Ég er komin á bráðalista hjá sérfræðingi í tannlækningum fyrir aðgerð. Er með heiftarlega sýkingu í beini sem menn finna ekki upptökin á. Veit ekki hvenær ég kemst að, en ég er að vona að það verði sem fyrst, þó ég geti ekki sagt að mig hlakki til að fara í þessa aðgerð. Hann getur ekki sagt mér hvernig þetta fer fyrr en í aðgerðinni.
Sem betur fer eru yfirgnæfandi líkur á að það sé hægt að komast fyrir þetta.
Ég frábið mér hryllingssögum, trúi að þetta verði í lagi.
Nr. 6 | posted by: anna |
16.10.2008 | 11:02:55 | [+] |
Baráttukveðjur. Bölvað vesen svona sýkingar, farðu alveg rosalega vel með þig.
Persónulega hef ég fengið alveg nóg af 'lífsreynslu' í bili. Gangi þér vel í aðgerðinni
Nr. 8 | posted by: Miss G |
16.10.2008 | 13:59:25 | [+] |
Nei en gaman! Ég lenti í svona einu sinni. Tannlæknirinn minn er svo mikill húmoristi að meðan hann var að hreinsa gröftinn upp úr sárinu þá lék hann sér að því að halda bómullarhnoðrunum undir nefinu á mér svo ég fyndi nú örugglega lyktina af þessu.