www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Starting over
Laugardagur, 18. október 2008

Ég vaknaði hálf dofin í andlitinu, með höfuðverk og hita í gærmorgun. Hringdi í sérfræðinginn sem ég er á biðlista hjá, en hann var ekki við svo ég hringdi í heimilislækninn sem skrifaði uppá rótsterkt pensillín. Ég er ennþá með höfuðverk sem kemur og fer en ég er ekki með hita lengur og mér líður betur.

Ég get ekki tjáð mig um það sem er að gerast í þjóðfélaginu vegna þess að ég er of pissed off til þess.

Það er fleira sem pissar mér off þessa dagana en ástandið á Íslandi, en ég ætla ekki að skrifa um það hér. Skilst að fólk sem er á pensillíni verði skapvont, og það var ekki á það bætandi.

Ég er að hlusta á John Lennon syngja "Starting over" og vinna í hlutum sem ég hef ekki komist í að sinna í vinnunni.


| anna | 15:01 |
comments

Hver er eiginlega tannlæknirinn þinn eða "munnholssérfræðingur"? Þó minn tannlæknir hafi undarlegan húmor þá hef ég aldrei farið á biðlista hjá honum þegar eitthvað alvarlegt hefur bjátað á. Munnholssérfræðingurinn minn (ég á mér svolitla sögu þar líka, þeim þykir svo gaman að skera í gómana á mér) hefur heldur ekki látið mig bíða. Þarftu ekki að skipta um sérfræðinga?

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 18.10.2008 | 15:37:34 | [+] |

Ég vil ekki gefa upp nafnið hans hér á vefnum. Þú mátt hinsvegar alveg gefa mér upp nafnið á þínum sérfræðingi.

Mér finnst sennilegt að maðurinn sem ég er komin til sé mjög umsetin. Hann bætti mér við eldsnemma morguns, framfyrir eðlilegan opnunartíma til að meta mig upphaflega þegar mér var vísað til hans. Ég fékk svo tíma hjá honum stuttu seinna (af því einhver afpantaði) en það sem hann gerði þá bar engan árangur svo hann vill að ég fái tíma seinnipartinn þegar ég fæ tíma því hann veit ekki hversu stór aðgerð þetta er og ef ég kæmi inn um morgun gæti það riðlað öllum bókunum þann daginn.

Og það er allt sem ég veit. Það, og að ég þarf þessa aðgerð "í gær" (hans orð). Ég á tíma hjá honum 19. desember ef ekkert losnar fyrr.

Nr. 2 | posted by: anna | 18.10.2008 | 15:48:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web