www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Síma DRUSLA
Laugardagur, 27. desember 2008

Eitt af því fyrsta sem ég mun gera á nýju ári er að fá mér síma SEM VIRKAR!

AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA

Síminn slekkur stundum á sér þegar ég legg hann frá mér. Stundum er hann frosinn og ég kemst ekki að því fyrr en ég reyni að hringja úr honum og hef ekki hugmynd um hvað hann er búinn að vera frosinn lengi. Það kemur ítrekað fyrir að fólk sem ég er að tala við á msn (vegna vinnu) reynir að hringja í mig og segir að það sé slökkt á símanum, þegar það er kveikt á honum og hann liggur á borðinu fyrir framan mig!

Þetta er að gera mig geðveika.

Það er jafn áhrifaríkt að reyna að ná í mig í gegnum síma þessa dagana og að senda mér flöskuskeyti.

Ég er annars að byrja að skríða saman eftir jólapestina sem var hálsbólga dauðans, ógeðslegur og þurr hósti, höfuðverkur og tilheyrandi.

2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009


| anna | 16:43 |
comments

Hérna er heldur enginn sími sem virkar. Mér finnst það bara hreint afbragð. Mikilvægi síma er stórlega ofmetið.

Svo eru þeir svo helvíti dýrir. Ódýr skransími í Tiger kostar 3000 kall, og dualsími hjá símanum, bæði þráð og þráðlaus (konan vill ekki þráðlausa... konur) kostar 29þús. kall!!

Svoleiðis símar kosta $80 eða minna í fyrirheitna landinu.

Til að auka á friðsæld heimilisins þá virkar dyrasíminn heldur ekki. Það var óvænt aukaverkun af málningarfárinu sem konan stóð fyrir í aðdraganda jólanna. Tvímælalaust besta jólagjöfin þetta árið. Félagsskapur annarra en betri helmingsins er nefnilega líka stórlega ofmetinn.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 27.12.2008 | 18:41:54 | [+] |

Allt þetta sem þú lýsir Alan virkar, sé betri helmingurinn actually til staðar.

Nr. 2 | posted by: anna | 27.12.2008 | 18:47:06 | [+] |

Já, það er sennilega skilyrðið.

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 27.12.2008 | 19:07:01 | [+] |

Það er lykilatriði

Nr. 4 | posted by: anna | 27.12.2008 | 19:08:12 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web