Ég þekki þetta lungnabólgudæmi vel. Stráksi minn fékk þetta, hann Gunnar Jónasson, yfirlæknir lungnadeildar á barnaspítalanum reddaði honum. Ætti að jafna sig á nokkrum dögum með lyfjum og plís, ekki hiksta á pústinu, Finnur er alveg hættur að fá svona, það er svo mikil hætta á því að þetta þróist út í astma. Margir skelkaðir við sterapústin en minn hefur ekki þurft að taka púst eða lyf í meira en 3 ár núna. Við vorum algerlega paranoid á tímabili, hann fékk púst þegar hann rak upp hóstakjöltur.
Ég er svo búin að fá lungnabólgu í tvígang, upp úr flensu. (hmm, eru þeir hættir að bólusetja?) Grautleiðinlegt!
Velkomin í félagsskapinn, en ég handleggsbraut mig mitt í allri jólatörninni og fannst ég einmit eins og þú vera búin að fá minn skerf af veikindum, vonbrigðum og öðrum leiðindum þetta árið. Ég mun hugsa til þín Anna mín þegar ég skýt upp gamla árinu og óska þess að 2009 færi okkur eitthvað betra, miklu betra, en það sem er að líða. Sendi batakveðjur héðan úr firðinum fagra.