www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Stöðutékk
Föstudagur, 21. nóvember 2008

Spurðu þig.

Ert þú ánægður með það sem er að gerast í landinu?
Ertu sáttur við að ráðamenn, seðlabankinn, fjármálaeftirlitið og stjórnendur bankanna hafi ákveðið að loka augunum í stað þess að takast á við vandann áður en allt fór í þrot?
Ert þú sátt/ur við að sama fólkið og keyrði bankana í þrot sé þar ennþá í lykilstöðum?

Ef svarið er nei hvet ég þig til að koma á Austurvöll klukkan þrjú á morgun og mótmæla. Hvort sem þú tekur þér bara stöðu og fylgist þögul/l með, eða heldur á mótmælaskilti eða kastar eggjum í Alþingishúsið eða lemur sleif í pott. Það skiptir ekki máli.

Það eina sem skiptir máli er að mæta á svæðið ef þér er nóg boðið.
Það skiptir öllu máli.

Sjáumst.


| anna | 15:25 |
comments

Ef maður getur ekki mætt á svæðið, hvað þá? Getur þú urrað fyrir hönd annarra?

Nr. 1 | posted by: Outlaw | 21.11.2008 | 19:57:49 | [+] |

Outlaw, við skulum urra fyrir þig líka!

Mæti, þó ég geti ekki verið alveg allan tímann... gnasher

Nr. 2 | posted by: hildigunnur | 21.11.2008 | 23:32:41 | [+] |

Af hverju geturðu ekki mætt á svæðið?

Nr. 3 | posted by: anna | 22.11.2008 | 9:51:03 | [+] |

Er þetta retorísk spurning? wink

Ég fer niður í "minn bæ" og urra í huganum til Íslands. Tek krakkana með og fáum okkur heitt kakó á kaffihúsi.

Nr. 4 | posted by: Outlaw | 22.11.2008 | 10:53:37 | [+] |

Flott, urraðu bara nógu hátt og láttu krakkana hafa potta og sleifar til að slá í.

Búðu til hávaða! cool

Nr. 5 | posted by: anna | 22.11.2008 | 10:55:44 | [+] |

Við munum búa til hávaða, trúðu mér.

Gangi ykkur vel í dag.

Nr. 6 | posted by: Outlaw | 22.11.2008 | 11:06:50 | [+] |

Mjög gott

Nr. 7 | posted by: anna | 22.11.2008 | 11:25:58 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web