www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fullt tungl
Fimmtudagur, 13. nóvember 2008

Í eitt af skiptunum sem ég var að hlaupa í kjólinn þarna í ágúst gerðist atvik sem ég skrifaði aldrei um hér, en ég ætla að gera það núna því það er orðið relevant.

Ég og krakkarnir fórum út, ég byrjaði að hlaupa í áttina að uppáhalds trénu mínu sem stendur hérna rétt fyrir utan húsið við göngustíginn, en ég hætti strax að hlaupa því ég gat ekki betur séð en að það væri úlfur fyrir neðan tréð. Grár, risastór, úlfur. Ég fékk hálfgerða óraunveruleikatilfinningu og hélt að ég væri kannski búin að missa vitið þegar ég heyrði einkasoninn segja "þetta er úlfur mamma".

Ok, ég var ekki að sjá ofsjónir, en mér leið ekkert betur. Ég er ekki hrædd við hunda en mér sýndist þetta alls ekki vera hundur. Hann var ekki með ól og það var engin manneskja nálægt honum. Ég nam staðar og horfði í augun á dýrinu. Útskýrði fyrir sjálfri mér að það væri bara of flippuð hugmynd að það væri úlfur á Íslandi og frekar ósennilegt að hann væri þá fyrir utan húsið hjá mér. Í smá stund horfðumst við þarna í augu þangað til ég ákvað að þetta væri bara rugl, það væri sennilega ekkert dýr þarna og við Doddi værum bara orðin geðveik - en þá heyrði ég frumburðinn segja "já þetta er alveg eins og úlfur".

Jæja, sagði ég og horfði ennþá í augun á dýrinu sem virtist sallarólegt, ef þetta er úlfur þá er þetta úlfur. Komum að hlaupa. Svo byrjaði ég að hlaupa og hljóp framhjá dýrinu. Krakkarnir voru bæði á hjólum og hjóluðu á eftir mér. Þegar ég var að hlaupa niður göngustígin var Doddi samsíða mér á hjólinu, honum stóð ekkert á sama og var ekkert að fara neitt leynt með það en skyndilega snarþagnaði hann og hvað sem þetta var þarna undir trénu hljóp, á ég veit ekki hvað miklum hraða, framúr okkur og hvarf inní runna langt í burtu. Við höfðum öll snarstoppað. Ég hef aldrei á ævinni séð neitt dýr fara svona hratt yfir.

Nema núna er ég að skríða saman og í kvöld fór ég út í smá göngutúr. Ég er farin að sofa minna en finn að ég verð fljótt þreytt enda hef ég sennilega aldrei verið svona veik eins og undanfarið og búið að segja mér að fara mjög vel með mig á meðan þetta er að jafna sig.

Á leiðinni heim áðan mætti ég manni við þetta sama tré. Hann heilsaði mér og þegar ég leit upp snarstoppaði ég eiginlega ósjálfrátt því mér fannst ég kannast við hann, en það eina sem mér datt í hug var þessi úlfur. Hann sá að mér var brugðið og brosti, kynnti sig og við spjölluðum saman um hitt og þetta í smá tíma en mér leið eins og það væri eitthvað.. skrítið.. ég var skrítin. Eins og ég væri dáleidd. Sagði hluti sem, undir venjulegum kringumstæðum, ég hefði aldrei sagt.

Þegar ég kom heim var eins og þessi skrítnu áhrif rynnu af mér og nú man ég ekki alveg hvernig hann lítur út en ég man eftir úlfinum eins og ég hafi séð hann áðan en ekki fyrir tveimur mánuðum síðan.

Alveg stórfurðuleg lífsreynsla.


| anna | 23:47 |
comments

þú ættir kannski að kíkja í þessa bók á meðan þú ert að jafna þig:

http://www.kitwhitfield.com/thebook.html

átgætis skemmtun, þótt höfundur teygi lopann um of á köflum.

Nr. 1 | posted by: maggi | 14.11.2008 | 7:08:58 | [+] |

Ég held þú hafir þarna hitt úlfinn, nema núna var hann í mannslíkamanum.
kallast þetta ekki changeling eða eitthvað þannig?

Nr. 2 | posted by: Pjétur G | 14.11.2008 | 12:26:43 | [+] |

Var þetta ekki góðlegur úlfur?

Nr. 3 | posted by: Harpa | 14.11.2008 | 18:35:44 | [+] |

Ég veit það ekki, ég náði ekki að lesa þessi augu. Hann virtist ekkert vondur.

Þetta var mjög skrítið. Ætli það séu til menn sem eru úlfar líka?

Nr. 4 | posted by: anna | 14.11.2008 | 20:49:19 | [+] |

Út í göngutúr? Ertu viss um að þú hafir ekki verið á leið til hennar ömmu þinnar með vín og snittubrauð í körfu?

Nr. 5 | posted by: Eva | 16.11.2008 | 10:39:32 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web