www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Meiri veikindi og endanleg bilun
Miðvikudagur, 10. desember 2008

Sonur minn varð veikur seint á sunnudagskvöldið. Í gærnótt hóstaði hann mjög ljótum hósta. Í gærkvöldi virtist hann vera að hjarna við en í nótt gat hann mjög lítið sofið og var orðin svo ruglaður að ég fór með hann á barnaspítalann undir morgun. Þar var hann greindur með veirusýkingu sem veldur eitlabólgu. Vonandi gengur þetta yfir á nokkrum dögum, ef hann versnar á ég að koma með hann aftur.

Ég er farin að sjá jólin í hillingum og ég get ekki beðið eftir áramótunum. Ég hef ekki verið neitt átakanlega imponeruð fyrir áramótum hingað til en ég hlakka virkilega til að kveðja árið 2008. Ár vonbrigða, veikinda og þreytu.

Árið 2009 verður sennilega ekkert auðvelt en það verður ár stórfelldra breytinga - vonandi til hins betra.

Að öðru.

Það vita ekki margir af þessu en einn af dyggustu stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar er engin annar en Margeir Líndal. Hann mætti á svæðið við ráðherrabústaðinn til að hjálpa lögreglu að koma mótmælendum í burtu, en var handtekinn fyrir að hylja ekki andlit sitt. Ég var búin að segja honum að þetta myndi gerast, það kærir sig engin um að hafa Margeir fyrir augunum.

Ég hef það fyrir satt að Margeir sé að safna liði til að gera áhlaup á nokkur einkaheimili í kvöld. Margeir segist vita um nokkra öryrkja sem hann vill meina að beri ábyrgð á falli bankanna. Það fremstur í flokki er einhver Gunnar, áttræður fyrrverandi hafnarverkamaður sem tók víst 132 þúsund króna myntkörfulán til að kaupa sér flatskjá, þegar það var morgunljóst að hann ætti aldrei eftir að geta greitt fyrir hann og Margeir segist vita um þúsundir öryrkja og barna sem gjörsamlega misstu sig í nammikaupum á laugardögum.

Margeir segir að Davíð sé hin nýji messías og er búinn að veggfóðra ruslageymsluna með myndum af honum og í einu horninu er lítið altar með kertum og hárlokk sem Margeir segist hafa fengið hjá rakara sem klippti Davíð í haust. Ég held að hann sé að ljúga þessu, það sér hver heilvita maður að Davíð fer aldrei í klippingu.

Annars finnst mér skemmtilegasta samsæriskenningin hans Margeirs vera sú að færeyski hringdansinn sé ekki bara grundvöllur lýðræðis í heiminum heldur líka laumu uppskrift af hafragraut.

Yfirmaður geðdeildar segist ekki hafa leyfi til að loka Margeir inni því yfirvöld telja góðan möguleika á því að Margeir Líndal sé eini núlifandi stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar á Íslandi.


| anna | 17:52 |
comments

Hversu stórt prósent af þjóðinni er Margeir? Batnaðarkveðja til sonarins og sammála þessu með helvítis 2008. Burtu með það og komi það aldrei aftur!

Nr. 1 | posted by: Kristín | 10.12.2008 | 18:36:56 | [+] |

Stórt prósentuhlutfall?

Nú er stærðfræði ekki mín sterkasta hlið og hann er náttúrlega dvergur. Teljast þeir með?

Nr. 2 | posted by: anna | 10.12.2008 | 18:43:34 | [+] |

Já, já, dvergar teljast alveg með. Margeir gæti alveg "verið þjóðin", held ég því miður.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 11.12.2008 | 9:15:13 | [+] |

Ég hef enga trú á að Margeir sé þjóðin. Ekki nokkra.

Nr. 4 | posted by: anna | 11.12.2008 | 15:51:42 | [+] |

Æ, ég vona að Margeir sé ekki þjóðin, en hann á örugglega nokkra fylgismenn og þeir eru ekki allir dvergar.

Nr. 5 | posted by: Unnur | 11.12.2008 | 15:54:00 | [+] |

Ég er mun bjartsýnni núna og held að Margeir sé bara örbrot þjóðarinnar. Sem auðvelt verður að halda í skefjum í Nýja Íslandi.

Nr. 6 | posted by: Kristín | 11.12.2008 | 19:05:34 | [+] |

Margeir er annað og meira en tískufyrirbæri.

Ég ákvað að prófa tilveru hans á nokkrum útlendingum, fólki frá þremur mismunandi löndum, í kvöld. Sagði örfáar sögur úr íslensku efnahagslífi. Ekki viss um að ríkisstjórnin fái nokkuð í skóinn í kvöld.

Nr. 7 | posted by: Outlaw | 11.12.2008 | 21:48:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web