gerði ekkert annað en að vinna framanaf og krakkarnir báru í mig mat og kók til að halda mér gangandi. Á tímabili leið mér eins og ég væri að missa vitið og lengsta samfellda seta við tölvuna náði 35 og hálfum klukkutíma í vikunni fyrir opnun. Ég var vansvefta og kvöldið áður en vefurinn var opnaður fékk ég heiftarlega tannpínu. Ég fór að sofa klukkan tvö um nóttina þegar ég þoldi ekki við lengur. Ég var búin að láta vita að ég yrði í vinnunni í þrjá daga eftir opnun og svo myndi ég fara í vikufrí.

Þegar búið var að opna vefinn og ég sá hvað viðbrögðin voru jákvæð brotnaði ég algjörlega niður. Djöfull er ég fegin að ég var ekki niðrí vinnu. Þetta var rosalegt spennufall og ég var orðin örmagna af stressi og álagi. Ég var líka orðin mjög veik, ég vissi það bara ekki. Ég hélt að þetta væri bara stress og svefnleysi. Ég hef aldrei litið jafn illa út.

Daginn sem vefurinn opnaði hringdi ég í tannlækninn sem ákvað að vísa mér til sérfræðings fyrst ég væri komin með tannpínu. Fyrsti bankinn féll.

Október

Bankarnir féllu eins og dauðar flugur og þjóðfélagið var í uppnámi. Marel hélt kúnnapartí og bandið hans Sigsteins spilaði.

15. október fór ég til sérfræðings sem sagði mér ekki góðar fréttir. Ég var orðin verulega veik og komin á bráðabiðlista fyrir aðgerð sem ég hefði þurft "í gær". 21. október fór ég í aðgerðina en þá sá læknirinn að þetta var röng tönn. Hreinsaði út sýkingu úr kinnholunum og sagði mér að sýkingin væri komin útum allt svo það væri ekki skrítið þó ég væri með krónískan höfuðverk og eyrnaverk. Fékk líka sýkingu í hægra augað. Beinið í kjálkanum mikið eytt og ekkert vann á sýkingunni. Ég var orðin hrædd og tannlæknakostnaður farinn að hlaðast upp.

Nóvember

Í nóvember gat ég ekki unnið lengur, ég var búin á því. 11. nóvember fór ég í aðra aðgerð uppá von og óvon, hann sagði að líkurnar á því að þetta væri rétt tönn væru góðar, en hann gat ekki lofað mér að þetta væri rétta tönnin. Ég var dópuð upp fyrir aðgerðina og man ekkert eftir henni en tönnin var rétt. Ég var fljót að finna muninn eftir aðgerðina og var viss um að ég yrði fljót að ná mér, sem ég veit núna að vera heimskulegt. Ónæmiskerfi mitt á þessu stigi var sennilega orðið svo aumt að ég hefði þurft að taka mér góðan tíma í að jafna mig. Alltaf gott að vera vitur eftirá.

22. nóvember fór ég að mótmæla á Austurvelli og á eftir fórum við að mótmæla vinnubrögðum lögreglu við Hlemm. Samskipti mín við lögreglu hafa fram til þessa alltaf verið jákvæð og þess vegna var hálfgert áfall fyrir mig að sjá hvernig þeir leyfa sér að koma fram. Viðbrögð fólks á blogginu sem þekkir mig ekki jók ekki álit mitt á mannskeppnuni almennt. Ég var mjög þakklát fyrir hvernig mér var tekið í vinnunni eftir þessa uppákomu, en þar var mér mætt af miklum skilningi og stuðningi. Það er meira en að segja það að þurfa að horfa uppá barnið sitt viðþolslaust úr kvölum eftir efnavopn sem heilbrigðisstarfsmenn slysadeildar virðast ekki vita hvernig á að meðhöndla, eitthvað sem ég óska engu foreldri að upplifa.

Desember

Snemma í desember var haldið blúskvöld hjá Marel. Ennþá veikindi á heimilinu, nú einkasonurinn. Hann endaði á að fá lugnabólgu. Um miðjan desember fór ég á fund með yfirmanni mínum sem sendi mig í frí og sagði mér að safna krafti og koma fersk í janúar 2009. Ég var verulega þakklát enda engan vegin eðlilegt hvað á þessari fjölskyldu hefur dunið seinnipart árs.

Jólin komu, áramótin. Góður matur, góðar gjafir. Ég varð veik yfir jólin, var sett á lyf á milli jóla og nýárs vegna hættu á lugnabólgu.

Ég fór í jólaskap í smá stund í Nornabúðinni fyrir jól en svo fór jólaskapið og kom ekki aftur. Mér fannst gaman á aðfangadagskvöld en það vantaði þessa hátíðartilfinningu. Hélt að hún myndi kannski skila sér á gamlárskvöld en hún gerði það ekki. Ég horfði á fólk sprengja eins og geðsjúklingar og ég brosti, en ég fann ekkert. Þó það væri mjög gaman í gærkvöldi komst ég aldrei í neitt hátíðarskap og ég upplifði ekki svona sterkt tímamót eins og ég hef gert unfanfarin áramót. Ég er numb.
---

Þetta ár var.. ekki gott. Vissulega kláraði ég það sem ég byrjaði á að gera og var ánægð með útkomuna, eins langt og það nær, en niðursveiflann á eftir var mjög erfið.

Það sem ég lærði er nú samt sem áður hvað það er svakalega mikilvægt að setja sjálfan sig fyrst, ofar öllu. Sjálfan sig og fjölskylduna, og það er lexía sem ég þurfti að læra. Ég hef aldrei upplifað að vera svona veik áður og ég er verulega þakklát fyrir að vera ekki með krónískan sjúkdóm og eiga tækifæri á að verða "ég" aftur. Geri mér grein fyrir að það eru ekki allir svo heppnir. Ég er ennþá með vinnu, þrátt fyrir svona þrálát veikindi. Ef ég sinni sjálfri mér ekki fyrst mun ég hinsvegar ekki gagnast neinu fyrirtæki.

Ég hef enga tilfinningu fyrir því hvernig árið 2009 verður. Það eina sem ég er búin að ákveða er að það verður betra en árið 2008.

Allt þetta þýðir samt ekki að ég eigi engar góðar minningar frá árinu 2008. Ég á yndislegar minningar og ég kynntist yndislegu fólki. Bara núna um daginn kom Skriðdrekaljónið að heimsækja mig og ég held að hann hafi bara gert það til að geta séð svipinn á mér þegar hann keyrði inn á bílaplanið á e.k. skriðdrekabíl á 48 tommu dekkjum. Þegar ég sá bílinn þá fór ég að skellihlæja, því ég vissi um leið að þetta var hann. Ég þurfti að príla uppí bílinn og ég var næstum búin að brjóta á mér lappirnar þegar ég stökk niður aftur.

Ljónið er að koma til landsins í janúar og ætlar að kíkja á mig.

Ég ætla að fylla árið 2009 af góðum minningum líka og fólki sem mér þykir vænt um.

Eitt er alveg á hreinu. Það ætti engum að leiðast árið 2009.
Við lifum á sögulegum tímum.


| anna | 22:33 | permalink | comments (8) |
Ha? Getur það verið?
Laugardagur, 03. janúar 2009

Kosningar í vor komnar í sjónmál!

Ég fagna því.

Það er ekki vegna þess að ég veit nákvæmlega hvað ég ætla að kjósa sem ég fagna. Í dag er nákvæmlega engin flokkur til sem ég kæri mig um að kjósa. Ég fagna vegna þess að með því að boða til kosninga neyðast forsvarsmenn allra flokka að horfast í augu við raunveruleikann, hreinsa út úr flokkunum og stokka algerlega upp - þ.e. ef þeir ætla að eiga einhvern séns í kosningum. Steingrímur J er þarna undanskilin, hann heldur að hann sé "algjörlega meðða" þessa dagana.

Hvort flokkunum tekst að finna eitthvað fólk sem er skárra en það sem fyrir er á eftir að koma í ljós og mun skera úr um hvort stærsti ótti sjálfstæðismanna verði að veruleika: VG stjórn.

Mér finnst eiginlega orðið soldið sætt hvað þeir eru hræddir við VG.

Persónulega held ég að VG gæti ekki kallað jafn mikla ógæfu yfir landið okkar og núverandi stjórnvöld hafa gert - ekki einu sinni þó þeir reyndu það - en ég hef svosem ekki mikið álit á Steingrími J fyrir. Maðurinn gengisfelldi sjálfan sig algjörlega í mínum huga þegar hann hafði ekki dug í sér til að segja "nei" við eftirlaunafrumvarps-ruglinu. Steingrímur J er í raun dæmi um eitthvað sem ég vil bara alls ekki á þing, því hann er búinn að vera þar of lengi til að fúnkera í einhverju sem á að heita "ný hugsun". Sama gildir um Geir, Ingibjörgu Sólrúnu, Þorgerði Katrínu og aaaaaaalla hina.

We can't solve problems by using the same kind of thinking we used when we created them.
-Albert Einstein

Ég vil skúbba út úr ráðuneytunum líka og fá inn nýtt fólk. Grunar að þar séu margir steingerðir í stólunum og hefðu bara gott af því að snúa sér að öðrum málum.

Þess vegna vona ég að flokkarnir pilli nú af hrúðrið af því sem virðist halda saman þessu graftrarkýli sem stjórnkerfið okkar er. Ég vona að fólkið sem kemur í staðinn hafi, þó ekki væri nema dash af hugsjón, dug, þor og heilbrigða skynsemi. Réttlætiskennd. Ég vona líka að þetta fólk sé laust við að vera orðið löngu institutionalized af því að vinna í flokkastarfi eða í einhverri helvítis ríkisstofnun frá fermingu.

Ferskt fólk.

Það verður fróðlegt að sjá hvaða hræðsluáróður verður svo notaður í fjölmiðlum til að styðja stjórnarflokkana í kosningabaráttunni. Úúúúúúú! Þetta verður hræðilegt ef við fáum ekki að stjórna lengur! ÚÚÚÚ af því þó við séum búin að klúðra er hægt að klúðra MEIRA EN VIÐ! ÚÚÚÚ

Jejeje.


| anna | 23:25 | permalink | comments (4) |
Nikon maðurinn
Sunnudagur, 04. janúar 2009

Hann sendi mér póst í kvöld, er kominn heim aftur.

Venjulega er hann brosandi á myndum eða alveg nútral svo ég var forvitin að vita hver tók myndina því mér finnst hann svo pirraður á svipinn og ég vil vita hver/hvað kallar fram þetta lúkk - þar sem það gæti mögulega verið eitthvað sem ég fæ þörf fyrir að gera í framtíðinni. Kannski var hann svona á svipinn þegar ég hitti hann. Það gæti vissulega útskýrt af hverju ég fékk svona sterkt á tilfinninguna að ég ætti eitthvað vantalað við hann.

Vinur hans tók myndina. Ég sagði honum að mér fyndist hann líta út eins og hann væri massa pirraður þarna, útí myndatökumanninn. Hann var impressed, því þessi vinur hans var að gera hann geðveikann og hann var massa pirraður útí hann þegar myndin var tekin. Þetta reyndist skársta myndin af honum úr allri ferðinni því vinurinn tók víst svo arfa slappar myndir.

Hann blístrar þegar honum líður vel, en hann gerir sér enga grein fyrir því sjálfur.

Mér finnst notalegt þegar hann blístrar því þá veit ég að honum líður vel. Alveg eins og mér finnst notalegt þegar vinkona mín sönglar stundum þegar hún eldar.


| anna | 0:19 | permalink | comments (1) |
Shhh!
Sunnudagur, 04. janúar 2009

Ég er ekki frá því að ég heyri í kirkjuklukkum í fjarska.


Sennilega er kirkja hérna einhversstaðar nálægt.

Kannski ég ætti að skoða mig betur um í hverfinu.


| anna | 10:58 | permalink | comments (5) |
Landafræði
Sunnudagur, 04. janúar 2009

Ég legg til að bandaríkjamenn rými Utah fylki og flytji Ísrael þangað. Gefi Palestínu landið sitt aftur og allir geta verið glaðir á ný. Þetta væri frekar auðvelt í framkvæmd, Ísraelar eru vanir menn. Bara ógna fólknu í Utah og taka húsin þeirra og eigur. Drepa þá sem eru með eitthvað múður. Er eitthvað að því?

Utah er miklu stærra landsvæði en Ísrael svo plássleysi væri ekki vandamál fyrr en eftir mörg ár og þá myndu þeir bara taka yfir næstu fylki.

Það verður aldrei samið um frið þar sem Ísrael er í dag. Það hefur aldrei verið neinn grundvöllur fyrir friði. Ekkert frekar en það væri grundvöllur fyrir friði í einbýlishúsi þar sem hverfaráð þremur bæjum norðar ákveður að þriggja manna fjölskylda fái stofuna hjá einhverju fólki sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Fólkið sem bjó í húsinu fyrir fær ekkert um þessa ákvörðun að segja og situr uppi með ókunnuga fjölskyldu í stofunni - sem veður uppi með frekju og yfirgang og fer að fjölga sér. Nú er svo komið að fjölskyldan sem átti húsið skuldlaust í upphafi er komin niður í kjallara í hlekki, matarlaust, rafmagnslaust, mannréttindalaust og þriggja manna fjölskyldan búin að fjölga sér svo mikið að þau þurfa meira pláss, svo þau eru byrjuð að skjóta fólkið í kjallaranum í hausinn til að rýma herbergi fyrir afkvæmi sín.

Mun þetta fólk einhvertíma búa saman í sátt og samlyndi?

Þarf að ræða þetta?

Það þarf ekkert að viðurkenna tilvist eins eða neins, þetta er bara spurning um staðsetningu og landsvæði. Utah er málið. Steinliggur og Ísraelum myndi líða alveg eins og heima hjá sér þarna með hatur í ríkjunum allt í kring.

Ég hugsa að hörðustu viðbrögð sem við sæum í heimnum ef þetta væri framkvæmt, væri "fordæming á ástandinu" og síðan hvenær hafa Ísraelar látið þannig væl brjóta sig niður?

Á eftir yrði þetta hinsvegar innanríkismál Bandaríkjanna sem gerir það ennþá auðveldara fyrir heiminn að ignora fjöldamorð Ísraela fullkomlega.


| anna | 22:01 | permalink | comments (6) |
Sheep Dash
Mánudagur, 05. janúar 2009

Þeir hjá BBC eru alltaf að fá svo skemmtilegar hugmyndir og hér er ein. Tæki til að mæla viðbragðsflýti. Mér finnst þetta helv gaman, en mig grunar að þessi leikur geti gert þig sækó ef þú spilar hann of mikið.

Þetta er besta útkoman sem ég hef fengið so far og sennilega er ég búin að spila allt í allt... í.. 25 mín í dag.

1562.png

Nú verð ég hisnvegar að fara að sofa, ég er að leka niður.

Hvað er þitt high score? Play Sheep Dash


| anna | 20:08 | permalink | comments (2) |
Á meðan ég man
Mánudagur, 05. janúar 2009

Margir tala núna um "Nýja Ísland" og tengja það við einhverja endurreisn.

Mér finnst gróðærið vera "Nýja Ísland" og að Ísland, "gamla Ísland" sé landið mitt sem við fundum þarna í rústunum þegar þetta Nýja Ísland hrundi.

Og mér finnst gott að gamla Ísland var þarna með gildi sem flestir voru búnir að gleyma. Annars hefðum við ekkert til að byggja á.

Kannski á ég bara eftir að venjast þessu.

Eitt veit ég. Daginn sem við förum að kalla Nýja Ísland "NÍ" veit ég að við erum komin á villigötur aftur.


| anna | 20:13 | permalink | comments (6) |
DIME - tilraunavopn notuð á Gaza
Þriðjudagur, 06. janúar 2009

Dense Inert Metal Explosive (DIME)

Sprengikraftur vopnsins er slíkur að fólk tætist í sundur, en bónus planið er að inní vopninu er efni (tungsten) sem talið er valda krabbameini. Svo ef þú lifir af, muntu fá krabbamein og deyja. Hægar.

Skv. Wikipedia hafa Bandaríkjamenn verið að þróa þetta vopn frá árinu 2000.

Loka stig í þróun á lyfjum er að prófa lyfið á fólki.
Það er sennilega loka stig í vopnaþróun líka.

Ég velti fyrir mér hvort þetta er vinagreiði eða hvort Ísraelski herinn taki þóknun fyrir að prófa þetta á fólki.

Er þetta satt?


| anna | 7:32 | permalink | comments (7) |
Gaza
Miðvikudagur, 07. janúar 2009

Áhugavert viðtal við Jón Orm Halldórsson í Víðsjá í gær.


| anna | 8:09 | permalink | comments (0) |
Víti
Miðvikudagur, 07. janúar 2009

Er enginn orðin þreyttur á íslensku vídeóleigu-aðferðinni?

Af hverju gefur fólk sér að vegna þess að það er búið að reisa álver, þá sé ekki hægt að gera neitt annað en það í framtíðinni?

Ég er með tillögu um hvað skal gera til að afla ríkinu tekna og hún er eftirfarandi:

Lögleiðum fjárhættuspil á einum stað á landinu. Setjum á laggirnar spilavíti fyrir ógeðslega ríkt fólk einhversstaðar útí óbyggðum, eða nálægt borginni. Hef ekki myndað mér skoðun um hvar þetta ætti að vera, enda er ég vanhæf til þess, þekki þetta land ekki - en ég hef það fyrir satt að hér sé fallegt land með fullt af fallegu landslagi og ég hef séð myndir sem styrkja þessar sögusagnir.

Huggulegt, sæmilega stórt hótel, ekki ofhlaðið og ekki kalt og gróðæris-ógeðslegt. Klassískt. Ritz thing. Fólkið getur slakað á og farið í nudd á daginn, svoleiðis juðað á sig allskonar íslenskum jurtum og leðju, borðað skyr og lambakjöt, andað að sér hreinu lofti og á kvöldin klæðir það sig upp og spilar fjárhættuspil fyrir obscene upphæðir. Allur ágóði fer í ríkissjóð.

Dílearar - slatti
Barþjónar - nokkrir
Bílstjórar - nokkrir
Þyrluflugmenn - allavega tveir, fólk þarf að komast á milli staða
Gengilbeinur - slatti
Þjónar - slatti
Kokkar - allavega sex
Dyraverðir/öryggisverðir - mökkur
Starfsmenn í móttöku - slatti
Vikapiltar (heitir það ekki það annars?) - slatti
Nuddarar - allavega tíu
Öryggisverðir - mökkur
Eftirlitsmenn - sjá um myndavélar, verða að vera nokkrir
Gjaldkerar - allavega sex (þrír á hverri vakt)
Ræstitæknar - mökkur
Herbergisþernur - slatti
Líkamsræktar.. eitthvað fólk - slatti
o.s.frv.

Ef þetta væri hæfilega stórt þá gæti það skapað fleiri störf en nokkurt álver. Arðvænlegra, umhverfisvænna og skemmtilegra.

Fjárhættuspil blómstrar alltaf í kreppu og heimurinn er going down the toilet. Á sama tíma er fullt af fólki búið að maka krókinn í gróðærinu og á svo mikið af peningum að þó það hefði fullan vilja gæti það ekki eytt öllu draslinu þó það yrði 200 ára. Þessu fólki leiðist lífið og þarf mikið af allskonar afþreyingu. Oftar en ekki er líka mikill metingur hjá svona ríku fólki svo það þarf ekki annað en að fá einn flottann ríkann pappakassa til að hinir komi líka.

Þá gætu útrásarvíkingarnir okkar sinnt þegnskyldu og markaðssett þetta í kreðsunum.

Við gætum haldið heimsmeistaramót í póker árlega þar sem pöpullinn fær að taka þátt með atvinnumönnum og auðmönnum og fullt annað skemmtilegt sem laðar hingað fleiri ferðamenn..

Þessi ríkisstofnun væri kölluð: Víti.

Eins og ég skrifaði áður þá er þetta ekki hugsað fyrir almenning, þetta er hugsað fyrir ríkt fólk, sem myndi mögulega skella sér í einhverjar ævintýraferðir og skoða landið og ef við markaðssetjum þetta rétt gætum við stórgrætt á þessu.

Við gætum líka alveg skírt þetta Helvíti. Stjórnvöld eru búin að selja skrattanum sál sína fyrir peninga. Ég legg til að við förum þá og náum í peningana okkar á réttum stað, á löglegan hátt og án þess að nauðga landinu okkar mikið á meðan við erum að því.

Þetta er sennilega töluvert ódýrara í uppsetningu en álver.


| anna | 19:29 | permalink | comments (23) |
x-lýðræði
Fimmtudagur, 08. janúar 2009

Nú veit ég hvað ég vil og ætla að kjósa.

Hvet alla til að lesa þessa grein.

Þetta er svar sem mótmælendur geta beitt fyrir sig þegar þeir fá þessa þreyttu spurningu: "ert þú með einhverjar lausnir?"


| anna | 11:11 | permalink | comments (8) |
Hvað ef...
Miðvikudagur, 14. janúar 2009

Á fimmtudaginn í síðustu viku las ég blogg eftir Egil í Brimborg sem ég kynntist lauslega fyrir tveimur árum þegar markaðsdeild Brimborgar útvegaði mér Ford GT bíl eina kvöldstund vegna nokkurs konar gjörnings sem tengdist afmælinu mínu. Ég var með hann í tenglalistanum hér á blogginu en stuttu eftir að bankarnir féllu færði ég hann efst í tenglalistann vegna þess að mér fannst hann skrifa færslur sem meikuðu sense og mér fannst bara ekkert of margir vera að gera það.

En þennan fimmtudag las ég færslu sem hann kallaði "Nýtt sjálfseyðandi lýðræðisbreytingaafl" og ég sá í kommentunum tillögu um að koma þessu á wikipedia form svo fólk gæti þróað hugmyndina áfram saman.

Þar sem ég hef séð að margir eru að hugsa mjög svipað og Egill, setti ég inn færslu á bloggið mitt þar sem ég linkaði á færsluna hans, sendi Agli póst og spurði hvort hann hefði eitthvað á móti því þó ég myndi setja upp wiki fyrir þessar hugmyndir þar sem allir geta tekið þátt í að þróa þær áfram og eins og mig grunaði sagði hann já. Næst sendi ég nágranna mínum, sem er mikill snillingur, póst og spurði hvort hann gæti hjálpað mér með þetta verkefni, hann stakk uppá að finna lén fyrir verkefnið og taka þetta alla leið. Mér fannst þetta snilldarhugmynd og daginn eftir skráði ég lénið www.lydveldisbyltingin.is.

Eftir talsverða leit að hýsingu talaði ég við Stephen vin minn á Írlandi sem setti upp wikipedia fyrir mig og þann 13. janúar opnaði vefurinn alveg hrár. Það tók innan við sólarhring að finna mann sem bæði kann á wiki kerfið og bauðst til að taka að sér að vera umsjónarmaður, og engin smá umsjónarmaður, hann er að massa þetta!

Eins og áður sagði var vefurinn er kynntur til leiks algjörlega hrár, hugmyndin er að þátttakendurnir móti sjálfir verklagsreglur og taki þátt í að byggja upp vefinn frá grunni. Þetta er einfalt kerfi og hver sem er ætti að geta sett inn efni. Ég veit ekkert hvað gerist, það á eftir að koma í ljós. Ég veit ekki hvort lýðræði virkar í praxís, en ég hef trú á að það sé hægt að vinna tillögur svona "live". Og mér finnst fullkomlega þess virði að láta á það reyna.

Ég er strax farin að fá komment á msn frá hinum og þessum: "verður bara ekki skríll þarna inni?" "veit fólk hvað það er að gera?" Sumir spyrja "hverjir eru í forsvari?" "hver stjórnar?"

Ég spyr: hver stjórnar alfræðiritinu wikipedia? Þar eru fleiri milljón manna að vinna saman af skynsemi og.. hugsjón.

Hvað ef Íslendingar geta unnið saman af hugsjón og skynsemi?
Er það svo flippuð hugmynd?

Ég hlakka mikið til að sjá hvernig þetta þróast því í raun er þetta komið úr mínum höndum og yfir í hendurnar á öllum Íslendingum sem láta sig málið varða.

Og ég veit.. ég er vön því að vera "bubble gum" bloggari sem tek lífinu hóflega alvarlega - og ég er þannig - en það er líka löngu ljóst að það kynnist engin Önnu sem les bara anna.is.

Ég hef svo helvíti margar hliðar - it's a curse - og ég hef alltaf fengið kikk útúr því að sjá fólk og hugmyndir blómstra og ég er að vona að þetta verði til þess að hugmyndin fái að blómstra því ég held að þetta sé eitt af því sem Íslendingar þurfa núna: breytt stjórnkerfi.


| anna | 23:14 | permalink | comments (10) |
Virkar
Laugardagur, 17. janúar 2009

Ég var í símanum fram eftir kvöldi og þegar ég settist við tölvuna til að fara að vinna fann ég að ég var orðin mjög þreytt. Ég óskaði mér orku til að klára það sem ég ætlaði að gera og viti menn..

Í msn glugga á hægri skjánum var hönnuður að spjalla við mig um hitt og þetta, m.a. tónlist. Nema hann fór að senda mér e.k. jungle danstónlist og ég fór í þennan líka þvílíkan vinnugír við það að hlusta.

Ég held að ég sé jafnvel búin að finna það sem getur komið í staðinn fyrir coca cola á löngum dögum. Og ég held að tónlist sé ekki ávanabindandi.

Ég ætti að óska mér miklu oftar.


| anna | 2:49 | permalink | comments (2) |
Áskorun
Laugardagur, 17. janúar 2009

Þó ráðamenn haldi svo fast í sætin sín að hnúarnir hvítna, og allir flokkar leggist á eitt við að reyna að drepa málinu á dreif með ótímabærri ESB umræðu, þá sjá fjölmiðlamenn sem betur fer í gegnum ruglið og það sem meira er, þeir eru farnir að segja það upphátt.

Flestir Íslendingar vopnaðir tveimur heilasellum eða fleiri hafa áttað sig á hvað er að gerast hérna í kringum okkur - þeir sem ennþá hafa taugar í að horfa á fréttir og fylgjast með umræðunni. Á meðan allt er skorið niður eru framlög til stjórnmálaflokka hækkuð.

Horfið á Kastljós gærkvöldsins.

Ráðamenn,
Boðið til kosninga í ár. Mér finnst það ekki ósanngjörn krafa miðað við það sem á undan er gengið. Þær forsendur sem voru fyrir hendi þegar þið fenguð umboð frá þjóðinni eru brostnar.
----

En, bíddu aðeins... hvað gerist ef boðað verður til kosninga? Hvað eiga Íslendingar að kjósa? Meira af því sama? Hvað eru margir að undirbúa ný framboð?

Þetta er nú það sem svo ofboðslega margir óttast meira en núverandi ástand, því það er engin raunhæfur valkostur í boði þó boðað verði til kosninga.

Það er eiginlega hálf súrrealískt að ég, sem fer oft afar frjálslega með sannleikann hérna og leyfi mér einmitt að keyra útum allt á veginum ef það kryddar söguna sem ég er að segja, það sem ég er að skrifa núna þarf ekkert krydd, þetta er staðan. Mér finnst það bara gjörsamlega.. absúrd.

Því fleiri óánægjuframboð, því minni líkur á breytingum. Það er staðreynd málsins á meðan við búum við flokksræði og við vitum það öll. Þess vegna var vettvangurinn settur upp fyrir alla, svo fólk fái tækifæri til að finna viðunnandi lausn. Stjórnkerfi sem virkar. Fólk sem er ekki að sækjast eftir völdum, ekki að sækjast eftir kjötkötlum, fólk sem leggur eigin hagsmuni til hliðar og horfir á heildina. Það skiptir nefnilega ekki nokkru máli þó við séum ósammála um allt annað, við hljótum að vilja breyta þessu lýðræðislausa kerfi sem kom okkur hingað og við vitum að það verður ekki gert nema með einu, sterku, ópólitísku afli sem fer inn, breytir reglunum - hratt - og fer út aftur svo hægt sé að kjósa.

Fræðimenn,
Takið þátt. Nýtið þekkingu ykkar í þágu þjóðarinnar. Þið getið gert það nafnlaust þó það sé sterkara ef þið gerið það undir nafni. Flokksbundin? Það skiptir engu máli. Ef þú ert með góðar tillögur sem stuðla að betra kerfi, komdu þeim á framfæri. Er einhver "kommatittur" búinn að skrifa eitthvað sem þér fellur ekki við - á undan þér? Ekki láta það stoppa þig frá því að leggja inn þínar tillögur líka. Þú hefur jafn mikinn rétt og allir aðrir til að segja hvernig þú vilt leysa þetta. Búinn að kjósa sjálfstæðisflokkinn frá því þú fékkst kosningarétt? Það skiptir ekki máli heldur. Ef þér finnst innleggið þitt gott er ekki hægt að velja það nema þú komir því á framfæri og þetta verkefni kemur okkur öllum við.

Það detta allir, allir, í drullupoll einhvertíma á ævinni. Það sem skiptir máli er hvernig fólk stígur uppúr honum. Íslenska þjóðin er dottin í djúpan drullupoll og sumir eru að drukkna í honum. Hjálpið okkur að stíga upp með reisn. Ef þið viljið skal ég skrá inn tillögur fyrir ykkur, þið getið sent mér þær í pósti og ég mun koma þeim til skila á vefinn á rétta staði í umræðunni.

Þó þú fáir kannski gagnrýni af því einhver er ekki sammála hugmyndinni þinni og færir rök fyrir því, jafnvel þó þú þurfir að endurskoða afstöðu þína, það er bara allt í lagi. Við verðum að vera stærri en svo að við förum í fýlu af því það finnst ekki öllum okkar hugmynd best. Þú komst þá allavega hugmyndinni á framfæri, lagðir þitt af mörkum. Ef við ákveðum að gera þetta saman, erum málefnanleg, kurteis, sanngjörn og nálgumst þetta af skynsemi þá náum við saman og finnum lausn sem allir geta fellt sig við. Sanngjarnt, skynsamt og málefnanlegt fólk finnur lausnir.

Gagnrýnum hugmyndir hvors annars á uppbyggilegan hátt. Byggjum hvort annað upp. Við erum búin að rífa alveg nóg niður.

Forsíðan er að taka á sig mynd - og það eru að koma inn tillögur, kostir, gallar. Þetta er ekki spjallsvæði, þetta er vinnusvæði. Þetta er ókeypis hýsing og ef traffíkin verður mikil kemur stundum upp villa ef þú setur inn breytingu, bíddu þá bara örskamma stund og reyndu aftur. Þó það séu margir búnir að skrifa um að það þurfi að koma á lýðræði eru sennilega færri sem hafa hugmynd um hvernig á að útfæra það. Ég get alveg hrópað á torgum að ég vilji lýðræði þangað til ég verð hás og heiðblá í framan, ég get skrifað um það þangað til ég fæ krampa í fingurna, en það færir mér ekki frumvörp sem hægt er að gera að lögum. Ekki hætta að mótmæla, en þið sem hafið hugmyndir, deilið þeim með okkur. Þið sem hafið sérfræðikunnáttu, hjálpið okkur.

Alþingismenn,
Þið eruð þjóðin líka. Takið þátt. Ef þið hafið góðar tillögur, komið þeim á framfæri.

Þegar við erum búin að breyta kerfinu þá eiga þeir sem vilja fara á þing og vinna fyrir þjóðina miklu betri möguleika en þeir eiga núna, svo ekki hætta að skipuleggja framboðin, alls ekki. Afgreiðum þetta mál bara fyrst, öll saman.

Þú getur farið inná lydveldisbyltingin.is og sett inn tillögur sjálf/ur í wiki kerfinu, það er ekki erfitt þó þú þurfir aðeins að setja þig inní hvernig kerfið virkar, en í raun þarftu ekki einu sinni að kunna neitt annað en að lesa og senda tölvupóst til að taka þátt. Þarft ekki einu sinni að kunna að senda tölvupóst, þú átt örugglega einhvern ættingja eða vin sem er til í að setjast niður með þér og senda fyrir þig tölvupóst til mín með tillögunum þínum. Ég gef hér með loforð um að ég muni sjá til þess persónulega að þeim verði komið til skila.

Það eru nokkrir Íslendingar nú þegar byrjaðir að vinna saman fyrir opnum tjöldum að betra lýðveldi. Engar lygar, engin feluleikur. Skrifað á mannamáli.

Gefur mér nokkuð sem mig hefur skort undanfarið: von.

Loksins.


| anna | 14:29 | permalink | comments (9) |
Íslendingar nær og fjær
Sunnudagur, 18. janúar 2009

Við þurfum að kanna hvernig stjórnskipulagi er háttað í löndunum í kringum okkur og ef þú ert Íslendingur erlendis eða heima sem hefur kynnt þér fyrirkomulagið í einhverju landi í kringum okkur, endilega settu inn upplýsingar á wiki vefinn okkar.

Þegar þú ert kominn inn á wiki vefinn og vilt setja inn upplýsingar smellir þú á "breyta" lengst til hægri við það land sem þú vilt skrifa lýsingu við, þú vistar með því að smella á hnapp neðarlega á síðunni. Þú þarft ekki að gefa upp neitt nafn, frekar en þú vilt, en mér þætti vænt um ef fólk myndi setja einhver nöfn eða upphafsstafina sína fyrir aftan athugasemdirnar til að aðgreina upplýsingar frá mismunandi aðilum.

Með fyrirfram þökk fyrir aðstoðina.
anna


| anna | 22:25 | permalink | comments (2) |
Kveðjugjöfin
Mánudagur, 19. janúar 2009

Ég var að fá hugmynd. Núverandi ríkisstjórn getur gert svolítið að sínu síðasta embættisverki, sem gjöf til íslensku þjóðarinnar og skref í átt að fyrirgefningu og sátt.

Ef ég gef mér að fólkið sem vill og er að vinna saman að tillögum um betra lýðveldi nái saman og að útkoman verði tilbúin frumvörp sem hægt er að gera að lögum. Þá gæti sitjandi alþingi samþykkt þau áður en þau slíta stjórnarsamstarfi.

Ef þjóðin kýs ekki breytingaraflið, þá vill þjóðin ekki breytingar hvort sem er, og breytingin nær ekki í gegn. Breytingaraflið leggur sig niður.

Ef breytingaraflið fær góða kosningu væri þjóðin í raun bara að gefa endanlegt samþykki sitt. Breytingarnar eru samþykktar aftur á þingi og boðað strax til kosninga eftir nýju lögunum.

Mikill tími sparast (og kostnaður).


| anna | 1:00 | permalink | comments (0) |
Procrastination
Mánudagur, 19. janúar 2009

Ég var að mæla hárin á fótleggjunum og fann eitt sem er næstum tveir cm að lengd! Hvað er í þessu spirulina dóti eiginlega?

Mér finnst ég standa á krossgötum: hvort á ég að fjarlægja hárin eða fara að safna fyrir alvöru? Hvað geta hár á fótleggjum eiginlega orðið löng? Er raunhæft að flétta eftir.. tvo mánuði? Hvernig kæmi það út við bikiní? Myndi maður nota litaðar teygjur?

Þetta er hluti af þeirri martröð sem fylgir því að vera fullorðin. Ég þarf að taka ákvörðun í þessu máli en mér finnst þetta orðið svo mikið að ég óttast aðskilnaðarkvíða ef ég tek þetta allt á einu bretti. Þetta er orðinn svo stór hluti af mér, hlutfallslega - í hárum.

Best að sofa á þessu.

Ég er samt ekkert smá fegin að það var hætt við "casual friday" í vinnunni þar sem allir áttu að mæta í stuttbuxum.


| anna | 20:25 | permalink | comments (10) |
Ríkir menn
Mánudagur, 19. janúar 2009

Ég á ekkert erfitt með að trúa því að konur sem eiga ríka menn fái fleiri fullnægingar og lifi betra kynlífi en konur sem eiga... tökum nærtækt dæmi: engan mann.

Og það kemur mér ekkert sérstaklega á óvart heldur.

Hvernig var þetta í gamla daga?

Karlmenn sáu um að vernda konuna og börnin fyrir allskonar skrímslum og öðrum karlmönnum. Karlmaðurinn veiddi mat og sá um önnur praktísk atriði eins og að bera þunga hluti - eitthvað sem ég t.d. þreytist ekki á að horfa á.

Hvernig vernda menn konuna sína og börnin í dag? Með peningum. Með peningum geta þeir keypt húsnæði sem veitir skjól fyrir veðrum og vindum. Þeir hafa efni á að borga hita, sem gerir húsið notalegt, þeir geta keypt bíl sem bilar ekki, þeir kaupa mat og margir kaupa húshjálp svo engin þarf að eyða tíma í að þrífa.

Hvað veitir fólki vellíðan? Af hverju líður stórum hluta af Íslendingum ekkert vel þessa dagana? Af því við búum við óöryggi. Við búum samt við töluvert meira öryggi en stór hluti mannkyns, en núna vitum við ekkert hvernig staðan er, það virðist engin vita það. Það getur af sér óöryggi og vanlíðan og öryggið okkar minnkar í jöfnu hlutfalli við fréttir af allskonar rugl dílum og skuldaklafa sem hækkar bara og hækkar.

Kona sem er úttauguð af áhyggjum yfir því hvernig hún á að útvega börnunum sínum húsaskjól, mat, föt, læknisþjónustu og þessháttar er einfaldlega ekkert að fara að henda sér uppí rúm og slaka á til að fá einhverjar mega raðfullnægingar tímunum saman. Hún er of úttauguð til þess.

Ég held hinsvegar að það breyti engu hvort karlinn eða konan er rík, kynlífið verður alltaf betra ef þér líður vel og býrð við öryggi.

Þó ekki væri nema bara tilfinningalegt.


| anna | 20:39 | permalink | comments (0) |
Hroki ráðamanna
Þriðjudagur, 20. janúar 2009

Dagskrá alþingis í dag var súrrealísk miðað við ástandið í landinu.

Á Selfossi klæðir einhver furðufugl sig í viðhafnarbúning eða eitthvað álíka og undirbýr sig undir að handtaka fleiri hundruð einstaklinga vegna þess að þeir mættu ekki í árangurslaust fjárnám, en hættir við. Getur einhver útskýrt fyrir mér, þannig að ég skilji það, af hverju þessi maður er með vinnu?

Við þurfum starfhæfa stjórn.
Við þurfum skilvirkt eftirlitskerfi.
Við þurfum embættismenn sem [tók út það sem ég var búin að skrifa] eru starfi sínu vaxnir.

Er þetta flókið?


| anna | 19:24 | permalink | comments (3) |
Bál
Þriðjudagur, 20. janúar 2009

Var að koma heim af Austurvelli.

Hitti þjóðina.


| anna | 21:08 | permalink | comments (10) |
"do you have proper riot police?"
Þriðjudagur, 20. janúar 2009

Anna says: http://www.flickr.com/photos/johannesgunnar/3213555196/
Anna says: he was spraying a photographer
Dan says: do you have proper riot police?
Anna says: what is a proper riot police?
Dan says: ones who don't pepper spray at the drop of a hat
Anna says: the police think they do
Dan says: i can't imagine you would
Dan says: we have police that deal with riots and stuff, like having petrol bombs thrown at them
Dan says: i'm just guessing if they're not trained
Dan says: they would do stupid things
Dan says: like that
Anna says: like what?
Dan says: pepper spray a photographer
Anna says: they pepper sprayed a lot of them today
Anna says: at least four
Dan says: well that seems over the top
Anna says: it does
Dan says: yeah
Dan says: these things escalate
Anna says: they do
Dan says: riot police shouldn't escalate
Dan says: they should defuse, absorb
Dan says: we've used water cannons
Dan says: but to be fair, in our case bombs were being thrown in most circumstances
Dan says: certainly rocks
Dan says: i'd bet that the next demonstration some fools will turn up with missiles
Dan says: no rocks this time
Dan says: but next time, because the police waded in
Dan says: it could be different
Dan says: the police need to come out and apologize
Dan says: defuse that whole thing
Anna says: i'm gonna show you, hold it
Anna says: http://www.youtube.com/watch?v=FP2vwhEt4WR

Dan says: using pepper spray like that seems a tad over eager
Dan says: it'll probably go down as assault
Dan says: assuming you have rights of free assembly
Anna says: we do
Anna says: last time i checked
Dan says: i have sympathy for the average police man who has to do his job
Dan says: but that's bad management of the situation
Dan says: to my mind
Anna says: i agree
Dan says: you really have to be careful
Anna says: i am, don't worry
Dan says: these things can become dangerous so quickly
Dan says: and then someone gets hurt or worse
Dan says: if the police engage like they did in your thing, it escalates
Anna says: and it did
Anna says: people are hurt
Anna says: but when i went there it was just people chanting and making noise
------

Ég forðast mótmæli þar sem ég held að geti brotist út læti. Eftir lögreglustöðina forðast ég mótmæli eiginlega alveg, vegna þess að ég er hrædd við framgöngu lögreglu því hún virðist miðast við að gera meiri læti og meiða fólk, ekki róa niður og dreifa fjöldanum. Ég fór samt í bæinn í kvöld vegna þess að mig langaði til að fara og sjá með eigin augum þegar Íslendingar standa saman. Það sem ég sá fannst mér ekki ógnvekjandi á neinn hátt, þarna var ekkert ofbeldi. Helgi Seljan var að senda út beint í Kastjósinu, ég stóð ekki langt frá honum en var ekki í mynd.

Þegar ég fór heim úr bænum var ennþá allt frekar meinlaust. Á leiðinni útí bíl gekk ég framhjá tveimur lögreglumönnum sem voru við vegatálma fyrir aftan alþingishúsið. Ég stoppaði og spurði hvort þeir myndu bara ekki leyfa fólkinu að klára þetta friðsamlega. Annar þeirra heyrði ekki í mér svo ég spurði: "þið ætlið ekkert að ráðast á fólkið, er það?"

Hann brosti viðkunnanlegu brosi og sagði "nah, við leyfum þessu bara að klárast í rólegheitunum". Mér líkaði strax vel við hann og velti fyrir mér hvort hann væri giftur. Hinn muldraði með hörkusvip: "ég veit það ekki."

Ég trúi að það sé gott fólk í lögreglunni. Það er bara því miður misjafn sauður í mörgu fé og skv því sem ég hef séð á myndum í dag eigum við ekki alvöru óeirðalögreglu. Mínar heimildir herma að lögregla hafi kallað út fyrsta árs nema úr lögregluskólanum. Ef þetta er rétt, finnst mér það bera vott um mikinn dómgreindarskort en það bendir líka til þess að ráðamenn séu orðnir mjög hræddir. Enda erum við að skrifa söguna núna, við erum að brjóta blað. Ef á okkur væri hlustað, þá þyrftum við þess ekki.

Hvað ætlar þessi ríkisstjórn að láta marga slasast áður en hún afsalar sér völdum? Því um það snýst málið og ekkert annað. Völd.

"Nearly all men can stand adversity, but if you want to test a man's character, give him power."


| anna | 23:44 | permalink | comments (7) |
Ég velti fyrir mér..
Föstudagur, 23. janúar 2009

"I can bring anything mechanical back from the dead."

Hvernig í fjandanum getur þessi setning turnað mér svona on, þegar ég er ekki vélmenni?


| anna | 0:12 | permalink | comments (8) |
lydveldisbyltingin.is niðri sökum álags
Laugardagur, 24. janúar 2009

Maður er að taka þátt í að undirbúa byltingu í rólegheitunum heima hjá sér fyrir opnum tjöldum á Internetinu og þá er alþjóð sagt frá því í fréttum áður en vefurinn er fluttur á ægilegt skrímsli; IBM vél, átta örgjörvar og 28 GB RAM.

Demit.

Nú kemst engin inná síðuna því það er svo mikið álag. Flutningur mun verða í kvöld eða á morgun og þá ættu allir að komast þarna inn þegar þeim hentar án vandræða.

Þegar síðan flyst yfir ætlum við líka að bæta við vinnu-forum sem er auðveldari í notkun en wiki-formið og ætti að vera skilvirkari til að afgreina afmörkuð mál. Niðurstöðurnar verða svo færðar á wiki síðuna til að hafa heildarmynd og yfirsýn.

Hver eru annars þessi "við" sem ég tala um?

Við erum allskonar fólk sem hefur verið í svipuðum pælingum og/eða gefið sig fram í gegnum síðuna og er að vinna saman að bættu lýðræði á Íslandi. Ég er mjög ánægð með þátttökuna so far og miðað við álagið í kvöld virðist þetta vera eitthvað sem Íslendingar fagna.

Það eru engin samtök á bakvið þessa heimasíðu ennþá og ekki einu sinni búið að ákveða nafn, svo ekki veit ég alveg hvaða spuni var í gangi hjá fréttamanni RUV þegar hann sagði þetta tengjast nokkrum félagasamtökum. Þessi síða er hinsvegar ekki eini vettvangurinn þar sem fólk er að vinna að svipuðum málum, hann er hinsvegar eini vettvangurinn sem er einnig tilraun til að vinna hlutina algjörlega fyrir opnum tjöldum til að koma í veg fyrri eitthvað leynimakk sem allir eru orðnir þreyttir á.

Ef vinnan skilar árangri og við komum okkur saman um hvernig við viljum breyta stjórnkerfinu hérna, þá verður sennilega auðvelt að finna fólk, venjulegt, ópólitískt fólk sem vill bjóða sig fram fyrir okkur, fara á þing og breyta og leggja þetta svo niður og boða til kosninga í lýðræðislegra kerfi.

Ég vona að svo verði.

Ef þú hefur áhuga þá erum við á facebook og svo geturðu skráð þig á póstlistann okkar til að fylgjast með.

Heimasíðan lydveldisbyltingin.is mun koma upp von bráðar og þá getum við haldið áfram með þessa vinnu.

"Við" gæti líka verið þú.

(þangað til síðan verður flutt á betri server geturðu séð afrit af henni á google til að fá hugmynd um hvað þetta er)


| anna | 22:04 | permalink | comments (0) |
Engin pressa
Sunnudagur, 25. janúar 2009

Bankarnir á Íslandi falla hver af öðrum.

Björgvin er ráðherrann sem ber ábyrgð á þessum málaflokki.

Fólk mótmælir og krefst þess að menn segi af sér og að það verði hreinsað útúr FME, laugardag eftir laugardag.

Mótmæli harðna, slys verða á fólki vegna lögregluofbeldis og ofbeldis mótmælenda gegn lögreglu.

Ákveðið er að boða til kosninga.

Björgvin segir upp stjórn FME og segir af sér - korter fyrir kosningar og sennileg stjórnarslit.

"Björgvin sagði að enginn hefði þrýst á hann um afsögn og ekki hefði verið rætt um það úti í samfélaginu undanfarnar vikur."


| anna | 13:16 | permalink | comments (4) |
Intolerable Cruelty
Sunnudagur, 25. janúar 2009

Ég er gjörsamlega að leka niður úr þreytu eftir þennan dag.

Myndin "Wag the dog" er búin að rúlla tvisvar í gegn á meðan ég var að vinna í að setja mig inní ákveðið kerfi. Sumt fólk vinnur við tónlist, mér finnst best að hlusta á bíómyndir.

Um daginn horfði ég hinsvegar á aðra mynd, Intolerable Cruelty, sem fékk mig til að velta fyrir mér af hverju í andskotanum fólk sækist eftir að eignast svo mikið af peningum.. að það á sér ekkert líf.

Bíómyndin er afurð Coen bræðra sem ég held mikið uppá og er frá árinu 2003. Hér á eftir er major spoiler þar sem ég segi nánast frá öllu sem gerist í myndinni, svo ef þú átt eftir að horfa á myndina og langar til þess, ekki lesa lengra.

vlcsnap-79567.png

Myndin fjallar um Miles, lögfræðing sem hefur sérhæft sig í skilnaðarmálum. Hann er mjög farsæll, shallow, upptekin af útlitinu, þá sérstaklega tönnunum sem hann þreytist ekki á að hvítka en innst inni er hann leiður á lífinu. Ekkert fullnægir honum lengur. Hann kaupir sér nýja hluti, dýra hluti, en það er alltaf eitthvað tómarúm í hjartanu sem hann virðist ekki geta fyllt, þrátt fyrir alla þessa peninga.

vlcsnap-66553.png

Myndin fjallar líka um Marilyn, unga konu sem er ákveðin í því að finna sér ríkan eiginmann, skilja við hann og öðlast með því ríkidæmi, sjálfstæði og frelsi. Í byrjun myndarinnar er Marilyn búin að finna sér ríkan, heimskan mann, sem hún er að skilja við. Því miður ræður ríki, heimski maðurinn Miles til sín sem lögfræðing og Marilyn fær ekki krónu útúr skilnaðnum. Það breytir því ekki að Miles er heillaður af Marilyn og langar að kynnast henni betur.

vlcsnap-81062.png

Dag einn er Miles kallaður inn á teppi hjá senior partner í lögfirmanu, Herb Myerson. Gamalt hró sem lítur mest út eins og E.T. eftir áralanga, mikla neyslu af meth amfetamíni. Fátt sem minnir á manneskju við manninn, enda er hann löngu hættur að vera manneskja. Maðurinn eyðir öllum dögum í vinnunni, er mættur fyrstu og fer síðastur. Á enga fjölskyldu, telur peninga og "billable hours" alla daga. Erkitýpan af baunateljara sem græðgin hefur étið upp, inside out.

vlcsnap-81813.png

Eftir fundinn með baunateljaranum fer Miles að endurskoða sitt líf. Hann á nefnilega ekki líf og sú staðreynd rennur upp fyrir honum akkúrat þarna (sjá mynd). Og Miles langar ekki að enda sem gráðugur baunateljari, hann veit bara ekki hvernig hann á ekki að gera það. Honum verður hugsað til Marilyn.

Marilyn er pissed útí Miles fyrir að hafa skemmt fyrir henni the grand divorce plan. Finnur annan mann sem er vellauðugur, hittir Miles og fær hann til að draga upp fræga kaupmálann sinn sem er ekki hægt að fara í kringum, býður Miles í brúðkaupið þar sem hann horfir á brúðgumann éta kaupmálann eftir athöfnina, því hann elskar hana Marilyn sína svo heitt. Miles áttar sig á því að Marilyn er um það bil að verða mjög rík. Ríkari en hann sjálfur.

vlcsnap-70188.png

Hálfu ári seinna hittast þau fyrir tilviljun. Til að gera langa sögu stutta þá ákveða þau að gifta sig, Miles býðst til að skrifa undir kaupmálann fræga þannig að hann geti ekki gert tilkall til eigna Marilyn en um brúðkaupsnóttina rífur hún kaupmálann, og sýnir Miles þannig að hún beri fullt traust til hans. Miles er gjörsamlega heillaður af þessari konu og að hún skuli sýna honum slíkt traust. Miles verður ástinni að bráð.

vlcsnap-71936.png

Daginn eftir kemst Miles að því að vellauðugi eiginmaður Marilyn var ekki ríkur, hann var leikari, ráðin til að fá Miles til að halda að Marilyn væri rík - svo hann myndi ekki krefja hana um kaupmála þegar hún giftist honum. Í taugaáfalli fer hann á fund hennar og spyr hvort hann skipti hana engu máli, hún svara því til að hann verði alltaf uppáhalds eiginmaðurinn hennar, áður en hún fer.

vlcsnap-65813.png

Eitthvað nagar samviskan Marilyn nú samt og fyrir augunum hefur hún vinkonu sína sem hefur leikið þennan giftingar/skilnaðar leik svo oft að nú situr hún ein í villu með 43 herbergjum, þorir ekki að hitta nokkurn mann af ótta við að hann sé á eftir peningunum hennar auk þess sem hún þjáist af magasári. Frekar innantómt líf og Marilyn spyr sig hvort frelsið, sjálfstæðið og ríkidæmið sem hún vildi sé kannski of dýru verði keypt.

Vill þá svo skemmtilega til að upprunalegi eiginmaður Marilyn sem hún skildi við deyr, en hún er einkaerfingi svo nú er hún, í raunveruleikanum, orðin ríkari en Miles, og ekki með neinn kaupmála. Þegar þau hittast til að ganga frá skilnaðnum vill Miles sættast við hana, skrifar undir kaupmála og réttir henni.

vlcsnap-75778.png

Marilyn rífur kaupmálann og sýnir Miles þannig að hún treysti honum fullkomlega, af því hún elskar hann. Awwww

vlcsnap-76767.png

Miles og Marilyn lifa hamingjusöm til æviloka - eins og fólk á að gera í bíómyndunum. Í trausti og ást, auðvitað.

The end.

Oh hvað ég elska bíómyndir. Þær eru svo dásamlegur flótti frá köldum raunveruleikanum og þú getur valið um hvort þú horfir á mynd þar sem allt gengur upp, eða mynd þar sem allir drepa alla og last man standing deyr úr þunglyndi. Getur ekki tapað.

Lífið er svo lítils virði ef þú hefur engan til að deila því með. Og ég er farin að finna svolítið fyrir því, þó börnin mín séu auðvitað ákveðin buffer. Þau verða ekkert hjá mér að eilífu og nýlega fór ég að verða vör við e.k. premature emty nest syndrome þegar þau fara til pabba síns um helgar. Stórfurðulegt í raun. Þegar ég var nýskilin þá saknaði ég þeirra alltaf á sunnudeginum, mikið. Núna sakna ég þeirra um leið og þau eru farin.

Þá er gott að hafa einhverja góða flóttaleið, helst einhverja sem endar vel.

Annað væri náttúrlega bara rugl.


| anna | 23:19 | permalink | comments (3) |
Á dauða mínum átti ég von..
Mánudagur, 26. janúar 2009

..en að Ólafur Ragnar kæmi svona sterkur inn.. það sá ég ekki fyrir.

Hann setti fjögur skilyrði fyrir stjórnarmyndun.
Hér er þetta fjórða:

Í fjórða lagi þá tel ég einnig nauðsynlegt, á þessum tímamótum sé hugað að því að skapaður sé farvegur fyrir þá umræðu sem við verðum mjög vör við í okkar þjóðfélagi þar sem fólk varpar fram hugmyndum og kröfum um nýja stjórnskipan, endurskoðun á stjórnarskrá, nýtt lýðveldi, eins og sumir orða það, eða þjóðfélagslegan sáttmála, eins og ég orðaði það í mínu nýársávarpi - hvaða orð sem menn annars velja fyrir þessa hugsun, þá er það alveg greinilegt að ásamt ákvörðunum sem hefðbundnar eru við þau tímamót að stjórn lætur af störfum og ný þarf að taka við þá er greinilegt að það þarf einnig að hugsa að farvegi fyrir þessa lýðræðislegu umræðu þjóðarinnar allrar um með hvaða hætti við viljum skipa okkar lýðveldi og okkar stjórnkerfi til frambúðar í ljósi þeirrar reynslu sem við þekkjum öll hver hefur orðið.
- Ólafur Ragnar Grímsson, RUV 26. janúar, 2009.

Ég bendi á, að farvegurinn er kominn. Fólk er að taka þátt og það hefur skoðanir og mikinn áhuga.

Það eina sem vantar er að ráðamenn lesi tillögurnar, komi jafnvel þarna sjálfir inn með tillögur, leggji okkur til sérfræðikunnáttu til að vinna úr hugmyndunum sem þegar eru komnar - og klára þetta. Það eina sem þarf er vilji.

Stjórnin fallin og þó ég sé ekkert hrifin af því að mynda nýja úr því fólki sem er á þingi núna þá er það sennilega eitthvað sem ég þarf að sætta mig við.

Og að allt öðru. Í dag fékk ég tölvupóst þar sem kom fram að marel.com vefurinn hefur, ástamt fimm öðrum vefjum, verið tilnefndur hjá svef sem besti fyrirtækjavefurinn - sem þýðir að ég tók þátt í að setja saman einn af fimm bestu fyrirtækjavefjum ársins 2008.

Ég get alveg farið sátt að sofa í kvöld, og rúmlega það.


| anna | 19:47 | permalink | comments (7) |
Baggalútur fer á kostum - eins og venjulega
Mánudagur, 26. janúar 2009


| anna | 23:43 | permalink | comments (3) |
Ef ég má benda á hið augljósa..
Miðvikudagur, 28. janúar 2009

Við þurfum ekki þrjá Seðlabankastjóra. Höfum aldrei þurft þrjá.

Það sem hinsvegar vantar hér, og hefur vantað lengi, er daggæsla fyrir afdankaða pólitíkusa sem þrjást af stjórnunaraðskilnaðarkvíðaröskun.

Væri Kaupþingshúsi ekki upplagt fyrir þannig starfsemi?

Sýnist það vera notað undir skipulagða glæpastarfsemi í dag og mér finnst þetta full íburðamikið hús til að nota sem fangelsi. Ef þú mættir ráða, hvaða ríkisstofnun myndir þú flytja í Kaupþingshúsið?

Við þurfum nefnilega ekki þessa þrjá banka heldur.


| anna | 13:16 | permalink | comments (11) |
Út af borðinu
Föstudagur, 30. janúar 2009

Dagurinn byrjaði á því að ég fékk góðar fréttir og get hætt að pæla í bréfi sem ég fann í póstkassanum um daginn sem var búið að liggja þar í einhvern tíma. Eins og venjulega er þetta sennilega versta leiðin til að ná í mig, að senda mér bréf.

Ég er búin að borga niður yfirdráttinn minn og láta fella heimildina úr gildi. Þrátt fyrir að þetta hafi verið eini drátturinn sem ég hef alltaf getað gengið að vísum, þá græt ég brotthvarf hans þurrum tárum.

Þetta gerist hægt, en bítandi. Ég er ekki með nein lán lengur í bönkum og nú þegar yfirdrátturinn er farinn er ég hætt að vera áskrifandi að vöxtum.

Er bara nokkuð ánægð með lífið og tilveruna - og haldiði að sólin hafi ekki verið að brjóta sér leið í gegnum skýin líka!

Svona á þetta að vera.


| anna | 12:18 | permalink | comments (6) |
Vefverðlaunin 2009
Föstudagur, 30. janúar 2009

Í kvöld hræktu örlögin framan í mig. Ég stóð, meðal fjölda fólks, og sá að vefurinn sem var tilnefndur til verðlauna hafði í raun ekki komist á blað. Í stað marel.com var varpað á skjáinn vefnum marel.is, sem var bara alls ekki í umræðunni. Que?

Að sjálfsögðu vann marel.is ekki, enda er það bara smávefur sem settur var upp fyrir einhverja glæpaþjóð sem býr útí sjó einhversstaðar og öllum er illa við. Neinei, segi svona. Það hefði reyndar liðið yfir mig ef marel.com hefði unnið þetta eins og vefurinn er í dag, en mér þótti verulega gaman að fá tilnefningu - og reikna með að hún hafi verið fyrir marel.com þó marel.is hafi verið presentaður þarna, mér til furðu.

Áður en ég fór út í kvöld sagði ég dóttur minni að ég væri að fara á verðlaunaafhendingu og ef Marel myndi vinna kæmi ég sennilega heim eftir mánuð, ennþá verulega drukkin. Ef Marel myndi ekki vinna kæmi ég heim eftir klukkutíma og við myndum horfa á Life of Brian saman. Henni leist ljómandi vel á þetta plan.

Hún veit er að ég er arfaslappur drykkjumaður og hún veit líka að ég setti endurnýjun á árskorti í líkamsrækt í fjárlögin fyrir febrúar svo ég fer sennilega frekar að æfa um helgina en á fyllerí.

Annars var þetta mjög flott umgjörð í ár utanum vefverðlaunin, haldið í Hafnarhúsinu. Ég komst því miður ekki á ráðstefnuna á undan eins og ég hafði ætlað mér, kom upp verkefni í vinnunni sem þurfti að sinna. Hitti marga snillinga í bransanum, m.a. einn úr dómnefndinni sem kvartaði sárann yfir að hafa ekki haft rænu á að hringja í mig svo ég gæti mútað honum. Helvítis rassgat var það. Besti vefurinn var siminn.is og besti fyrirtækjavefurinn var postur.is.

Það sem stóð uppúr hjá mér í kvöld var þegar Þórólfur Árnason, sem var heiðursgestur samkomunnar þar sem engin veit hver er ráðherra um þessar mundir, hvatti fólk til að taka þátt í umræðunni á vefnum, skipta sér af væntanlegu stjórnlagaþingi því það kemur okkur öllum við og taka þátt í lýðveldisbyltingunni á Íslandi.

Það þótt mér töff.

Núna ætla ég hinsvegar að tæta mig úr fötunum, sveipa um mig teppi, leggjast í sófann og glápa á Life of Brian með dóttur minni.

Og fuck it - líkamsrækt um helgina svo þetta er síðasti dagur í sukki, best ég panti pizzu líka..


| anna | 18:17 | permalink | comments (11) |
Demit
Laugardagur, 31. janúar 2009

Átti að vera á fundi klukkan tíu en vaknaði rétt fyrir ellefu. Classic.

Nú fæ ég aldrei að vita hvernig Davíð leið þegar fundur var settur. Hann segir okkur það alltaf. Mér finnst það snilldar leið að byrja fundi.

Síðast var hann nýkominn úr sundi og leið bara nokkuð vel.

Ætti ég að hringja í hann og spyrja?


| anna | 11:03 | permalink | comments (0) |

ravings í janúar 2009
monthly archive

links
blogs
links - web