Fimmtudagur, 25. desember 2008
Í gær kom fyrrverandi eiginmaður minn og borðaði hérna með okkur, tók upp pakkana sína og átti með okkur gleðileg jól.
Mér finnst gott að hafa börnin hjá mér á jólunum og mér fannst mjög gaman að hafa Tóta hérna en mér finnst líka gott þegar krakkarnir eru hjá pabba sínum eins og þau eru núna.
Ég ætla að taka daginn í að liggja í sófanum með teppi, lesa og borða afganginn af jólamatnum þegar ég verð svöng. Í kvöld ætla ég í dekurbað og maka á mig allskonar kremum og dóti og stinga mér svo undir hreina sæng og fara að sofa.
Eru jólin ekki dásamleg.
Ég fékk bækur í jólagjöf í ár og tvær leikhúsferðir, en gjöfin sem fékk mig til að springa úr hlátri var frá nágranna mínum. Hann er svo mikill snillingur. Þegar ég var búin að taka utanaf pakkanum kom í ljós kassi og þegar ég opnaði kassann var búið að festa í lokið á honum lítinn handspegil, límstifti og hárspöng með áföstu furðudóti. Ofaní kassanum fann ég Íslenskt blóðberg í poka, krukku með heimagerðum "Hlaupkenndum Sjálandspipar", grind til að steikja kjúkling í og kassa með eyrnatöppum. Í kassanum var líka orðsending:
Ástkæri granni.
Núna er kreppa, en það þýðir ekki að maður geti ekki skemmt sér. Innan á loki kassans er mín eigin uppfinning, svokallað kreppu-afþreyingar sett sem reddar málunum. Næst þegar þú ert að drepast úr blankheitum, þá enfaldlega sniffarðu límið, setur á þig hausdinglumdaglið og horfir svo á þig í speglinum útúr dópuð, þar til þú drepst úr hlátri.
Gleðileg jól elsku Anna. Lífið er skemmtilegra þegar þú ert hluti af því.
ps. eyrnatapparnir eru handa krökkunum
Utaná eyrnatappaboxinu stendur "Extra strong "last christmas" version"
Ég er ennþá að hlæja að þessu - og að hlusta á last christmas í lúppu.
MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHO