www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Allt að koma
Mánudagur, 22. desember 2008

Um miðnætti var frumburðurinn að leggja lokahönd á massívan piparkökubakstur.

Einkasonurinn er að verða frískur, fæ það vonandi staðfest þegar ég fer með hann til læknis á morgun.

Stofan er að verða að stofu en ekki veikindabæli.

Jólin eru gjörsamlega búin að fara fram hjá mér og ég trúi varla að þau séu á miðvikudaginn. Ég er ekki búin að finna neina jólastemmingu neinsstaðar. Svo sat ég í dag í Nornabúðinni á opnunartíma, aldrei þessu vant, og var viðstödd þegar nokkrir fastakúnnar komu að versla gjafir fyrir jólin. Svo yndislegt fólk að það var ekki hægt annað en að finna þessa skrítnu gleði tilfinningu sem vill fylgja jólunum.

Þó ég trúi ekki á frelsarann - nema þann sem ég geymi í náttborðsskúffunni minni - þá finnst mér jól góð hugmynd.


| anna | 0:38 |
comments

iss, maður þarf ekki að trúa á frelsarann til að trúa á jólin. gott að þú ert farin að finna jólastemningu og ennþá betra að Doddi sé að braggast smile

Nr. 1 | posted by: baun | 22.12.2008 | 8:06:41 | [+] |

Takk Baun, vona að jólin séu komin í þig líka smile

Nr. 2 | posted by: anna | 22.12.2008 | 22:59:27 | [+] |

Þetta reddast alltaf einhvern veginn.

Gleðileg jól Anna. Vona að þú og þín fjölskylda njótið jólanna í góðri heilsu.

Það þarf ekki að trúa að frelsara.
Það má trúa á hækkandi sól og þá staðreynd að jörðin ákvað að fara annan hring um sólina. Hún gæti tekið upp á því að segja sig úr þessu sambandi einn daginn og halda bara beint áfram út úr sporbaug!

Nr. 3 | posted by: enginn | 23.12.2008 | 12:04:54 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web