Sunnudagur, 21. desember 2008
Ég náði Margeiri loksins af baðherberginu með því að ljúga að honum að Davíð Oddson væri að koma til að færa honum afklipptar táneglur af sér og veita honum heilaga smurningu með koppafeiti sem mun lækna kræklótta vininn sem hann er með á milli fótanna.
Þessu trúir hann.
Þegar hann kom fram sagði ég að Davíð væri á leiðinni og fór að pissa, þvílíkur léttir.
Á eftir fór Margeir að segja mér hvað hann er spenntur yfir þessum stuðningsmanni sem hann fann um daginn í formalíninu þó það sé ekki mikið líf í honum. Það virðist ekki skipta Margeir neinu máli og eftir að hann fann þennan meðlim (sem er víst þrælskakkur líka) hefur hann eflst heilmikið í trúnni á að hann geti fundið lausnina (á öllu) í færeyska þjóðdansinum og fullyrðir að í kjölfarið muni íslenska ríkisstjórnin sigrast á þeim erfiðleikum sem að henni steðja.
Margeir er líka búinn að bíta í sig að Ingibjörg Sólrún sé sólguðinn RA og muni bjarga jörðinni frá ísöld á næsta ári og akkúrat núna dansar hann hér um allt, syngur hástöfum lagið "Við Reykjavíkurtjörn" og veifar slæðum sem hann fann inní skáp. Ég velti fyrir mér hvort samtalsmeðferð myndi gera eitthvað fyrir hann.
Sem betur fer eru börnin sofnuð og ég keypti mér þráðlausa headphones í góðærinu.
Ég er döpur og ekki útaf Margeiri.
Það er margt að brjótast um í mér. Margt sem ég þarf að fá botn í.
Í gærkvöldi fór ég út að borða með frábærum hópi fólks og ég skemmti mér mjög vel. Ég drakk hvítvín, rauðvín, romm og viskí en ég fann ekki á mér. Ég er hænuhaus. Ég hefði átt að vera á rassgatinu, en ég fann ekki á mér.
Mér finnst það skrítið.
En nú er Margeir farinn að pota í öxlina á mér og rukka um Davíð svo það er best að ég berji hann í hausinn með pönnu þar til hann dettur út svo ég fái nú einhvern svefnfrið. Á morgun ætlar hann að dragnast með formalín-manninn með sér útá Bessastaði til að reyna að hræða forsetann til að segja af sér.
Í þessu máli fær Margeir allan minn stuðning, enda ætla ég að skutla honum!