www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Neyðarlög
Fimmtudagur, 23. október 2008

Einkasonur: mamma, hvenær ætlar þú eiginlega að kaupa fyrir mig pókedex?
Anna: æ elsku Doddi minn.. ég á enga peninga, lánin mín hafa hækkað svo mikið útaf verðbólgunni og svo er eiginlega ekki hægt að versla dót frá útlöndum eins og staðan á krónunni er.
Einkasonur: en ég er búin að bíða síðan í sumar
Anna: ég veit og ég hefði átt að kaupa það í sumar, en ég vissi ekki að það kæmi svona mikil kreppa á íslandi og nú kostar pókedexið miklu meira
Einkasonur: nei, ég skoðaði það á ebay og það kostar ennþá það sama!
Anna: já ég veit, en af því gengi krónunnar er orðið svo lágt, þá..

Hvernig á tíu ára strákur að vita eitthvað um gengi krónunnar? Ég stillti lófunum upp í jafn mikilli hæð yfir borðinu og sýndi honum hvernig gengi gjaldmiðla gæti verið í jafnvægi og hvernig annar gjaldmiðillinn gæti svo fallið í verði og þá þyrfti miklu meira af honum til að verða jafn verðmætur og hinn. Ég er sennilega ekki rétta manneskjan til að útskýra þetta, en hann virtist taka útskýringar mínar trúanlegar.

Einkasonur: hvað verður kreppan lengi? hvenær verður hægt að kaupa pókedexið?
Anna: ég óttast að hún gæti jafnvel verið í... fjögur ár
Frumburður: fjögur ár! Ert þetta ekki bara þú og þín bjartsýni mamma?
Anna: ég er ansi hrædd um ekki, en ég vona auðvitað að hún gangi yfir á skemmri tíma.

Sonur minn var mjög leiður að sjá og á því augnarbliki tók ég ákvörðun. Gerðist sek um næstum nákvæmlega það sama og yfirvöld á Íslandi: að taka eign hlutlauss áhorfanda sem ber enga ábyrgð á ástandinu og láta renna uppí mitt klúður. Mér til varnar, þá sá ég klúðrið ekki fyrir eins og stjórnvöld hefðu átt að gera, ég var of upptekin í vinnu til að pæla í þessu í sumar og hef ekkert vit á fjármálaheiminum hvort sem er. Breytir því ekki að mér finnst skítlegt eðli mitt koma vel í ljós í þessu máli og mun ekki reyna að firra mig ábyrgð.

Anna: Í ljósi þess að það er kreppa og til að bæta Dodda upp tilfinningalegan og efnislegan skaða sem kreppan hefur þegar valdið honum hef ég ákveðið að setja neyðarlög hér á heimilinu.

Við frumburðurinn horfðumst í augu.

Frumburður: Þú ætlar að gefa honum pókedexið MITT - er það ekki?!!
Anna: Nei, en ég fer fram á að þú lánir honum það, gegn ákveðnum skilyrðum.
Frumburður: Ókey, ef ég fæ að draga upp samninginn
Anna: Doddi?
Einkasonur: Ég samþykki það
Anna: Hafðu í huga að samningurinn þarf að vera réttlátur og með skilyrðum sem tíu ára drengur getur uppfyllt.
Frumburður: Ókey
Anna: Þú dregur upp samninginn Jóhanna, ég les hann yfir, Doddi skrifar undir og málið er dautt
Einkasonur: og þegar kreppan er búin get ég keypt mér pókedex!
Anna: ég efast reyndar stórlega um að pókedex verði málið þá
Einkasonur: víst
Anna: nah.. ég hugsa að áhugamál þín verði orðin önnur þegar þú ert fjórtán ára
Einkasonur: NEHEI
Anna: ókey, ókey, auðvitað kaupir þú pókedex þegar kreppan er búin ef þú vilt gera það, að sjálfsögðu
Einkasonur: já!
Anna: Jóhanna, draw up the papers!
Frumburður: Considder it done.
Einkasonur: Vúhú!

Við héldum áfram að borða og þegar ég kyngdi matnum leitaði tungan á mér í skurðinn í gómnum.

Anna: Hey krakkar... ég held að húðin í gómnum á mér sé byrjuð að flettast af.
Frumburður: Takk fyrir að deila þessum upplýsingum með okkur mamma, fallega gert
Anna: Ekkert að þakka
Einkasonur: Ég er búin að missa matarlystina
Anna: False alarm! þetta var bara paprika!

---
Samningur um meðferð & umönnun á Pókedexi

Vegna nýlegrar umræðu um þann skaða sem yngsta barn heimilisins hefur hlotið af því að bíða eftir Pókedexi sem forráðamaður þess ætlaði að fjárfesta í, og vegna fjárskorts af völdum samdráttar hagvaxtar á Íslandi sem stendur í vegi fyrir slíkri fjárfestingu, stendur nú til að ljá honum Pókedex eldra systkinis til að geyma og njóta á meðan hann gengur í gegnum sitt Pókemon tímabil og áður en æska hans er glötuð að eilífu.

Til þess að undirritaður, eigandi Pókedexins, geti fallist á þetta fyrirkomulag skal yngra barn framfylgja órjúfanlegum skilyrðum er varða notkun og umönnun umrædds leikfangs:

a) Pókedexið má aldrei komast í tæri við skólatösku, sundtösku, leikfimitösku eða aðrar töskur tengdar akademískum ferli lántakanda.
b) Pókedexið skal ekki bleyta, geyma nálægt sandi, snjó, grasi eða öðrum svipað skaðlegum efnum sem hægt er að finna í náttúrunni.
c) Pókedexið skal aldrei skilið eftir í vörslu einstaklinga sem ekki eru blóðskyldir lántakanda.
d) Ekki má breyta stillingum eða gömlum vistuðum upplýsingum í Pókedexinu. Einföldun: ALLS EKKI ÝTA Á EDIT TAKKANN.
e) Þegar sá dagur rennur upp sem lántakandi kemur höndum yfir nýrri útgáfu af umræddu leikfangi, skal gamla Pókedexinu skilað í sama ástandi og þegar það var afhent lántakanda.

Lántakandi, sign

Eigandi, sign

Frail mother, sign
---

Samningurinn hefur nú verið undirritaður í votta viðurvist og Pókedexið verður afhent við hátíðlega athöfn næst þegar börnin dvelja hjá föður sínum.


| anna | 22:47 |
comments

hvað er eiginlega pókedex spyr ég nú bara???
svona svipað og hvað eru 9000 milljarðar eiginlega miklir peningar?


Nr. 1 | posted by: Vala | 24.10.2008 | 12:44:40 | [+] |

Börn eru snillingar í samningatækni.

Tímasetningen er yfirleitt mjög góð (þeim í hag), og þau vita að á eftir tveimur nei-um kemur já; þau setja markmiðið hátt og semja sig niður. Setji maður skilyrði (t.d. tiltekt) munu þau sjá til þess að þetta verði þeim ekki til trafala næst þegar 'samið' er.

Nr. 2 | posted by: Outlaw | 24.10.2008 | 17:11:17 | [+] |

Ef Anna væri ekki veik, gæti hún kannski farið og kennt aðgerðir 101 niðri í stjórnarráði.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 24.10.2008 | 22:57:54 | [+] |

Já Kristín, það má færa rök fyrir því að þetta sé ekki jafn svínslegt og það sem stjórnvöld eru að gera, þar sem eignin er einungis tekin að láni og verður skilað aftur - in mint condition.

Outlaw: mér fannst ég nú semja þetta helvíti vel af mér, þó ég sé náttúrlega sek um vanefndir og ætti að vera beitt dagsektum. Hann veit náttúrlega ekkert um dagsetktar ákvæði heimilisins, enda var það samið þegar ég var ein heima einhvertíma og blöskraði að engin hafði vaskað upp eins og ég bað um. Ákvæðinu hefur ekki verið beitt.

Vala: ég linka í umfjöllum um hvað pókedex er, en einföldun er: pókemona dót.

Ég er hætt að segja milljarðar, ég segi bara jarðar.

Nr. 4 | posted by: anna | 25.10.2008 | 13:39:16 | [+] |

Þú gerðir það, það er ég sem er veikur fyrir.

Ég fæ stundum svona dagsektir greiddar með sakleysissvip og ómótstæðilegum hvolpaaugum.

Ætli maður hafi ekki mist ákveðið uppeldismómentum með því að kaupa uppþvottavél.

Nr. 5 | posted by: Outlaw | 25.10.2008 | 14:08:53 | [+] |

Hah! Hvolpaaugu hafa ekkert í mig, ég beiti þeim hinsvegar sjálf á börnin miskunnarlaust og á svona krúsjal moments þar sem hvolpaaugun eru ekki alveg að ná home run, bæti ég við stút á munninn og kreisti fram tár.

Works every time.

Eini gallin er að maður þarf að vera á staðnum, virkar ekki í gegnum síma.

Nr. 6 | posted by: anna | 25.10.2008 | 14:13:47 | [+] |

En þú ert væntanlega brilljant í samningaviðræðum sjálf, myndi amk. ekki vilja selja þér bíl né hús. winky

Nr. 7 | posted by: Outlaw | 25.10.2008 | 14:23:17 | [+] |

Satt að segja hefur mjög sjaldan reynt á samningshæfileika mína. Ja.. nema þegar ég vil fá eitthvað, ég get verið ansi hörð, en tel mig ekki vera unfair.

Ég hef mikla réttlætiskennd (sem jaðrar við hemimsku) og virðist gera mína samninga við sanngjarnt fólk, ef ég miða við þá "díla" sem ég hef gert um ævina. Þau tilboð sem ég geri, þeim er yfirleitt tekið því fólk áttar sig strax á því að ég er ekki að leitast eftir að svína á neinum. Fair is fair.

Það skiptir mig máli að fólk fari sátt frá borði, sbr samning Jóhönnu við Dodda. Báðum aðilum verður að finnast þeir vera að fá eitthvað í sinn hlut. Doddi fékk pókedex að láni. Jóhanna fékk skemmtilegt kvöld þar sem hún skrifaði upp samning, fékk aðstoð og álit frá okkur Dodda og útúr þessu varð yndisleg samvera og þar sem var mikið hlegið.

Og fyrir Jóhönnu, sem veit að Doddi á eftir að fá leið á þessu tæki eftir viku, þá var þetta yndislega skemmtilega kvöld þess virði að lána pókedexið fyrir.

Mér finnst ég samt vera vondi kallinn í þessu máli.

Nr. 8 | posted by: anna | 25.10.2008 | 15:30:02 | [+] |

Ég get ekki séð vonda-kalla-hlutverkið -- þú varst 'facilitator', sér í lagi þar sem börnin þín geta eignað sér afraksturinn hvort á sinn hátt.

Pappír sem slíkur getur verið aukaatriði, en verður aðalatriði hér; þau læra að skilja betur um hvað í raun er verið að biðja og á hvaða forsendum. Ef þau skilja það, þá vita þau hvað 'integrity' er.


ps
(ónei, er hvorki uppeldis- né sálfræðingur, og er ekki aðr reyna vera það wink - er bara smátt saman að komast að því að common sense...er alls ekki svo common )

Nr. 9 | posted by: Outlaw | 25.10.2008 | 15:41:36 | [+] |

Pappírinn er einmitt aukaatriði, en að hafa dregið upp samninginn gefur eiganda leiktækisins ákveðið vægi - sem eigandinn á skilið.

Common sense er mjög langt frá því að vera common.

Og nú er ég orðin forvitin að vita hver þú ert, er það leyndarmál?

Nr. 10 | posted by: anna | 25.10.2008 | 15:51:16 | [+] |

Errr.

Má geyma þessa spurningu?

Nr. 11 | posted by: Outlaw | 25.10.2008 | 15:53:42 | [+] |

Já það má geyma hana smile

Nr. 12 | posted by: anna | 25.10.2008 | 18:27:36 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web