Endilega láttu mig vita ef þú rekst á mig, búinn að vera leita í nokkur ár.
Nr. 1 | posted by: Maggi G |
17.12.2008 | 0:56:04 | [+] |
Ég held að ég sé ekkert að leita neitt sérstaklega heldur.
Nr. 2 | posted by: anna |
17.12.2008 | 1:27:09 | [+] |
Það er hrikalegt.. fyrir okkur sem eltast við birtuna frá blogginu þínu á hverjum degi.
En hvað getur maður sagt, seinustu vikur og mánuðir hafa ekki verið þér auðveldir að því virðist frá skrifunum þínum.
Lítið sem maður getur sagt nema komið með ofnotaðan frasa; ,, á svona tímum er best að horfa á allt það góða og jákvæða sem er í gangi en ekki gleyma sér í því slæma.."
Nr. 3 | posted by: Rúnar Ágúst |
17.12.2008 | 2:48:32 | [+] |
Það er í raun bara eitt ráð við þessu: Kampavín. Skál fyrir framtíðinni!
Skál! - aldrei þessu vant á ég ekki kampavín, mætti halda að það væri kreppa.
Tumi: Hvað myndi konan þín segja þegar þú kemur heim og segir "hæ ástin, þetta er Anna. Ég fann hana úti, má ég eiga hana?" (það fylgja mér tvö börn)
Ég skrifa aldrei allt Linda.
Nr. 7 | posted by: anna |
18.12.2008 | 0:37:02 | [+] |
Konan mín? Þessi elska mundi segja mér að setja ykkur í stóra herbergið, fyrst þið eruð þrjú. Svo mundi hún spyrja hvað ég ætli að gefa ykkur (að henni og öðru heimilisfólki meðtöldu) að borða í kvöld, og láta þig vita að þú verðir sjálf að sjá um þinn þvott, svona eftir að hún er búin að sýna þér hvar rúmfötin eru geymd. Eða ég ímynda mér það. Amk. gerði hún ekkert vesen þegar ég kom heim með kettlingafulla læðu í hitteðfyrra, ég sé ekki að þetta sé neitt öðruvísi. Eða, ha? Er það nokkuð?
Hvaða lyf? Ofnæmislæknir sem ég fór til fyrir ekkert svo löngu síðan sagði mér að ég get ekki búið með þessum dýrum þó ég talki lyf, ég muni fá krónískan astma á endanum.
Nr. 11 | posted by: anna |
18.12.2008 | 9:57:04 | [+] |
Kettlingafull !
Ertu kettlingafull oná allt annað !