www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óstaðfest slúður?
Laugardagur, 27. desember 2008

Ég heyrði söguna svona:

Um mánaðarmótin sept/okt hringdi CIA í Geir eða Davíð vegna massívra fjármagnsflutninga frá landinu því grunur lék á að Ísland (banki á Íslandi), ásamt banka í London, væri þvottastöð fyrir hryðjuverkasamtök. Í kjölfarið var hryðjuverkalögunum beitt.

Þetta voru víst Kaupþingsmenn, ekki hryðjuverkasamtök, að mylja undir sig og sína. Allegedly.
--

Ég heyrði söguna fyrir um mánuði síðan. Ég veit ekkert hvað er til í þessu símtali en það er búið að fjalla um þessa fjármagnsflutninga áður. Nú hefur einhver tekið þetta saman og sent kæru inná borð Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og þar þykir ástæða til að rannsaka þessa fjármagnsflutninga og leikur grunur á því að margir hafi hagnast - enda um eitt hundrað milljarða að ræða. 100 milljarða.

Það er mjög mikilvægt að íslenska ríkið hafi aðgang að upplýsingum í lúx bönkunum, öllum upplýsingum. Ef þessir bankar þurfa að fara í gjaldþrot til að það gerist, þá þarf einfaldlega að leyfa því að gerast. Veit ekki betur en að þeir séu á hausnum hvort sem er.

Og ef þetta reynist satt, þá verður fróðlegt að sjá hverjir það voru sem fengu stærstu sneiðina af kökunni og hvort hinir sem fengu minna hafi mögulega verið þeir sem hefðu átt að beita sér fyrir að rannsaka málið. Ég er allavega mjög ánægð að þetta sé mál sem á að kafa ofaní - þó seint sé.

Hvurslax land er Ísland eiginlega orðið?


| anna | 22:47 |
comments

Þetta var MI6, ekki CIA.

Þeir skildu eftir "skilaboð" sem voru ótvíræð.

Takið vel eftir því hvort dagatalið í Kaffivagninum halli til austurs eða vesturs.

Nr. 1 | posted by: Outlaw | 28.12.2008 | 8:41:22 | [+] |

Það hefur misritast hjá þér setning sem átti væntanlega að vera svona.

Þetta voru víst Kaupþingsmenn, hryðjuverkasamtökin, að mylja undir sig og sína. Allegedly

toungue

Nr. 2 | posted by: do | 28.12.2008 | 10:11:46 | [+] |

Tjah það er spurning hvort þjófnaður flokkist undir hryðjuverk - EF þetta var þá þjófnaður. Kannski voru menn bara að borga fyrir ráðgjöf. Það er ekki gefins.

Svo er líka spurning hvort Dorrit hafi stolið Margeiri, ég hef ekkert séð hann síðan hann fór að mótmæla á Bessastöðum.

melodramatic

Nr. 3 | posted by: anna | 28.12.2008 | 14:24:11 | [+] |

Ég sagði Davíð þegar ég hitti hann að þetta væri ein af þeim sögum sem gengju á götunni og ef þetta væri satt bæri honum að upplýsa það en ef þetta væri rangt þætti mér við hæfi að hann leiðrétti þetta.

Hann sagðist ekki hafa heyrt þessa sögu fyrr.

Nr. 4 | posted by: Eva | 28.12.2008 | 18:49:37 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web