Föstudagur, 03. október 2008
Fyrst, leyfi ég mér að segja.. S N J Ó R !
You gotta be fucking kidding me.
Skildi bílinn eftir þó ég væri ekki búin að drekka dropa af áfengi.
Í kvöld er ég búin að syngja, ég er búin að brosa - mikið - og ég er búin að dansa eins og andskotinn sjálfur í skóm sem voru of þröngir því ég var í of þykkum sokkum - af því þeir urðu að vera hvítir með blúndu. Grundvallaratriði. Og ég er búin að hugsa.
Á leiðinni heim sagði leigubílstjórinn mér hluti sem hann hefði ekki átt að segja mér, en ég kem ekki til með að hafa eftir svo það er allt í lagi og hann veit það. Honum fannst gott að tala við mig og þurfti að tjá sig um ákveðið mál við hlutlausan aðila. Þegar ég kvaddi gaf hann mér símanúmerið sitt og sagði mér að hringja í sig næst þegar ég þarf bíl. Ég kem sennilega til með að gera það. Mér leiðist að bíða eftir leigubílum.
Það voru teknar margar, margar, margar myndir af mér í kvöld og ég er búin að lofa að birta allavega eina hér. Þetta var ógeðslega flott Októberfest og búningarnir slóu í gegn - enda eru þeir klikkað flottir.
Konur ættu að gera meira af því að vera í kjólum.
Þegar Svenni sá mig í dag í múnderingunni hristi hann höfuðið, stóð upp og sagði "Þetta er besta dæmið um það sem ég hef alltaf verið að segja, þú ert ekki ein manneskja - ég hef aldrei hitt þig áður." Svo rétti hann mér höndina og sagði "Ég heiti Svenni."
Ég tók í höndina á honum og svaraði "Hæ Svenni, ég heiti Anna"
Þetta er rétt hjá honum. Ég er samt alltaf Anna.
Klukkan tólf: "Ég er búin að eyða kvöldinu í að reyna að kynna vélar fyrir mönnum.. og það eina sem ég hef heyrt þá segja við hvorn annan er.. "ætlar þú að tala við stelpuna í græna pilsinu, eða á ég að gera það?"
Ef þið kennið mér á græjurnar strákar, þá gæti stelpan í græna pilsinu kynnt vélarnar líka..
Mér finnst ekki erfitt að taka ákvarðanir í vinnunni. Það er allt hitt sem er að drepa mig. Og að vera stelpan í græna pilsinu.. er ekki að vinna með mér..