Ef þú værir sett/ur einræðisherra yfir Íslandi, hverju myndir þú breyta?
| anna | 15:22 |
comments
Öllu?
Nr. 1 | posted by: Ibba Sig. |
28.12.2008 | 15:50:41 | [+] |
Og hvað myndu allar þessar breytingar hafa í för með sér? Hvað myndi breytast?
Nr. 2 | posted by: anna |
28.12.2008 | 15:53:21 | [+] |
Sem allir sannir einræðisherrar, þá myndi ég setja markið hátt strax í byrjun. Banna skammdegismyrkrið og rok/rigningarkombóið. Kannski væri bara nóg að banna rokið, mér finnst rigningin eiginlega bara nokkuð góð.
Síðan myndi ég kalla eftir fundargerðum ríkisstjórnarinnar, og minnisblöðum og fundargerðum Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Síðan myndi ég láta kaupa nokkra þumalputtayddara fyrir mig. Sennilega líka nokkra vísifingursyddara líka, þetta lið er alltaf að benda hvert á annað, það þarf að gera þær ábendingar beittari en verið hefur.
Já, svo myndi ég setja þig á listamannalaun svo þú þurfir ekki að sinna öðru dags daglega meðfram blogginu.
En ef ég væri ábyrgur einræðisherra þá myndi ég breyta stjórnskipun landsins. Láta kjósa forsætisráðherra sér, skilja algerlega á milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds, fara grundigt í gegnum reglur um ráðningarferli í opinber embætti og sjá til þess að skorið verði algerlega á hagsmunatengsl. Ég veit að vísu ekki hvernig það væri hægt, ég er ekki nógu gáfaður til þess, en ég væri nógu gáfaður til að setja krassandi refsilöggjöf um fjármálafyrirtæki og viðskiptalíf.
Nr. 5 | posted by: anna |
28.12.2008 | 16:24:51 | [+] |
Ég veit ekki hvort að það er til neinna bóta að kjósa forsætisráðherra beinni kosningu. Við höfum fyrirmynd að því í bandaríska stjórnkerfinu og ég sé ekki að reynslan af því sé betri en af hinu íslenska, nema síður sé.
En ég vil sjá landið sem eitt kjördæmi. Tel að það muni minnka kjördæmapot, auka mannauð á þingi og auka hlut kvenna í hópi þingmanna, svo að fátt eitt sé nefnt.
Það mætti líka skoða einhvers konar fyrirkomulag þar sem fólk gæti breytt röðun á lista sem það kýs, sem kæmi að einhverju leyti í veg fyrir alræði flokkanna.
Hvað er það úr bandaríska stjórnkerfinu sem við þurfum sérstaklega að varast? Að forsetinn geti bara setið í 8 ár? Að þar eru nokkuð skýr skil á milli löggjafans og framkvæmdavaldins? Að þar eru ríkar valdsheimildir hjá eftirlitsstofnunum ríkisins?
Ég held að við þurfum ekkert að óttast, allar breytingar væru til batnaðar hérna.
Alan er væntanlega ekki eini maðurinn með hugmyndir en hugmyndin sem hann setur fram er sú sem ég tel að við ættum að ræða alvarlega.
Það að breyta íslenska fyrirkomulaginu sem er að ég held kallað þingræði (parlamentary democracy) í það fyrirkomulag sem við er haft í Bandaríkjunum og kallast "Trias Politica" en er mun eldra en Bandaríkin enda frá Grikkjum og Rómverjum komið. Það fyrirkomulag grundvallast á þrískiptingu valdsins. Framkvæmdavald, löggjafarvald og dómsvald.
Í Bandaríkjunum er forsetinn kosinn til þess að leiða framkvæmdavaldið og mér þykir alveg koma til greina að við skoðum það hér og ætlumst þá til þess að sá sem kosinn yrði myndi velja með sér fólk sem væri menntað til þess og/eða hefði reynslu sem hentaði í að reka hina ýmsu hluta framkvæmdavaldsins. Fjárlögin væru samþykkt af löggjafanum og setti þannig framkvæmdavaldinu ákveðnar skorður.
Við getum alltaf spurt okkur að því hvort þetta fyrirkomulag kæmi í veg fyrir spillingu í svona litlu þjóðfélagi því hér má nánast alltaf finna tengsl á milli fólks sem gætu orðið til þess að útiloka fólk frá því að taka þátt í framkvæmd.
Til dæmis ef Anna yrði kostinn framkvæmdastjóri Íslands (forsætisráðherra) þá gæti hún varla valið mig til þess að sjá um dóms- og kirkjumál, og ekki Alan um viðskiptaráðuneytið, og ekki Evu um galdramálaráðuneytið. Og það þótt við værum öll "best" á okkar sviðum.
Nr. 8 | posted by: Séra Jón |
28.12.2008 | 18:19:51 | [+] |
Það fyrsta og líklega eina sem ég myndi gera væri að afnema einræði mitt og setja lög til að tryggja almenningi rétt til að rísa gegn einræðistilburðum með öllum tiltækum ráðum.
Ég hef reyndar oft gælt við þá hugmynd hversu skilvirkt upplýst einræði gæti orðið en kem alltaf að sömu hindruninni; sá sem er hæfur til að gegna slíkri stöðu, myndi aldrei fást til að taka það að sér.
Nr. 9 | posted by: Eva |
28.12.2008 | 19:00:15 | [+] |
Náungakærleikur er eitthvað sem ég sakna hjá Íslendingum. Ég er ekki viss um að geta sjálfur farið með það fyrirbæri, en ég hef reynt, þörfin hefur sjaldan verið meiri.
Annars dettur mér í hug:
Jafnræði.
Gegnumsæi.
Og það má gjarnan íra gott viskí fram af oddhvössum bjargbrúnum í kappi við íslenskt vatn. Við höfum verið kúguð og bæld í of langan tíma.
Náungakærleikur er eitthvað sem ég sakna hjá Íslendingum. Ég er ekki viss um að geta sjálfur farið með það fyrirbæri, en ég hef reynt, þörfin hefur sjaldan verið meiri.
Annars dettur mér í hug:
Jafnræði.
Gegnumsæi.
Og það má gjarnan íra gott viskí fram af oddhvössum bjargbrúnum í kappi við íslenskt vatn. Við höfum verið kúguð og bæld í of langan tíma.
Ég myndi byrja á því að koma af stað sleikmenningu. Fólk myndi heilsast með því að fara í sleik (komum í smá'sleik - menning). Þó ekki náin skyldmenni.
Mjög gott. Halli sýnir okkur með tillögum sínum að hann er ekki bara illa sveltur af ást og athygli, heldur líka að kenningin, um að það sé hægt að taka random fólk úr símaskránni, til að stjórna landinu, kann ekki góðri lukku að stýra. Þá er það komið á hreint.
Mér finnst hinsvegar sennilegt að það væri hægt að taka handfylli af fólki sem les anna.is og þeir myndu sennilega ekki klúðra stærra en fólkið sem situr núna.
Outlaw: það er fullt af náungakærleik hérna, hann hefur bara ekki verið á jafn flottum bílum og græðgin og farið minna fyrir honum. Það þýðir ekki að hann sé ekki til staðar.
Svala/Eva: ég held svei mér þá að það megi liggur við gefa öllu séns frekar en því kerfi sem við höfum í dag, þess vegna upplýstu einræði.
Séra Jón. Þetta er allt spurning um gegnsæi. Ef búið væri að ganga úr skugga um, með skynsamlegum leikreglum, að mín vinna og þeirra sem ég vinn með séu uppá borðinu og ekki í mína eigin þágu þá væri ekki vandamál ef ég og allir vinir mínir værum að vinna fyrir þjóðina. Það myndi líka hjálpa ef reglurnar væru þannig að ef ég drulla upp á bak þá beri mér að segja af mér svo einhver annar geti tekið við.
Til hvers þurfum við annars forseta? Ég er búin að gleyma því. Í ameríska kerfinu væri hann e.k. leiðtogi þjóðarinnar. Hvað tilgangi þjónar þetta hlutverk forseta á Íslandi í dag?
Nr. 13 | posted by: anna |
28.12.2008 | 21:28:05 | [+] |
Embætti forsetans var hugsað sem einskonar "konungembætti" sbr. Noregur, Svíþjóð og einkum þó Danmörk - enda fengum við stjórnskipunina þaðan í lýðveldisgjöf. Framkvæmdin varð hins vegar séríslensk, eins og svo margt annað, enda ríkja hér "séríslenskar aðstæður".