Mánudagur, 10. nóvember 2008
Að horfa á fréttir þessa dagana er eins og að horfa á börn í sandkassa. Einhver skemmdi kastalann og allir keppast við að segja "ekki benda á mig".
Það eru allir orðnir þreyttir á þessu.
Persónulega finnst mér að það eigi að moka útúr fjármálaeftirlitinu og seðlabankanum strax, held að það væri fyrsta skrefið í rétta átt við að byggja upp eitthvað traust. Þetta er í raun alveg óþolandi og fólk er orðið mjög reitt.
Nú veit ég hinsvegar að það getur hreinlega verið mannskemmandi að vera reiður lengi án þess að finna reiði sinni farveg. Og alltaf versnar það. Menn eru orðnir svo margsaga að þeir minna einna helst á húsvörðinn í leikhúsinu í Harry og Heimir episode 4 (mp3).
Ég var að horfa á einn af aðalleikurunum í þessari atburðarrás í viðtali á netinu fyrir viku þegar ég varð svo reið að mig langaði mest að slíta af honum hausinn. Áttaði mig á að með réttu tækninni, þá er í raun ekkert því til fyrirstöðu. Ég hafði samband við Nornina í Nornabúðinni sem kom mér í samband við konu sem vildi taka að sér ákveðið verkefni og fyrstu eintökin seldust um helgina.
Svar Nornabúðarinnar við kreppunni:
Í Nornabúðinni á Vesturgötu er nú hægt að fá Auðmanninn, Bankastjórann, Seðlabankastjórann, Fjármálaeftirlitsmanninn, Ráðherrann, Útrásarvíkinginn og fleiri litla kreppukalla. Hvað þú gerir við þá er algjörlega undir þér komið. Þú getur lesið fyrir þá, sungið þá í svefn, farið með þá í bíó - eða pyntað og kvalið - jafnvel á meðan þú horfir á fréttirnar. Ég mæli sjálf með því að stinga í þá prjónum eða stappa á þeim, þannig endast þeir betur. Niðurstöður rannsókna benda til þess að þeir þoli illa íkveikju og aflimun. Það var samt mjög gefandi að prufa.
Kíktu á Litlu kreppukallana í Nornabúðinni og gefðu þér, eða einhverjum sem þér þykir vænt um, útrás í jólagjöf.