www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Staðan
Föstudagur, 10. október 2008

Ég er fyrrverandi bankastarfsmaður og hef fylgst með þessari ótrúlegu atburðarrás sem nú er kölluð "viðburðaríkasta vika í sögu Íslands" í gegnum fréttir eins og margir.

Ég skil að fólk sem hefur tapað mikið af peningum sé reitt en mig langar að minna á að bankarnir eru ekki fullir af gráðugu fólki sem hefur það eitt fyrir augum að svíkja út peninga, þeir eru þvert á móti fullir af venjulegu fólki sem vinnur sín störf vel og í dag sá ég frétt á vefnum um að starfsfólk Glitnis hafi komið saman fyrir framan bankann til að hughreysta hvort annað. Þarna er Glitni rétt lýst, það get ég vottað. Þau vita ekkert um hver staðan er, óvissan er algjör en í öllu þessu mótlæti þá fann fólkið sér tíma til að styðja hvort annað og mér finnst það virðingarvert.

Það er hryllilegt að horfa uppá þetta ástand. Engin veit hvað gerist næst, hvorki í Glitni, Landsbankanum, Kaupþingi eða öðrum fyrirtækjum í landinu.

Ég get ekki séð Bubba sem sameiningartákn fyrir þessa þjóð en skilaboðin sem hann reyndi að koma á framfæri eru nú samt mikilvæg. Gleymum ekki að peningar eru ekki allt sem skiptir máli. Ég vil frekar borða grjónagraut og slátur með fólkinu sem mér þykir vænst um en að sitja ein við borð með steik.

Frá því þessi atburðarrás hófst hefur starfsfólk Marel verið að hughreysta hvort annað og reyna að sjá einhverja glætu því þó fyrirtækið standi sterkt þá hafa þessar hamfarir áhrif á flesta sem á þessu landi búa og það skiptir máli að finna að fólk stendur saman. Hlúum að þeim sem okkur þykir vænt um og tökum starfsfólk Glitnis til fyrirmyndar, þjöppum okkur saman og hughreystum hvort annað.

Þetta verður ekki auðvelt og það má jafnvel vera að þetta sé jafnvel bara toppurinn á ísjakanum, en ef við stöndum ekki saman þá eigum við ekki séns.

Lifum þetta af.


| anna | 20:01 |
comments

Amen. Við erum harðduglegt fólk og lifum vel af einhverjar peningaþrengingar. Sitjum á matarkistu og getum fætt okkur og klætt.

Bara ekki sleppa IMF lausum á okkur, það er það eina sem ég hræðist núna...

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 10.10.2008 | 22:58:37 | [+] |

Sammála, það þarf að passa vel uppá hvernig aðkoma IMF er, ekki hvort, sýnist þeir verði þrautalendingin.

Hreint út sagt ótrúleg atburðarrás.

Nr. 2 | posted by: anna | 10.10.2008 | 23:09:01 | [+] |

Góð orð Anna.

Þetta hafa verið erfiðar tvær vikur í bankanum. En, þær hafa þjappað hópnum mikið saman.

Þrátt fyrir að ekki sé allt búið og eftir sé að kyngja nokkrum beiskum bitum finnst mér eins og tærnar séu að snerta botninn.

Og þá er bara ein leið. Upp aftur.

Í næsta kafla verður þjóðin umburðarlyndari og nægjusamari. Kannski raunsærri líka.

Nr. 3 | posted by: rato | 11.10.2008 | 0:22:47 | [+] |

Ég skal trúa að þetta sé búið að vera erfitt, og reikna með að þá sé vægt til orða tekið. Vona svo sannarlega að við séum komin á botninn og leiðin fari að liggja uppávið aftur.

Risa faðmlag til ykkar allra. Hugur minn er hjá ykkur.

Nr. 4 | posted by: anna | 11.10.2008 | 1:55:54 | [+] |

Íslendingar -- VIÐ -- vorum komin langt frá þeim gildum sem við höfum alist upp við, og sem taka mið af náungakærleika fremur ein þeirri einstaklingshyggju sem atriði eins og hlutabréfagengi ýta undir.

Ekki misskilja mig, en innst inni finnst mér þetta hafa verið gagnlegur lærdómur. Það er kannski allt í lagi að viðurkenna það úr því sem komið er, og engin ástæða til þess að réttlæta eitt eða neitt eins og alltaf er verið að gera.

Nr. 5 | posted by: Outlaw | 11.10.2008 | 5:59:39 | [+] |

Ég misskil þig ekki neitt og er sammála þér. Við erum flest öll sek um að lifa um efni fram, þó fæst okkar hafi gengið alla leið og keypt þyrlu eða einkaþotu.

Ég kvitta samt ekki undir það að allir hafi gleymt því sem mestu máli skiptir, mér fannst það einmitt koma svo vel fram í þessari frétt um starfsfólk Glitnis.

Nr. 6 | posted by: anna | 11.10.2008 | 10:51:30 | [+] |

Maður var nú samt farinn að heyra ótrúlegustu sögur sem bentu til sjúklegrar einstaklingshyggju. Til dæmis þegar Baun datt á hjólinu sínu og fólk gekk framhjá henni handleggsbrotinni, líka maðurinn stórslasaði í Höfðunum sem bílar sneiddu hjá. Þetta voru mjög sterk dæmi um þjóðfélag þar sem allir eru hræddir við að vera opnir, halda sér og sínu fyrir sig, byggja hærri girðingar, fá sér þjófavarnarkerfi... ömurlegt þjóðfélag sem máir burt mannleg gildi. Vitanlega var ást og vinátta alltaf þarna og auðvitað í hjörtum langflestra.
Þetta voru ekki skrímsli sem litu undan þegar fólk var í neyð, bara fólk sem var týnt í kapphlaupinu. Nú þurfa allir að setjast niður og endurskoða málin og það hýtur að vera gott.
Bankastarfsmenn voru heldur ekki skrímsli þegar þeir ráðlögðu fólki hinar og þessar sparnaðarleiðirnar, það er ekkert bara ojbara að spara, það sem er ojbara er auðsöfnun á kostnað annarra.
Ég hugsa stöðugt til ykkar allra þarna heima, finnst ég næstum svikahrappur að koma ekki og faðma ykkur öll en nota netið til að koma kveðju minni á framfæri.

Nr. 7 | posted by: Kristín | 11.10.2008 | 12:07:34 | [+] |

Takk Kristín. Þú ert ekki svikahrappur.

Og nákvæmlega, fólk var bara týnt í kapphlaupinu. Mér er alltaf svo minnisstætt atriðið úr kvikmyndinni Crash, þegar Sandra Bullock karakterinn dettur niður stiga og meiðir sig og vinkonan er of upptekin í nuddi til að koma henni til hjálpar. Margir eru að komast að því núna hverjir eru vinir og hverjir voru viðhlæjendur. Svona ástand reynir á hver þú ert.

Risa faðmlag til Frakklands!

Nr. 8 | posted by: anna | 11.10.2008 | 12:19:45 | [+] |

Með gagnlegur lærdómur átti ég við að þegar illa gengur kemur væntumþykja í ljós. Nokkuð sem var farið að gleymast sbr. dæmin sem Kristín nefnir.

Þorir fólk að láta sjá sig á stórum dýrum bílum á götum úti?

Nr. 9 | posted by: Outlaw | 11.10.2008 | 12:29:23 | [+] |

Jájá það er fullt af fólki sem lætur sjá sig á stórum dýrum bílum á götum úti. Sá fullt áðan á leiðinni útí Bónus.

Nágranni minn bloggaði um það hvernig upplifun það er að eiga Range Rover í dag. Það er orðið mjög sorglegt ef fólk má ekki eiga jeppa án þess að vera úthrópað postular græðgismusterisins.

Þetta er reyndar soft spot hjá mér. Ég er bíladellumanneskja þó ég eigi 9 ára gamlan bíl þá keypti ég hann vegna þess að mér finnst hann mökk illilegur og kraftmikill.

Ég tók meira að segja lán fyrir honum þegar ég keypti hann (1 mill), var boðið myntkörfulán en afþakkaði vegna þess að ég treysti ekki íslensku krónunni. Ákvörðun sem gæti mögulega orðið til þess að ég þarf ekki að selja hann.

Væntumþykju er hinsvegar slétt sama um hvernig bíl þú átt.

Nr. 10 | posted by: anna | 11.10.2008 | 13:31:09 | [+] |

Ég er svo innilega sammála mörgu sem hefur komið hér fram. Ekki síst Kristínu, enda er gestsaugað oft glöggt. Stúlka sem ég þekki og hefur búið í New York í meira en áratug var einmitt að ræða "nýju" Reykjavík við mig fyrir hálfu árið eða svo. Hún saknaði svo gömlu borgarinnar þar sem fólkið brosti, var tillitssamt í umferðinni og allt gekk ekki út á mislæg gatnamót og stóra bíla. Veit að þetta er soft spot hjá þér mín kæra Anna. Er ekkert á móti stórum bílum út af fyrir sig en hrokinn og dónaskapurinn í umferðinni hefur verið ævintýralegur undanfarið. Þegar maður á drengi á bílprófsaldri tekur maður e.t.v. sérstaklega vel eftir þessu. Krakkagreyin sem eru í æfingaakstri komast ekki 10 metra án þess að það sé flautað á þau eða þau fái hnefann. Ég vona innilega að þetta blessað ástand verði til þess að við hættum þessu fáránlega lífsgæðakapphlaupi og elskum börnin okkar meira en bílana, graníteldhúsin og fermetrafjöldann.

Nr. 11 | posted by: Sigga | 11.10.2008 | 20:14:50 | [+] |

Get svarið að ég hélt að IMF stæði fyrir Italian Mother Fucker.

Nr. 12 | posted by: Atviksorða-Anna | 11.10.2008 | 22:07:15 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web