www.anna.is
ravings of a lunatic í desember 2008
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
The future isn't what it used to be..
Miðvikudagur, 03. desember 2008

Um helgina sannaði sig að þegar lögregla talar við mótmælendur er óþarfi að beita ofbeldi. Geir Jón lætur hafa eftir sér að lögregla "varaði fólk við í þetta skipti". Lögregla gerði meira en að vara við í þetta skipti, hún lét acutally sjá sig og talaði við fólkið. Þegar ég keyrði framhjá Seðlabankanum um helgina á meðan fólkið var inní bankanum sá ég meira að segja sjúkrabíl on stand by.

Batnandi löggum er best að lifa. Ég hef samt áhuga á að vita hvaða mannvitsbrekka var yfir aðgerðum - eða öllu heldur aðgerðaleysi lögreglu við Hlemm fyrir rúmri viku þegar frumburður minn varð fyrir árás lögreglu. Daginn eftir urðum við báðar fyrir árás á Internetinu - fyrir að verða fyrir árás lögreglu. Fólk er náttúrlega ekki í lagi.

Mig langar að þakka þeim sem vörðu okkur í skítkastinu sem ég fékk í bloggfærslunni hér á undan og mig langar líka að þakka þeim sem settu sig í samband við mig til að sýna stuðning eftir öðrum leiðum.

Ég er búin að halda þessari síðu úti í nærri sjö ár og hef á öllum þeim tíma aðeins einu sinni þurft að bregða á það ráð að blokkera einstakling í kommentakerfinu sem var þó bara ástsjúkur karlmaður með gráa fiðringinn. Sýnist ég þurfa að taka upp markvissar blokkeringar hér eftir og tel það svosem ekki eftir mér.

Annars hef ég lítið til að skrifa um. Nenni ekki að pumpa mig uppí sýndar gleði á blogginu þegar ég horfi á vini mína missa vinnuna, sjá frammá að missa íbúðirnar og margir eru byrjaðir að skipuleggja útför - til annars lands.

Þó ég sé ekki með nein myntkörfulán og þó ég eigi engar eignir sem eru að rýrna og sé ekki að verða gjaldþrota... eins og staðan er, þá langar mig mest að flytja út líka.


Wouldn't it be lovely..
Föstudagur, 05. desember 2008

Í kvöld fór ég á æfingu með bandinu eftir vinnu, þaðan fór ég út að borða með hópnum sem er búinn að vera á landinu þessa viku á fundum hjá Marel.

Ég hafði gott af þessu.

Henry Higgins hefur tekið ástfóstri við mig (í bili) og vill að ég flytji til sín til Bretlands. Sem er skondið í ljósi þess að við erum búin að eiga í haturssambandi núna í nokkra mánuði í gegnum tölvupóst. Hann er ósáttur við að ég ætli að loka síðunni hans.

Hann er sáttari við það núna.

Hann mun vera í skýjunum með það eftir hálft ár.


Blúskvöld í gær
Laugardagur, 06. desember 2008

Á blúskvöldinu laut fólk höfði og minntist Rúnars Júlíussonar sem lést aðfaranótt föstudagsins 5. desember.

Hann var engum líkur þessi maður.

Blúskvöldið var mjög vel heppnað. Margir sem tóku þátt síðast tóku þátt aftur núna og það bættust söngvarar í hópinn. Feimnisleg falleg stelpa steig á sviðið í grænbláum kjól og söng lög eftir Gary Moore og Tracy Chapman svoleiðis sundur og saman. Hljómsveitin er orðin svo þétt að þegar þeir djamma af fingrum fram þá getur maður ekki annað en slegið taktinn með eða klappað. Það vantar sko ekkert mojo í þetta band, það er á hreinu.

Magnað að þetta sé allt innanbúðarfólk hjá Marel.

Ég er búin að vera hálf ringluð undanfarið og er sennilega orðin hálf þunglynd. Er búin að fara í gegnum lýjandi veikindi og fékk sennilega áfall þarna um daginn.

Þegar ég fékk fréttir af því að Rúnar Júl væri dáinn sat ég stjörf í ca mínútu í stólnum í vinnunni. Þó ég hafi ekki þekkt manninn neitt persónulega þá þekki ég mann sem tengist honum. Merkilegt hvernig mannslíf setur hlutina stundum í samhengi.

Blús kvöldið gaf mér orku. Það þurfti ekkert minna en sal fullan af fólki í stuði til að koma inn smá hleðslu í batteríið.


| anna | 19:37 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Heitt bað
Þriðjudagur, 09. desember 2008

Froða
Gamall blús
Body lotion

Klikkar ekki.


Meiri veikindi og endanleg bilun
Miðvikudagur, 10. desember 2008

Sonur minn varð veikur seint á sunnudagskvöldið. Í gærnótt hóstaði hann mjög ljótum hósta. Í gærkvöldi virtist hann vera að hjarna við en í nótt gat hann mjög lítið sofið og var orðin svo ruglaður að ég fór með hann á barnaspítalann undir morgun. Þar var hann greindur með veirusýkingu sem veldur eitlabólgu. Vonandi gengur þetta yfir á nokkrum dögum, ef hann versnar á ég að koma með hann aftur.

Ég er farin að sjá jólin í hillingum og ég get ekki beðið eftir áramótunum. Ég hef ekki verið neitt átakanlega imponeruð fyrir áramótum hingað til en ég hlakka virkilega til að kveðja árið 2008. Ár vonbrigða, veikinda og þreytu.

Árið 2009 verður sennilega ekkert auðvelt en það verður ár stórfelldra breytinga - vonandi til hins betra.

Að öðru.

Það vita ekki margir af þessu en einn af dyggustu stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar er engin annar en Margeir Líndal. Hann mætti á svæðið við ráðherrabústaðinn til að hjálpa lögreglu að koma mótmælendum í burtu, en var handtekinn fyrir að hylja ekki andlit sitt. Ég var búin að segja honum að þetta myndi gerast, það kærir sig engin um að hafa Margeir fyrir augunum.

Ég hef það fyrir satt að Margeir sé að safna liði til að gera áhlaup á nokkur einkaheimili í kvöld. Margeir segist vita um nokkra öryrkja sem hann vill meina að beri ábyrgð á falli bankanna. Það fremstur í flokki er einhver Gunnar, áttræður fyrrverandi hafnarverkamaður sem tók víst 132 þúsund króna myntkörfulán til að kaupa sér flatskjá, þegar það var morgunljóst að hann ætti aldrei eftir að geta greitt fyrir hann og Margeir segist vita um þúsundir öryrkja og barna sem gjörsamlega misstu sig í nammikaupum á laugardögum.

Margeir segir að Davíð sé hin nýji messías og er búinn að veggfóðra ruslageymsluna með myndum af honum og í einu horninu er lítið altar með kertum og hárlokk sem Margeir segist hafa fengið hjá rakara sem klippti Davíð í haust. Ég held að hann sé að ljúga þessu, það sér hver heilvita maður að Davíð fer aldrei í klippingu.

Annars finnst mér skemmtilegasta samsæriskenningin hans Margeirs vera sú að færeyski hringdansinn sé ekki bara grundvöllur lýðræðis í heiminum heldur líka laumu uppskrift af hafragraut.

Yfirmaður geðdeildar segist ekki hafa leyfi til að loka Margeir inni því yfirvöld telja góðan möguleika á því að Margeir Líndal sé eini núlifandi stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar á Íslandi.


| anna | 17:52 | permalink | comments (7) | send to facebook |
Á msn-inu hennar Hörpu stendur:
Fimmtudagur, 11. desember 2008

"Harpa - hlakkar til að hitta Stekkjastaur"

Anna says: er fricking jólasveinn að koma í nótt??
Harpa says: já, hann er komin til mín!
Anna says: ó
Anna says: mæ
Anna says: god
Anna says: OG ÉG Í JOGGINGBUXUM
Anna says: dísus
Anna says: ætla að skella mér í pils og setja á mig gloss, heyri í þér seinna..


| anna | 23:18 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Meira
Föstudagur, 12. desember 2008

Sonur minn er með lugnabólgu.

Hvað kom eiginlega fyrir? Og hvenær ætlar þessu að ljúka?


| anna | 16:47 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Átta dagar til jóla, á Íslandi árið 2008
Þriðjudagur, 16. desember 2008

8dagartiljola.gif


| anna | 17:26 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Blúskvöld
Þriðjudagur, 16. desember 2008

marelbluskvold.jpg

Ladies and gentlemen, you're such a wonderful crowd. We'd like to play a little tune for you, it's one of my personal favorites. And I'd like to dedicate it to a young man, who doesn't think he's seen anything good today. Cameron Fry, this one's for you...

Danke schoen

Danke schoen, darling, danke schoen,
Thank you for all the joy and pain.
Picture show, second balcony, was the place we'd meet,
Second seat, go Dutch treat, you were sweet.

Danke schoen, darling, danke schoen,
Save those lies, darlin' don't explain.
I recall Central Park in Fall,
How you tore your dress, what a mess, I confess, that's not all.

Danke schoen, darling, danke schoen,
Thank you for walks down Lover's Lane,
I can see, hearts carved on a tree,
Letters intertwine, for all time, yours and mine, that was fine.

Danke schien, darling, danke schoen,
Thank you for seeing me again.
Though we go on our separate ways,
Still the mem'ry stays, for always,
My heart says, danke schoen.

Danke schoen, Oh darlin' danke shoen,
I said thank you for, mmmm, seein' me again.
Though we go on our separate ways, Still the mem'ry stays, for always,
My heart says, danke schoen.
Danke shoen, auf weidershein, Danke shoen.


| anna | 23:18 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Wonder
Miðvikudagur, 17. desember 2008

Ég er í tilvistarkreppu. Hef ekkert að skrifa um.

Held að ég sé búin að týna sjálfri mér.


Á heilanum
Föstudagur, 19. desember 2008

Ég keyrði niður Laugaveginn og hlustaði á Last Christmas og leið vel. Svo vel. Mér finnst þetta ekki sorglegt lag og ég veit að þetta er mögulega hræðilegasta jólalag allra tíma og ég mun sennilega fara til helvítis fyrir að segja að mér líði vel af því að hlusta á það.. en þannig er það og ég get ekki þóst vera neitt betri en ég er.

Í gær fór ég í te til vinar míns sem ég hef ekki hitt lengi og það var gott. Ég er búin að sakna hans. Hann tilheyrir fámennum hóp fólks sem mig langar ekki að lifa án.

Núna er ég með ákveðið lag gjörsamlega á heilanum og það stefnir í að ég muni nauðga því í einhvern tíma - í headphones af tillitssemi við krakkana.

Þetta lag mun verða mjög vinsælt í janúar - ef það er ekki orðið mjög vinsælt nú þegar.

"Baby.. it's been a long day baby..."

Ég sofnaði í sófanum í kvöld. Datt út eins og dauð fluga en fyrst ég vaknaði aftur ætla ég að þrífa hérna aðeins. Ekki veitir af.

Margeir segir að það séu að koma jól.

Hann er sækó.


| anna | 22:41 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Skakkur limur
Sunnudagur, 21. desember 2008

Þegar Margeir kom heim í kvöld skellti hann á eftir sér hurðinni í mega hysteríukasti, henti í mig bækling frá landlækni sem hann sagðist hafa fengið á leynifundi með hinum stuðningsmanni ríkisstjórnarinnar sem hann fann í formalíni á þjóðminjasafminu. Eftir þetta læsti hann sig inná baði. Hann óttast að hann sé mögulega með kræklóttan getnaðarlim.

Sæll.

Úr bæklingi landlæknisembættisins:

Er munur á kynfærum karla?

  • Kynfæri karla eru afar fjölbreytileg í útliti, en eitt eiga þau næstum öll sameiginlegt: Við kynferðislega örvun stækkar limurinn og verður býsna stífur viðkomu. Við stinninguna minnkar stærðarmunurinn, þannig að limirnir verði allir reiðubúnir og hæfir til samfara.

Hvað er skekkja á getnaðarlim?

  • Viss hópur manna getur átt í vandræðum með venjulegar samfarir, vegna þess að limur þeirra verður skakkur eða kræklóttur við stinningu.
  • Þetta kallast skekkja á getnaðarlim og lýsir vel ástandinu. Skekkjan getur vísað upp, niður eða til hliðar. Ef skekkjan er u.þ.b. 30 gráður eða meira geta orðið erfiðleikar við samfarir.

Hvað er til ráða ef erfiðleikar eru við kynmök?

  • Þeir sem eru með skekkju á getnaðarlim, sem truflar kynmökin ættu að gera eitthvað í málinu. Gott er að ræða við lækni.
  • Byrja skal á því að mynda liminn með polaroidmyndavél.
  • Fyrst skal taka nokkrar myndir af skekkjunni á reistum lim. Taka þarf að minnsta kosti eina mynd frá hlið, með því að setja myndavélina á borð í beinni hæð við liminn og beina henni að honum. Gæta þarf að réttri lýsingu og fjarlægð. Gott er að vera með köflóttan bakgrunn, t.d. flísar eða rúðustrikaðan pappír.
  • Taka ber því næst minnst eina mynd ofan frá og neðan frá, einnig við köflóttan bakgrunn.
  • Taka skal myndirnar með til læknisins og skurðlæknisins, sem á að lagfæra liminn. Ekki er ósennilegt að aðgerðin sé gerð í staðdeyfingu og limurinn réttur.
  • Við aðgerðina styttist limurinn örlítið.
----

Margeir vill meina að þetta sé skýringin á því af hverju hann pissar alltaf á skápinn við hliðiná klósettinu þó hann miði í klósettið og er brjálaður yfir því að hann þurfi að útvega sér polaroid vél fyrst það stendur hvergi að maður megi nota digital. Hann hefur líka þungar áhyggjur af því að þetta komi til með að gera að engu vonir hans um að vera tekin inn í færeyska þjóðdansafélagið.

Ég sé ekki alveg hvaða aðkomu limurinn á honum hefur að því máli og ætla ekki að spyrja. Sumt vill maður ekki vita.

Held ég sleppi því líka að segja honum frá því þegar ég og Nornin drukkum aðeins of mikið um daginn, urðum mökk ölvaðar, fórnuðum litlum dverghamstri og könguló - og göldruðum að þeir sem styðja ríkisstjórnina fái klamidýu eða kræklóttan lim. Það var nú bara smá grín.

Allavega.. hann er ennþá inná klósetti og neitar að koma út - og ég er að pissa í mig.

Allt eins.


Both sides
Sunnudagur, 21. desember 2008

Ég náði Margeiri loksins af baðherberginu með því að ljúga að honum að Davíð Oddson væri að koma til að færa honum afklipptar táneglur af sér og veita honum heilaga smurningu með koppafeiti sem mun lækna kræklótta vininn sem hann er með á milli fótanna.

Þessu trúir hann.

Þegar hann kom fram sagði ég að Davíð væri á leiðinni og fór að pissa, þvílíkur léttir.

Á eftir fór Margeir að segja mér hvað hann er spenntur yfir þessum stuðningsmanni sem hann fann um daginn í formalíninu þó það sé ekki mikið líf í honum. Það virðist ekki skipta Margeir neinu máli og eftir að hann fann þennan meðlim (sem er víst þrælskakkur líka) hefur hann eflst heilmikið í trúnni á að hann geti fundið lausnina (á öllu) í færeyska þjóðdansinum og fullyrðir að í kjölfarið muni íslenska ríkisstjórnin sigrast á þeim erfiðleikum sem að henni steðja.

Margeir er líka búinn að bíta í sig að Ingibjörg Sólrún sé sólguðinn RA og muni bjarga jörðinni frá ísöld á næsta ári og akkúrat núna dansar hann hér um allt, syngur hástöfum lagið "Við Reykjavíkurtjörn" og veifar slæðum sem hann fann inní skáp. Ég velti fyrir mér hvort samtalsmeðferð myndi gera eitthvað fyrir hann.

Sem betur fer eru börnin sofnuð og ég keypti mér þráðlausa headphones í góðærinu.

Ég er döpur og ekki útaf Margeiri.

Það er margt að brjótast um í mér. Margt sem ég þarf að fá botn í.

Í gærkvöldi fór ég út að borða með frábærum hópi fólks og ég skemmti mér mjög vel. Ég drakk hvítvín, rauðvín, romm og viskí en ég fann ekki á mér. Ég er hænuhaus. Ég hefði átt að vera á rassgatinu, en ég fann ekki á mér.

Mér finnst það skrítið.

En nú er Margeir farinn að pota í öxlina á mér og rukka um Davíð svo það er best að ég berji hann í hausinn með pönnu þar til hann dettur út svo ég fái nú einhvern svefnfrið. Á morgun ætlar hann að dragnast með formalín-manninn með sér útá Bessastaði til að reyna að hræða forsetann til að segja af sér.

Í þessu máli fær Margeir allan minn stuðning, enda ætla ég að skutla honum!


Mótmæli
Sunnudagur, 21. desember 2008

Margeir vakti mig klukkan hálf níu í morgun svo ég gæti skutlað honum og formalín-manninum á Bessastaði. Eftir staðgóðan morgunverð fór hann með mig niður í hjólageymslu að hitta formalín-manninn. Þar skilaði ég mínum morgunmat í fötu og slatta af matnum sem ég borðaði í gærkvöldi líka.

Ekki skil ég hvernig Margeir fær það út að þessi múmía hafi verið stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar. Hefur sjálfstæðisflokkurinn verið við völd í 200 ár?

Ég sagði Margeiri að þetta væri rugl og skipaði honum að skila múmíunni aftur í þjóðminjasafnið, fór sjálf að versla jólagjafir og náði að kaupa allar nema tvær, búin að pakka inn líka. Svona á að fara að'essu.

Margeri hlustaði auðvitað ekki á mig, tók stefnuna á Bessastaði - í strætó. Var handtekinn á Hlemmi. Margeir var fjarlægður úr vagninum ásamt líkinu sem hefur nú verið komið í vörslu þjóðminjasafnsins.

Lögreglan var að skila Margeiri heim og hann er niðurbrotinn yfir því að mótmælin hans hafi mistekist og hann sé aftur orðin einn í leynisamtökunum "björgum ríkisstjórninni". Þeir hafa fundið til með greyinu því löggurnar sögðu okkur að nú er búið að skipuleggja alvöru mótmæli við Bessastaði þar sem lifandi fólk verður að mótmæla forsetanum klukkan tvö á morgun, mánudag - og Margeir hefur tekið gleði sína á ný.

Fólkið mun skora á forsetann að samþykkja ekki fjárlögin en ég spái því að stór hluti þeirra muni jafnframt biðja hann að segja af sér.

Ef Dorrit verður í stuði verður sennilega boðið uppá léttar veitingar - í boði almennings.


| anna | 22:10 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Allt að koma
Mánudagur, 22. desember 2008

Um miðnætti var frumburðurinn að leggja lokahönd á massívan piparkökubakstur.

Einkasonurinn er að verða frískur, fæ það vonandi staðfest þegar ég fer með hann til læknis á morgun.

Stofan er að verða að stofu en ekki veikindabæli.

Jólin eru gjörsamlega búin að fara fram hjá mér og ég trúi varla að þau séu á miðvikudaginn. Ég er ekki búin að finna neina jólastemmingu neinsstaðar. Svo sat ég í dag í Nornabúðinni á opnunartíma, aldrei þessu vant, og var viðstödd þegar nokkrir fastakúnnar komu að versla gjafir fyrir jólin. Svo yndislegt fólk að það var ekki hægt annað en að finna þessa skrítnu gleði tilfinningu sem vill fylgja jólunum.

Þó ég trúi ekki á frelsarann - nema þann sem ég geymi í náttborðsskúffunni minni - þá finnst mér jól góð hugmynd.


Góðærisjólatré 2008
Miðvikudagur, 24. desember 2008

Jólatré 2008Ég átti eftir að kaupa eina gjöf í dag plús jólatré. Krakkarnir stungu uppá að við myndum kaupa minnsta jólatréð sem við fyndum, jafnvel eitthvað sem er ennþá í blómapotti, við erum að tala um rugl lítið tré. Þeim fannst það viðeigandi því þau búast við að fá frekar fáar gjafir þar sem þetta eru kreppujól og voru að hugsa að með svona lítið tré myndu jafnvel tveir pakkar virðast mikið undir því. Þegar við komum í Garðheima, af því öll jólatré voru búin þar sem við kaupum jólatré venjulega, kom í ljós að þar var útsala á jólatrám og öll tré á sama verði. Við skiptum strax um taktík, hverjum er ekki sama um það þó það séu fáir pakkar! Við ákváðum að kaupa stærsta tré sem við fyndum.

Einkasonurinn rak augun strax í tré sem er bæði ofboðslega hátt (skárum mökk ofanaf því) og svakalega þétt en það besta er að það er alveg temmilega stórt um sig fyrir litlu íbúðina okkar. Ekki horað tré, en ekki feitt heldur. Akkúrat passlegt. Þegar ég sá fótin á trénu fékk ég áfall, sá fyrir mér að ég yrði í þrjá daga að sarga neðan af trénu með þessari ónýtu sög sem til er á heimilinu, gæinn sem afgreiddi okkur var nú ekki lengi að finna ráð við því, stakk trénu í e.k. yddara og því næst tók hann upp vélsög og tók neðan af því á 5 sek flat. Við vorum ekkert smá impressed.

Ég kom trénu fyrir í fætinum, that's it. Frumburðurinn setti ljósin á tréð, þvílíkur lúxus að eiga svona gömul börn, og svo hjálpuðust þau að við að skreyta það.

Og þetta er sannarlega stærsta og fallegasta tré sem við höfum haft hérna.

Dagurinn fór í að þrífa, skreyta, búa til ís, þvo þvott, taka á móti gjöfum og koma gjöfum til skila.

Þau geta ekki beðið eftir að opna pakkana sína og ég get ekki beðið eftir að breiða úr mér í sófanum á aðfangadagskvöld og slaka á í hreinni íbúð, nýbúin að svoleiðis troða mig út af mat og nammi og ís og.. og.. og..

Einkasonurinn er að horfa á Disney myndina The Rescuers þegar myndin er tekin, í sófanum á bakvið tréð og undir sæng. Þegar ég er búin að birta þetta ætla ég að stinga mér undir sæng með honum...


Gleðileg jól
Miðvikudagur, 24. desember 2008

merryxmas.png


Hin myndin
Fimmtudagur, 25. desember 2008

Það komu tvær myndir til greina þegar ég var að velja jólakveðju fyrir vefinn minn í ár. Þessi sem ég birti í dag var "the safe bet" version.

Þetta er hin. Gjöfin sem hittir í mark.

hinmyndin.png


Gleðileg jól - ójá
Fimmtudagur, 25. desember 2008

Í gær kom fyrrverandi eiginmaður minn og borðaði hérna með okkur, tók upp pakkana sína og átti með okkur gleðileg jól.

Mér finnst gott að hafa börnin hjá mér á jólunum og mér fannst mjög gaman að hafa Tóta hérna en mér finnst líka gott þegar krakkarnir eru hjá pabba sínum eins og þau eru núna.

Ég ætla að taka daginn í að liggja í sófanum með teppi, lesa og borða afganginn af jólamatnum þegar ég verð svöng. Í kvöld ætla ég í dekurbað og maka á mig allskonar kremum og dóti og stinga mér svo undir hreina sæng og fara að sofa.

Eru jólin ekki dásamleg.

Ég fékk bækur í jólagjöf í ár og tvær leikhúsferðir, en gjöfin sem fékk mig til að springa úr hlátri var frá nágranna mínum. Hann er svo mikill snillingur. Þegar ég var búin að taka utanaf pakkanum kom í ljós kassi og þegar ég opnaði kassann var búið að festa í lokið á honum lítinn handspegil, límstifti og hárspöng með áföstu furðudóti. Ofaní kassanum fann ég Íslenskt blóðberg í poka, krukku með heimagerðum "Hlaupkenndum Sjálandspipar", grind til að steikja kjúkling í og kassa með eyrnatöppum. Í kassanum var líka orðsending:

Ástkæri granni.
Núna er kreppa, en það þýðir ekki að maður geti ekki skemmt sér. Innan á loki kassans er mín eigin uppfinning, svokallað kreppu-afþreyingar sett sem reddar málunum. Næst þegar þú ert að drepast úr blankheitum, þá enfaldlega sniffarðu límið, setur á þig hausdinglumdaglið og horfir svo á þig í speglinum útúr dópuð, þar til þú drepst úr hlátri.

Gleðileg jól elsku Anna. Lífið er skemmtilegra þegar þú ert hluti af því.
ps. eyrnatapparnir eru handa krökkunum

Utaná eyrnatappaboxinu stendur "Extra strong "last christmas" version"

Ég er ennþá að hlæja að þessu - og að hlusta á last christmas í lúppu.

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHO


| anna | 14:32 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Síma DRUSLA
Laugardagur, 27. desember 2008

Eitt af því fyrsta sem ég mun gera á nýju ári er að fá mér síma SEM VIRKAR!

AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA

Síminn slekkur stundum á sér þegar ég legg hann frá mér. Stundum er hann frosinn og ég kemst ekki að því fyrr en ég reyni að hringja úr honum og hef ekki hugmynd um hvað hann er búinn að vera frosinn lengi. Það kemur ítrekað fyrir að fólk sem ég er að tala við á msn (vegna vinnu) reynir að hringja í mig og segir að það sé slökkt á símanum, þegar það er kveikt á honum og hann liggur á borðinu fyrir framan mig!

Þetta er að gera mig geðveika.

Það er jafn áhrifaríkt að reyna að ná í mig í gegnum síma þessa dagana og að senda mér flöskuskeyti.

Ég er annars að byrja að skríða saman eftir jólapestina sem var hálsbólga dauðans, ógeðslegur og þurr hósti, höfuðverkur og tilheyrandi.

2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009
2009


| anna | 16:43 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Óstaðfest slúður?
Laugardagur, 27. desember 2008

Ég heyrði söguna svona:

Um mánaðarmótin sept/okt hringdi CIA í Geir eða Davíð vegna massívra fjármagnsflutninga frá landinu því grunur lék á að Ísland (banki á Íslandi), ásamt banka í London, væri þvottastöð fyrir hryðjuverkasamtök. Í kjölfarið var hryðjuverkalögunum beitt.

Þetta voru víst Kaupþingsmenn, ekki hryðjuverkasamtök, að mylja undir sig og sína. Allegedly.
--

Ég heyrði söguna fyrir um mánuði síðan. Ég veit ekkert hvað er til í þessu símtali en það er búið að fjalla um þessa fjármagnsflutninga áður. Nú hefur einhver tekið þetta saman og sent kæru inná borð Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og þar þykir ástæða til að rannsaka þessa fjármagnsflutninga og leikur grunur á því að margir hafi hagnast - enda um eitt hundrað milljarða að ræða. 100 milljarða.

Það er mjög mikilvægt að íslenska ríkið hafi aðgang að upplýsingum í lúx bönkunum, öllum upplýsingum. Ef þessir bankar þurfa að fara í gjaldþrot til að það gerist, þá þarf einfaldlega að leyfa því að gerast. Veit ekki betur en að þeir séu á hausnum hvort sem er.

Og ef þetta reynist satt, þá verður fróðlegt að sjá hverjir það voru sem fengu stærstu sneiðina af kökunni og hvort hinir sem fengu minna hafi mögulega verið þeir sem hefðu átt að beita sér fyrir að rannsaka málið. Ég er allavega mjög ánægð að þetta sé mál sem á að kafa ofaní - þó seint sé.

Hvurslax land er Ísland eiginlega orðið?


| anna | 22:47 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Komum í smá leik
Sunnudagur, 28. desember 2008

Ef þú værir sett/ur einræðisherra yfir Íslandi, hverju myndir þú breyta?


Alþingi - verndaður vinnustaður
Sunnudagur, 28. desember 2008

Ég er komin á þá skoðun að lang mikilvægasta verkefni Íslendinga í dag er að laga til í stjórnkerfinu á þessu landi. Ef þetta er ekki gert, mun ekkert gerast í öðrum málum hvort sem er. Fólkið í brúnni er gjaldþrota hugmyndafræðilega og margar stofnanir þess vanhæfar. Nærtækasta dæmið er Fjármálaeftirlitið.

1) flokkar. Burt með stjórnmálaflokkana, það sem hefur gerst er ekkert annað en þverpólitískt gjaldþrot. Kjósum fólk, ekki flokka.

2) þingmanna og ráðherrafjöldi. Það má skera niður um 50% eða jafnvel meira á þessum vettvangi. Þingmenn fái greidd laun eftir mætingu.

3) forseti. Ef forseti á að vera puntudúkka fyrir erlenda þjóðhöfðingja væri hægt að láta ungfrú Ísland sinna því hlutverki það ár sem hún er kosin.

4) kosningakerfi. Eitt atkvæði gildir sem eitt atkvæði, hvaðan sem það kemur af landinu.

5) frí alþingismanna. Þeir sem þurfa að fara heim í heyskap og þessháttar geta fengið sér vinnumann. Ef það stendur ekki undir sér að fá sér vinnumann þarf að endurskoða rekstur búsins frá grunni hvort sem er og jafnvel finna sér betri stað til að geyma konuna og börnin á. Alþingi á að starfa á öllum virkum dögum eins og venjuleg fyrirtæki. Það má taka frí í einn mánuð á sumrin.

6) atvinnupólitík. Þetta fyrirbæri ætti ekki að vera til. Ef þú ert búin að vera lengur en tíu ár í pólitík þarftu að leita þér að vinnu annarsstaðar - ef þú ert góður í því sem þú gerir ætti það ekki að vera vandamál.

7) skattalög. Það þarf að endurskoða skattalög frá grunni, leggja á hátekjuskatt þó ekki nema væri á þá sem eru með yfir milljón í laun. Endurskoða virðisaukaskattinn og koma á gagnsæu kerfi hérna sem virkar letjandi á þá sem svíkja undan skatti. Það myndi skila fleiri krónum í kassann að hafa gagnsætt og einfalt skattkerfi sem gerir það að verkum að fólk svíkur ekki undan skatti og er töluvert líklegra til árangurs en að hækka tekjuskatt á almenning sem er nú þegar skattpíndur til fjandans.

8) samgöngur. Það þarf einhvern sem hefur hag allrar þjóðarinnar að leiðarljósi en ekki hagsmuni lítilla krummaskuða útá landi til að teikna upp þetta plan. Að sjálfsögðu þarf að komast í krummaskuðin, góð leið væri þá að gefa þessu fólki einfaldlega jeppa, nóg er af þeim og það er ódýrara en að grafa göng í gegnum fjöll og myndi strax skila árangri. Laga verulega samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem mun fækka einkabílum.

9) eftirlaun þingmanna. Allar ríkisstofnanir fengu skipun um að skera niður um 10%, effective 1. janúar 2009. Breytingar á eftirlaunalögunum taka hinsvegar ekki gildi fyrr en í júní 2009 - "til að þingmenn fái tíma til að aðlagast breyttum aðstæðum" (verndaður vinnustaður). Þetta gefur þeim sem horfðu á þjóðarskútuna sökkva og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir það, tækifæri til að hætta og fara á okur eftirlaun, ef þeir hætta áður en júní rennur upp. Fyrir það fyrsta þá á að ógilda þessi lög. Punktur. Í öðru lagi þarf engin neinn tíma til að venjast einu eða neinu, þegar lögin eru gerð ógild munu lífeyrisréttindi ráðamanna breytast til samræmis við kjör annarra í landinu - afturvirkt. Það er jafn einfalt og að setja neyðarlög á bankana með ákvæði um að það sé ekki heimilt að fara í mál við íslenska ríkið vegna málsins. End of story. Ef fólk óttast að fá almenning upp á móti sér við þennan gjörning má setja eftirlaunalögin í þjóðarkosningu, einfalt: með eða á móti.

Það er ekkert of "flókið" eða "erfitt" að framkvæma breytingar hér. Við erum fámenn þjóð og allt eru þetta mannanna verk sem hægt er að laga til eða afmá með öllu.

Það er orðið þreytt að stjórnmálamenn séu hér svífandi um eins og einhverjar puntudúkkur í opinberum veislum og einkaþotum (Nato) en þegar allt fer til fjandans hleypur þetta í hringi eins og höfuðlaus hænsni og veit ekkert hvað á að gera.

Hvaða RUGL er það að úthluta 60 milljónum í styrk til stjórnmálaflokka þegar verið er að skera allt niður? Hvernig dettur fólki svona kjaftæði í hug?

Stærsta vandamálið eru ekki auðmenn eða bankamenn. Stærsta vandamálið á Íslandi í dag eru getulausir atvinnupólitíkusar og kerfi sem stuðlar að því að völd safnist á hendur mjög fárra einstaklinga.

Einungis þegar kerfinu okkar hefur verið breytt þannig að þeir sem eru við stjórn búi við eitthvað aðhald er kominn grunnur til að laga allt hitt sem að er. Meðal annars koma í veg fyrir að örfáir siðlausir einstaklingar geti rænt landið eins og við erum að horfa uppá núna, í skjóli fólksins sem á að stjórna hérna. Það þarf líka að vekja almenning því þetta kemur okkur öllum við. Tökum upp markvissar þjóðarkosningar í umdeildum málefnum og eyðum frekar púðri í að kynna hluti fyrir almenningi en að borga einhverjum kverúlöntum fyrir að rífast um þá í gömlu húsi við Austurvöll.

Við erum 319.756 þúsund hræður í landi sem er fullt af orku og sjórinn í kringum okkur er fullur af mat. Hér ættu allir að geta haft það rúmlega meira en gott.

Mæli svo með þættinum "Sunnudagskvöld milli jóla og nýjárs" þar sem Eva María ræðir við Pál Skúlason prófessor í heimspeki.


| anna | 22:33 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Oh takk!
Mánudagur, 29. desember 2008

Frumburðurinn var að koma heim frá vinkonum sínum. "You got mail" sagði hún og rétti mér umslag sem hún fann í póstkassanum.

Inní umslaginu var jólagjöf.

Þetta þótti mér vænt um, kærar þakkir J.


| anna | 21:55 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Úrslit
Mánudagur, 29. desember 2008

Eftir æsispennandi keppni höfum við einkasonurinn komist að því að hvorugt okkar getur sleikt á sér olbogann. Demit.

Ég get hinsvegar sleikt á mér öxlina! Vúhú!

MÚHOHOHOHOHOHOHOHOHOHOHO


| anna | 22:37 | permalink | comments (0) | send to facebook |
The line-up
Þriðjudagur, 30. desember 2008

Ég er búin að ákveða að nota árið 2009 til að klára það sem ég var byrjuð á, koma hreyfingu inní rútínuna. Í kvöld gerði ég líkamsræktarsamning við mann, til tólf mánaða.

Þetta verður keppni sem byrjar um miðjan janúar og lýkur um áramótin 2009/2010. Mælingar hefjast í mars því ég neita að byrja mælingar í janúar, það væri ávísun á massa þunglyndi.

Þó ég sé ennþá að fá svo slæm hóstaköst að mér liggur við að kasta upp, þá er ég laus við hálsbólguna og slenið sem henni fylgdi og þar sem þetta köst koma ekki nema 3x á sólarhring núna tel ég mig vera nokkuð heila heilsu.

Og mikið andskoti er það hressandi.

Ég veit vel að árið 2009 verður kannski ekki besta ár ever. Kreppan og allt það, en það þýðir ekki að það geti ekki orðið gott fyrir því. Mér finnst nú t.d. bara helvíti gott að vera á lífi og átti alls ekki von á því að lifa árið af hér á tímabili.
---

Það er reyndar ekki víst að Margeir sé á lífi þar sem ég hef ekkert heyrt í honum síðan hann fór á Bessastaði að mótmæla. Classic og engin til að fara út með ruslið hérna.

Það eru tveir möguleikar í stöðunni. Annaðhvort hefur Dorrit stolið honum til einkanota, eða forseti héralöpp hefur látið verða af því að koma upp dverga-gladiator bardagahring í kjallaranum á Bessastöðum. Djöfull væri það alveg eftir manninum að gera það að veruleika: "Killer dwarfs vs venture capital vikings".

Ætli sé markaður fyrir þetta? Margeir bítur alveg ef honum er sagt að gera það.


Í skóginum
Þriðjudagur, 30. desember 2008

Costa-Rica_0071.png



ravings í desember 2008
monthly archive

links
blogs
links - web