www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
búið
Miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Ég var að vakna. líður eins og ég sé mjög drukkin. þarf að styðja mig við hluti þegar eg geng. Fékk óskina mína. ég fór til tunglsins. Fékk tvö hylki til að gleypa. eftir hálftíma fékk ég svo eina hvíta töflu og eina fjolubláa sem áttu að leysast upp undir tungunni. Það sem ég man eftir það er ekki mikið.

ég veit ekki hvenær eg kom hiem held klukkan þrjú. man að pabbi keyrði mig heim og hjálpaði mér upp stigann. ég man ekkert mer frá því þegar ég kom heim. áður en ég fékk dópið fengu þau símann hjá pabba því þau sögðu að ég myndi ekki muna neitt svo þau myndu segja honum hvernig fór og hann myndi svo segja mér það á morgun. sögðu mér líka að ég mydni sofa mikið og að ég ætti að taka verkjalyf þegar eg vaknaði ef áhrifin af lyfjunum væru farin. sem þau eru klárega ekki.

ég man samt bits and pieces. man læti og surg svo datt ég út. eg man að læknirinn sagði tönnin hafi verið svo sýkt að hann tók hana alveg. og að þetta var rétta tönnin.

ég er með sauma en svo innarlega að það sér þá engin

þau voru svo góð við mig í dag hjá sérfræðingnum, létu mig hafa teppi svo mér væri ekki kalt og hughreistu mig fyrir aðgerðina. ég þurfti á því að halda. verulega gott fólk.

ætla að taka verkjalyf og leggjast í sófann aftur


| anna | 3:19 |
comments

Hvað kom fyrir?

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 12.11.2008 | 4:47:17 | [+] |

Vá, maður fær gæsahúð við lesturinn. Innsláttarvillurnar segja það sem segja þarf um ástand þitt. AAAaaaa við Önnu, vona að þú sofir núna og til hamingju með að hafa komist að rót vandans. Louise L. Hay segir að tannavesen komi út frá erfiðum ákvarðantökum, ég mundi það allt í einu um daginn en gleymdi að láta þig vita. Þú þarft að taka einhverja erfiða ákvörðun, og þú verður að gera það.

Nr. 2 | posted by: Kristín | 12.11.2008 | 7:39:47 | [+] |

úff, en gott að það virðist vera búið að komast fyrir þetta. Krossum alla putta!

Nr. 3 | posted by: hildigunnur | 12.11.2008 | 9:26:47 | [+] |

Aaaaa við Önnu indeed.

Nr. 4 | posted by: Don Pedro | 12.11.2008 | 11:32:46 | [+] |

Jæja, það er þá einum jaxlinum færra að bíta á. Það getur komið sér illa á þessum síðustu og verstu tímum.

En þú hlýtur að vera fegin að þetta er frá.

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 12.11.2008 | 14:55:29 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web