Sunnudagur, 21. desember 2008
Margeir vakti mig klukkan hálf níu í morgun svo ég gæti skutlað honum og formalín-manninum á Bessastaði. Eftir staðgóðan morgunverð fór hann með mig niður í hjólageymslu að hitta formalín-manninn. Þar skilaði ég mínum morgunmat í fötu og slatta af matnum sem ég borðaði í gærkvöldi líka.
Ekki skil ég hvernig Margeir fær það út að þessi múmía hafi verið stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar. Hefur sjálfstæðisflokkurinn verið við völd í 200 ár?
Ég sagði Margeiri að þetta væri rugl og skipaði honum að skila múmíunni aftur í þjóðminjasafnið, fór sjálf að versla jólagjafir og náði að kaupa allar nema tvær, búin að pakka inn líka. Svona á að fara að'essu.
Margeri hlustaði auðvitað ekki á mig, tók stefnuna á Bessastaði - í strætó. Var handtekinn á Hlemmi. Margeir var fjarlægður úr vagninum ásamt líkinu sem hefur nú verið komið í vörslu þjóðminjasafnsins.
Lögreglan var að skila Margeiri heim og hann er niðurbrotinn yfir því að mótmælin hans hafi mistekist og hann sé aftur orðin einn í leynisamtökunum "björgum ríkisstjórninni". Þeir hafa fundið til með greyinu því löggurnar sögðu okkur að nú er búið að skipuleggja alvöru mótmæli við Bessastaði þar sem lifandi fólk verður að mótmæla forsetanum klukkan tvö á morgun, mánudag - og Margeir hefur tekið gleði sína á ný.
Fólkið mun skora á forsetann að samþykkja ekki fjárlögin en ég spái því að stór hluti þeirra muni jafnframt biðja hann að segja af sér.
Ef Dorrit verður í stuði verður sennilega boðið uppá léttar veitingar - í boði almennings.