Miðvikudagur, 24. desember 2008
Ég átti eftir að kaupa eina gjöf í dag plús jólatré. Krakkarnir stungu uppá að við myndum kaupa minnsta jólatréð sem við fyndum, jafnvel eitthvað sem er ennþá í blómapotti, við erum að tala um rugl lítið tré. Þeim fannst það viðeigandi því þau búast við að fá frekar fáar gjafir þar sem þetta eru kreppujól og voru að hugsa að með svona lítið tré myndu jafnvel tveir pakkar virðast mikið undir því. Þegar við komum í Garðheima, af því öll jólatré voru búin þar sem við kaupum jólatré venjulega, kom í ljós að þar var útsala á jólatrám og öll tré á sama verði. Við skiptum strax um taktík, hverjum er ekki sama um það þó það séu fáir pakkar! Við ákváðum að kaupa stærsta tré sem við fyndum.
Einkasonurinn rak augun strax í tré sem er bæði ofboðslega hátt (skárum mökk ofanaf því) og svakalega þétt en það besta er að það er alveg temmilega stórt um sig fyrir litlu íbúðina okkar. Ekki horað tré, en ekki feitt heldur. Akkúrat passlegt. Þegar ég sá fótin á trénu fékk ég áfall, sá fyrir mér að ég yrði í þrjá daga að sarga neðan af trénu með þessari ónýtu sög sem til er á heimilinu, gæinn sem afgreiddi okkur var nú ekki lengi að finna ráð við því, stakk trénu í e.k. yddara og því næst tók hann upp vélsög og tók neðan af því á 5 sek flat. Við vorum ekkert smá impressed.
Ég kom trénu fyrir í fætinum, that's it. Frumburðurinn setti ljósin á tréð, þvílíkur lúxus að eiga svona gömul börn, og svo hjálpuðust þau að við að skreyta það.
Og þetta er sannarlega stærsta og fallegasta tré sem við höfum haft hérna.
Dagurinn fór í að þrífa, skreyta, búa til ís, þvo þvott, taka á móti gjöfum og koma gjöfum til skila.
Þau geta ekki beðið eftir að opna pakkana sína og ég get ekki beðið eftir að breiða úr mér í sófanum á aðfangadagskvöld og slaka á í hreinni íbúð, nýbúin að svoleiðis troða mig út af mat og nammi og ís og.. og.. og..
Einkasonurinn er að horfa á Disney myndina The Rescuers þegar myndin er tekin, í sófanum á bakvið tréð og undir sæng. Þegar ég er búin að birta þetta ætla ég að stinga mér undir sæng með honum...