www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
The future isn't what it used to be..
Miðvikudagur, 03. desember 2008

Um helgina sannaði sig að þegar lögregla talar við mótmælendur er óþarfi að beita ofbeldi. Geir Jón lætur hafa eftir sér að lögregla "varaði fólk við í þetta skipti". Lögregla gerði meira en að vara við í þetta skipti, hún lét acutally sjá sig og talaði við fólkið. Þegar ég keyrði framhjá Seðlabankanum um helgina á meðan fólkið var inní bankanum sá ég meira að segja sjúkrabíl on stand by.

Batnandi löggum er best að lifa. Ég hef samt áhuga á að vita hvaða mannvitsbrekka var yfir aðgerðum - eða öllu heldur aðgerðaleysi lögreglu við Hlemm fyrir rúmri viku þegar frumburður minn varð fyrir árás lögreglu. Daginn eftir urðum við báðar fyrir árás á Internetinu - fyrir að verða fyrir árás lögreglu. Fólk er náttúrlega ekki í lagi.

Mig langar að þakka þeim sem vörðu okkur í skítkastinu sem ég fékk í bloggfærslunni hér á undan og mig langar líka að þakka þeim sem settu sig í samband við mig til að sýna stuðning eftir öðrum leiðum.

Ég er búin að halda þessari síðu úti í nærri sjö ár og hef á öllum þeim tíma aðeins einu sinni þurft að bregða á það ráð að blokkera einstakling í kommentakerfinu sem var þó bara ástsjúkur karlmaður með gráa fiðringinn. Sýnist ég þurfa að taka upp markvissar blokkeringar hér eftir og tel það svosem ekki eftir mér.

Annars hef ég lítið til að skrifa um. Nenni ekki að pumpa mig uppí sýndar gleði á blogginu þegar ég horfi á vini mína missa vinnuna, sjá frammá að missa íbúðirnar og margir eru byrjaðir að skipuleggja útför - til annars lands.

Þó ég sé ekki með nein myntkörfulán og þó ég eigi engar eignir sem eru að rýrna og sé ekki að verða gjaldþrota... eins og staðan er, þá langar mig mest að flytja út líka.


| anna | 21:47 |
comments

Halló Anna.
Blessuð vertu ekki að blokkera fíflin, þau dæma sig sjálf.
Sjálfur hefði ég sjálfsagt sent þér stuðningslínu í þessu undarlega/fáránlega orðaskaki við fyrri færslu hefði ég séð það, en var blessunarlega fjarri blogg- og netheimum síðustu daga.
En semsagt, hérmeð sendi ég þér minn hugheila og hundraðprósenta stuðning, jafnt gegn ofbeldinu sem dóttir þín var beitt, sem og van- eða óhugsuðu ofbeldinu sem kommentatorar við síðustu færslu beittu þig. Hálfvitar. En það er um að gera að leyfa þeim að gjósa, vanvitunum, og sulla út eigin hugarbuxnaklof, það sjá allir skammarblettina. Allavega þeir sem er þess virði að púkka upp á.
Eins og þú sagðir - sumt fólk er náttúrulega ekki í lagi.
En fólkið sem er í lagi - fólk eins og þú - má ekki láta það skítapakk skemma fyrir sér svo mikið sem hálfa sekúndu.
Baráttukveðjur,
þinn alltof tungutregi aðdáandi,
Tumi

Nr. 1 | posted by: Tumi | 4.12.2008 | 2:08:47 | [+] |

Tek undir með Tuma. Ágætt þetta grímuleysi á netinu. Ágætt að vera reglulega minntur á það hvað fólk getur verið viðbjóðslegt, að vera minntur á að láta ekki alltaf glepjast í trú sinni á að allir séu góðir inni við beinið.
Kær kveðja og lifii byltingin!

Nr. 2 | posted by: Kristín | 4.12.2008 | 9:52:28 | [+] |

Takk Tumi og Kristín.

Auðvitað dæmir fólk sig sjálft, enda ætla ég að láta drulluna við síðustu færslu standa.

Ég hef hinsvegar engan áhuga á að hýsa svona lið í framtíðinni og þar sem ég hef tæki til að henda fólki út, mun ég gera það. Hér í kommentunum hefur oft komið upp umræða þar sem fólk var ósammála. Umræðan hefur hinsvegar aldrei verið á svona lágu plani áður.

Ég myndi vísa fólki út af heimili mínu ef það sýndi af sér svona hegðun og fæstum myndi þykja það neitt undarlegt. Af hverju ættu að gilda aðrar reglur um heimasíðuna mína?

Nr. 3 | posted by: anna | 4.12.2008 | 10:26:26 | [+] |

Kæra Anna,
Ég tek undir með Tuma og Kristínu.
Ég verð alltaf svo hissa þegar ég sé slíka rætni...sérstaklega þegar ekki er hægt að koma fram undir nafni. Ég vona að þú látir þetta ekki á þig fá og haldir áfram að blogga á þinn heiðarlega hátt. Ég skoða síðuna þína reglulega og ber mikla virðingu fyrir þér.
Gangi þér vel með allt og gleðilega aðventu!

Nr. 4 | posted by: Ása | 4.12.2008 | 11:26:44 | [+] |

wave Vil líka senda þér smá stuðning. Ég las færsluna og mér blöskraði þetta allt saman og fann mikið til með ykkur. Ég las aftur ekkert af commentunum fyrr en í dag. Ég hefði betur sleppt því, alveg ömurlegt að sjá hvað fólk hefur mikla þörf á að ausa skít yfir fólk sem það þekkir ekki og veit ekkert um!


Takk fyrir ár af skemmtilegum lestri Anna, þú er eldklár og þræl skemmtileg!
Birna (ókunnuga)

Nr. 5 | posted by: Birna | 4.12.2008 | 13:33:10 | [+] |

Já, mér brá verulega þegar ég las síðustu færslu. Hef fram að þessu ekki trúað að lögreglan tæki upp á svona löguðu, og fannst sárt að þurfa að opna augun fyrir því.
Vona að dóttir þín sé búin að ná sér, flott hjá þér að kynna börnin þín fyrir því að það sé óhætt að hafa aðrar skoðanir en "kerfið"! smile

Nr. 6 | posted by: Hildur Ýr | 4.12.2008 | 17:36:11 | [+] |

Jibbí! Anna er komin aftur! smile Þú ert ómissandi í bloggrúntinum og hefur verið í örugglega 3 ár núna. smile embarassed

Nr. 7 | posted by: Jóhanna | 4.12.2008 | 19:35:51 | [+] |

sammála öllum ofangreindum. ég fyllist alltaf vanmáttarkennd þegar ég les komment eins og þau sem voru mörg við síðustu færslu þína. en les þig semsagt að staðaldri og hef gert lengi án þess endilega að vera dugleg að tjá mig.
ætli það sé ekki best að minna sig bara á að hæst bylur í tómri tunnu smile

Nr. 8 | posted by: Maja | 4.12.2008 | 19:44:18 | [+] |

Gaman að heyra frá alvöru fólki sem er að lesa, kærar þakkir smile

Nr. 9 | posted by: anna | 5.12.2008 | 0:12:42 | [+] |

Mikið er ég sammála. Það er dýpra á sýndargleðinni en venjulega og helst langar mann að skilja við landið í skítnum eftir vitleysingana sem fjöldinn kaus yfir sig.... best að sjá til. Maður verður eiginlega að hafa einhver ráð með að bjarga þá börnunum frá landinu líka. Hvers eiga þau að gjalda?...
p.s. styð þig heilshugar í að loka á vitleysingana og þætti um leið ekkert að því þótt þú sturtaðir niður í einu lagi "ræpunni" sem upp hlóðst við síðustu færslu. Ef inn á heimilið réðist hópur af vitleysingum sem skiti út um allt, þá myndi maður jú bæði huga að læsingum og hreinsa út smile

Nr. 10 | posted by: OK | 5.12.2008 | 11:38:22 | [+] |

Takk OK smile

Nr. 11 | posted by: anna | 6.12.2008 | 20:36:05 | [+] |

Ég er sammála þeim sem hér að ofan skrifa. Þessi ömurlega umræða sem skapaðist við síðustu færslu bara dæmir sig sjálf. Fólk er fífl og fólk er líka aumingjar þegar það leyfir sér að skíta svona yfir annað fólk undir nafnleysi.

Ég var ekki viss um að þú kæmir aftur en gleðst mjög við að sjá þessa færslu. Auðvitað blokkerar þú fólk ef þú vilt það. Þetta er þín síðan en þú átt samt ekki að þurfa þess. þetta er þín síða og við erum gestir þínir.

Vona að Jóhanna sé búin að ná sér og að þetta skiji ekki eftir ör á sálinni hennar. Svona atburðir gætu gert það, þegar unglingar missa traust á yfirvöldum en ég reikna með að hún hafi gert það alla vega tímabundið...

Hef hugsað mikið til ykkar og vertu viss um að það hafa margir gert

kveðja meinvill lurkur

Nr. 12 | posted by: Annakr(meinvill) | 9.12.2008 | 22:32:25 | [+] |

Takk Annakr. Mér sýnist Jóhanna vera búin að jafna sig, enda fékk hún mikinn stuðning þeim sem henni standa næst ásamt nemendum og kennurum í skólanum.

Ég fer ekki að láta svona mongo lið brjóta mig niður og fá mig til að hætta að blogga. Það væri stílbrot.

Gott að vita finna að fólk er að hugsa til okkar, kærar þakkir.

Nr. 13 | posted by: anna | 10.12.2008 | 18:19:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web