The things I do for..
Miðvikudagur, 01. október 2008

Ein Bißchen Frieden
Wie eine Blume am Winterbeginn,
und so wie ein Feuer im eisigen Wind,
wie eine Puppe, die keiner mehr mag,
fühl ich mich an manchem Tag.
Dann seh ich die Wolken, die über uns sind,
und höre die Schreie der Vögel im Wind,
ich singe aus Angst vor dem Dunkel mein Lied,
und hoffe, daß nichts geschieht.
Ein bißchen Frieden, ein bißchen Sonne,
für diese Erde, auf der wir wohnen,
ein bißchen Frieden, ein bißchen Freude,
ein bißchen Wärme, das wünsch ich mir.
Ein bißchen Frieden, ein bißchen träumen,
und daß die Menschen nicht so oft weinen,
ein bißchen Frieden, ein bißchen Liebe,
daß ich die Hoffnung nie mehr verlier.
Ich weiß meine Lieder, die ändern nicht viel,
ich bin nur ein Mädchen, das sagt, was es fühlt.
Allein bin ich hilflos - ein Vogel im Wind,
der spürt, daß der Sturm beginnt.
Ein bißchen Frieden, ein bißchen Sonne,
für diese Erde, auf der wir wohnen,
ein bißchen Frieden, ein bißchen Freude,
ein bißchen Wärme, das wünsch ich mir.
Ein bißchen Frieden, ein bißchen träumen,
und daß die Menschen nicht so oft weinen,
ein bißchen Frieden, ein bißchen Liebe,
daß ich die Hoffnung nie mehr verlier.
Sing mit mir ein kleines Lied,
daß die Welt in Frieden lebt,
sing mit mir ein kleines Lied,
daß die Welt in Frieden lebt
Skál
|
|
 |
 |
Awwwww
Miðvikudagur, 01. október 2008
Þjóðstjórn
Fimmtudagur, 02. október 2008
|
|
 |
 |
Októberfest 2008
Föstudagur, 03. október 2008
Fyrst, leyfi ég mér að segja.. S N J Ó R !
You gotta be fucking kidding me.
Skildi bílinn eftir þó ég væri ekki búin að drekka dropa af áfengi.
Í kvöld er ég búin að syngja, ég er búin að brosa - mikið - og ég er búin að dansa eins og andskotinn sjálfur í skóm sem voru of þröngir því ég var í of þykkum sokkum - af því þeir urðu að vera hvítir með blúndu. Grundvallaratriði. Og ég er búin að hugsa.
Á leiðinni heim sagði leigubílstjórinn mér hluti sem hann hefði ekki átt að segja mér, en ég kem ekki til með að hafa eftir svo það er allt í lagi og hann veit það. Honum fannst gott að tala við mig og þurfti að tjá sig um ákveðið mál við hlutlausan aðila. Þegar ég kvaddi gaf hann mér símanúmerið sitt og sagði mér að hringja í sig næst þegar ég þarf bíl. Ég kem sennilega til með að gera það. Mér leiðist að bíða eftir leigubílum.
Það voru teknar margar, margar, margar myndir af mér í kvöld og ég er búin að lofa að birta allavega eina hér. Þetta var ógeðslega flott Októberfest og búningarnir slóu í gegn - enda eru þeir klikkað flottir.
Konur ættu að gera meira af því að vera í kjólum.
Þegar Svenni sá mig í dag í múnderingunni hristi hann höfuðið, stóð upp og sagði "Þetta er besta dæmið um það sem ég hef alltaf verið að segja, þú ert ekki ein manneskja - ég hef aldrei hitt þig áður." Svo rétti hann mér höndina og sagði "Ég heiti Svenni."
Ég tók í höndina á honum og svaraði "Hæ Svenni, ég heiti Anna"
Þetta er rétt hjá honum. Ég er samt alltaf Anna.
Klukkan tólf: "Ég er búin að eyða kvöldinu í að reyna að kynna vélar fyrir mönnum.. og það eina sem ég hef heyrt þá segja við hvorn annan er.. "ætlar þú að tala við stelpuna í græna pilsinu, eða á ég að gera það?"
Ef þið kennið mér á græjurnar strákar, þá gæti stelpan í græna pilsinu kynnt vélarnar líka..
Mér finnst ekki erfitt að taka ákvarðanir í vinnunni. Það er allt hitt sem er að drepa mig. Og að vera stelpan í græna pilsinu.. er ekki að vinna með mér..
|
|
 |
 |
Maaaaaaaaaassa flott!
Föstudagur, 03. október 2008
Bandið hans Sigsteins fór í gegnum smá makeover fyrir Oktoberfest.

Mottur eru að koma aftur. Meina.. bráðum verður ekki hægt að kaupa rakvélablöð hvort sem er - nema þú eigir einhverja milljarða.
Undir kodda.
...
Mánudagur, 06. október 2008
Mér líður eins og mér leið þegar ég horfði á fyrsta turninn hrynja 911.
Strange days
Þriðjudagur, 07. október 2008
|
|
 |
 |
Dancing in the moonlight
Þriðjudagur, 07. október 2008
Í gærmorgun tók ég þann al óhugnanlegasta símafund sem ég hef á ævinni tekið, en þegar ég var búin að sitja fyrir svörum í tvo klukkutíma náði ég storknum á mitt band. Tók tíma að þreyta þennan, en það tókst.
Seinnipartinn horfði ég á Geir tilkynna um komu Marsbúanna og seint í gær fór ég út að hlaupa eftir Ægissíðunni. Þegar ég lagði af stað var ég ekkert átakanlega hress - en eftir því sem ég hljóp lengra hresstist ég.
Meina.. ég er á lífi, sem mér finnst teljast til stórtíðinda, ég á tvö yndisleg börn, ég er ánægð í vinnunni, ég á engan ævisparnað sem ég þarf að óttast um, ekki skulda ég erlent lán, ekki er ég að tapa milljörðum í hlutabréfum og so far á ég fyrir salti í grautinn.
Þegar ég var að nálgast Nauthólsvík var ég komin í helv gott skap en þegar ég heyrði tónlist hægði ég á mér.
Rýndi í myrkrið og sá ekki betur en að þetta væri selur þarna á einum steininum. Hann heilsaði mér, sagðist heita Snorri og kynnti mig fyrir hljómsveitinni sinni sem voru þrír mávar, rotta og hvalur. Selurinn Snorri sagðist vera úr Kópavogi og sagðist myndi berja mig í höfuðið ef ég myndi spyrja "og er gott að búa í Kópavogi?" Áður en ég gat sagt nokkuð taldi einn mávurinn í.. og selurinn fór að syngja.
hey, hey baby
I wanna know
if you'll be my girl
Og hann var svo sætur.. að ég fór að dansa og áður en ég vissi af voru tveir ellilífeyrisþegar farnir að dansa með mér. Þegar lagið kláraðist voru tvær konur á mínum aldri, sætt unglingspar og einn gamall kall með hund komin í hópinn.
Ég brosti alla leiðina heim.
Það eru þessir litlu hlutir í lífinu sem eru svo yndislegir, og ég er ennþá með þetta lag á heilanum..
Hey Baby - Bruce Channel
hey, hey baby
I wanna know
if you'll be my girl
hey, hey baby
I wanna know
if you'll be my girl
when I saw you walking
down the street
I said that's the kind of
gal I'd like to meet
she's so pretty
Lord, she's fine
I'm gonna make her mine, all mine
hey, hey baby
I wanna know
if you'll be my girl
when you turned and
walked away
that's when I wanted to say
come on baby give me a whirl
I wanna know if you'll be my girl
hey, hey baby
I wanna know
if you'll be my girl
|
|
 |
 |
Til baka um ein 50 ár
Miðvikudagur, 08. október 2008
Well.. ég á allavega hatt sem hæfir tilefninu og lít svo á að ég sé prepared.

Af hverju hlustaði fjármálaeftirlitið ekki á geitina þegar ég sendi þeim linkinn á sínum tíma?
ohhhh
Ekki gleyma: you've got one life so handle it with care.
Hún leynir á sér þessi geit.
Spurningar sem vakna
Miðvikudagur, 08. október 2008
Frumburðurinn: Mamma!
Anna: já
Frumburðurinn: Af hverju ertu með uppskrift hérna af gyðingakökum?? Við erum ekki gyðingar!
Anna: nei ég veit, sko, kökurnar eru búnar til ÚR gyðingum
Frumburðurinn: ó þannig..
lengi getur vont versnað..
Föstudagur, 10. október 2008
GD says: bara láta þig vita það nýjasta
GD says: sem er að gerast í heimsmálunum
GD says: skv. dv.is þá er britney spears með munnangur
Anna says: guð
Anna says: minn
Anna says: góður
|
|
 |
 |
Staðan
Föstudagur, 10. október 2008
Ég er fyrrverandi bankastarfsmaður og hef fylgst með þessari ótrúlegu atburðarrás sem nú er kölluð "viðburðaríkasta vika í sögu Íslands" í gegnum fréttir eins og margir.
Ég skil að fólk sem hefur tapað mikið af peningum sé reitt en mig langar að minna á að bankarnir eru ekki fullir af gráðugu fólki sem hefur það eitt fyrir augum að svíkja út peninga, þeir eru þvert á móti fullir af venjulegu fólki sem vinnur sín störf vel og í dag sá ég frétt á vefnum um að starfsfólk Glitnis hafi komið saman fyrir framan bankann til að hughreysta hvort annað. Þarna er Glitni rétt lýst, það get ég vottað. Þau vita ekkert um hver staðan er, óvissan er algjör en í öllu þessu mótlæti þá fann fólkið sér tíma til að styðja hvort annað og mér finnst það virðingarvert.
Það er hryllilegt að horfa uppá þetta ástand. Engin veit hvað gerist næst, hvorki í Glitni, Landsbankanum, Kaupþingi eða öðrum fyrirtækjum í landinu.
Ég get ekki séð Bubba sem sameiningartákn fyrir þessa þjóð en skilaboðin sem hann reyndi að koma á framfæri eru nú samt mikilvæg. Gleymum ekki að peningar eru ekki allt sem skiptir máli. Ég vil frekar borða grjónagraut og slátur með fólkinu sem mér þykir vænst um en að sitja ein við borð með steik.
Frá því þessi atburðarrás hófst hefur starfsfólk Marel verið að hughreysta hvort annað og reyna að sjá einhverja glætu því þó fyrirtækið standi sterkt þá hafa þessar hamfarir áhrif á flesta sem á þessu landi búa og það skiptir máli að finna að fólk stendur saman. Hlúum að þeim sem okkur þykir vænt um og tökum starfsfólk Glitnis til fyrirmyndar, þjöppum okkur saman og hughreystum hvort annað.
Þetta verður ekki auðvelt og það má jafnvel vera að þetta sé jafnvel bara toppurinn á ísjakanum, en ef við stöndum ekki saman þá eigum við ekki séns.
Lifum þetta af.
|
|
 |
 |
Undur og stórmerki
Mánudagur, 13. október 2008


Það tók bara þrjú ár. Í góðæri.
|
|
 |
 |
Ding dong
Þriðjudagur, 14. október 2008
Hann setti fyrst upp skrítin svip, maðurinn sem skipti um dyrasíma og tengdi dyrabjölluna fyrir okkur í dag. Ég sat ásamt börnunum í sófanum með popp og kók og við fylgdust þögul með honum skrúfa gamla símann úr veggnum og tengja þann nýja.
Þögnin var orðin þrúgandi og maðurinn farinn að svita. Til að brjóta upp þögnina sagði ég: "Bjallan hefur sko ekki virkað í þrjú ár, langt síðan við höfum séð aðra manneskju - ég er ekki viss um að sonur minn hafi gert sér grein fyrir að það væri til fleira fólk en við þrjú".
---
Ástæðan fyrir því að við vorum öll heima er sú að börnin eru með flensu og það er verið að strauja vélina mína í vinnunni svo ég var að vinna heima - á milli þess sem ég hljóp niður til að hringja bjöllunni og segja hæ við krakkana í dyrasímanum.
Við skiptumst á.
Það þarf ekki mikið til að gleðja okkur.
Best af öllu: það er hægt að setja bjölluna á mute með einu handtaki, ef við förum að sakna góðærisins.
|
|
 |
 |
Ekki góður dagur
Miðvikudagur, 15. október 2008
Ég er ekkert rosalega sterk í augnablikinu.
There's always tomorrow.
Starting over
Laugardagur, 18. október 2008
Ég vaknaði hálf dofin í andlitinu, með höfuðverk og hita í gærmorgun. Hringdi í sérfræðinginn sem ég er á biðlista hjá, en hann var ekki við svo ég hringdi í heimilislækninn sem skrifaði uppá rótsterkt pensillín. Ég er ennþá með höfuðverk sem kemur og fer en ég er ekki með hita lengur og mér líður betur.
Ég get ekki tjáð mig um það sem er að gerast í þjóðfélaginu vegna þess að ég er of pissed off til þess.
Það er fleira sem pissar mér off þessa dagana en ástandið á Íslandi, en ég ætla ekki að skrifa um það hér. Skilst að fólk sem er á pensillíni verði skapvont, og það var ekki á það bætandi.
Ég er að hlusta á John Lennon syngja "Starting over" og vinna í hlutum sem ég hef ekki komist í að sinna í vinnunni.
|
|
 |
 |
mama mia
Sunnudagur, 19. október 2008
Fór í bíó í kvöld á mama mia. Pierce Brosnan.. maðurinn er ógeðslega flottur - þó ég hafi reyndar farið að hlæja þegar hann fór að syngja. Meina.. ég er bara mannleg. Ég fór hinsvegar næstum að gráta þegar Meryl Streep söng The Winner takes it all, og mér fannst verulega erfitt að horfa á þá senu.
Það er augljóst hvað er heillandi við þessa mynd. Það er ekki handritið, það er stemmingin. Diskó fílingurinn. Það er engin tilviljun að ég hlusta á diskó þegar ég er leið, það er ekki hægt að vera leiður þegar maður hlustar á eitthvað sem feels like bubble gum. Og þó tískan sé skelfileg óska ég þess eiginlega að hún komi aftur í allri sinni dýrð. Mér finnst það líka ekki ósennilegt, fólk mun þurfa á því að halda þegar kreppan skellur á fyrir alvöru - að klæða sig eins og marsbúar. Það er hressandi.
Annars hef ég verið að skrifast á við Íslending í dag sem býr erlendis og er jafn reiður og ég. Og eins og þessi vinur minn bendir á þarf að rannsaka það sem er að gerast í fjármálaheiminum á Íslandi af mönnum sem hafa aldrei stigið fæti á íslenska jörð - hafa helst engan Íslending hitt og hafa af þeim sökum engra hagsmuna að gæta. Spillingin hér er of mikil og nær út fyrir landsteinana en það hlýtur að vera hægt að finna einhverja hagfræðinörda sem búa í helli og finnst þetta áhugavert case study.
Og eru þið að #%$@ djóka í mér? Erlendir seðlabankar sökudólgurinn?? Djöfull er þetta ódýrt.
Ég er ekkert hissa á því að erlendir seðlabankar hafi ákveðið að gera ekkert fyrir Ísland þegar skíturinn barst í viftuna. Málsmetandi menn hér höfðu fengið rautt ljós ítrekað og engin gerði neitt í málinu.
Af hverju í fjandanum ættu aðrir seðlabankar að koma hlaupandi núna?
Auðmennirnir spiluðu eftir þeim reglum sem þeim voru settar, sem reyndust handónýtar. Það er ekki lögbrot að vera gráðugur og siðlaus, allavega ekki síðast þegar ég vissi.
Eins og málið blasir við mér eru hinir seku er hin heilaga þrenning: ríkisstjórnin, seðlabankinn og fjármálaeftirlitið.
Stjórnin og stjórnarandstaðan, þetta fólk ætti ekki að ná kjöri í hússtjórn.
Við erum að horfa á þverpólitískt gjaldþrot.
|
|
 |
 |
Skuldsetta, íslenska þjóð!
Sunnudagur, 19. október 2008
|
|
 |
 |
"Ég hef góðar og slæmar fréttir"
Mánudagur, 20. október 2008
- sagði sérfræðingurinn þegar hann hafði saumað góminn á mér saman, fjarlægt allt sótthreinsi dótið og tekið af sér furðulegu gleraugun með smásjánni. Hann setti stólinn minn í upprétta stöðu.
Góðu fréttirnar eru að þú þarft ekki implant fyrir augntönnina, slæmu fréttirnar eru að það er vegna þess að það er röng tönn. Upprunalega sýkingin er sennilega einum þremur tönnum innar og er búin að grassera hægt og rólega og smita útfrá sér. Við verðum að finna upprunalegu sýkinguna til að stoppa þetta en þar sem þú ert það mikið særð núna er ekki séns að finna hvaða tönn þetta er. Við sjáum þetta þegar þú kemur í saumatökuna eftir viku.
--
Þegar hann sagði þetta vissi ég ekki hvað ég átti að segja, svo ég sagði bara "ok". Þetta er basically martröð sem ég fæ staðfesta þegar ég lít í spegil og sé Frankenstein brosið mitt, en á sama tíma er ég svo þakklát og fegin fyrir að vera komin í hendurnar á manni sem getur allavega greint ástandið og hjálpað mér. Ég hélt að ég væri að verða geðveik, endalaus höfuðverkur, sýkingar í auga, eyrnaverkur. Alltaf hálf slöpp.
Ég þakkaði honum sennilega fjórum sinnum fyrir áður en ég fór, ég er svo fegin að vita allavega loksins hvað er að og þar sem þetta er unheard of (fyrsta tilfelli sem þessi sérfræðingur sér á sinni starfsævi) þá er ekkert skrítið að venjulegir tannlæknar hafi ekki fundið út hvað var að gerast.
|
|
 |
 |
Umhyggja
Þriðjudagur, 21. október 2008
Sonur minn er búinn að kúra við mig í sófanum í kvöld og strjúka á mér hárið á meðan ég dett inn og útúr meðvitund. Frumburðurinn eldaði kvöldmatinn og hefur borið í mig vatn og verkjalyf eftir þörfum.
Þessir krakkar eru gott dæmi um eitthvað sem er ekki hægt að kaupa fyrir peninga.
"Þó þú sért svona ógeðsleg núna mamma finnst mér þú samt vera besta mamma í heimi", hvíslaði Doddi. Hann segir þetta bara vegna þess að hann hefur engan samanburð, ég er ekki besta mamma í heimi, en ég er ekki sú versta.
Ég brosti til hans og hann setti upp skelfingarsvip og greip fyrir augun. Og þótt ótrúlegt megi virðast, þá fór ég að hlæja - því þegar ég brosi fyrir framan spegil eftir þessa aðgerð er hlátur ekki það fyrsta sem mér dettur í hug. En þegar ég fór að hlæja þá fór hann að hlæja líka og mér leið aðeins betur á eftir.
Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég ætti ekki þessi börn.
|
|
 |
 |
Under attack
Fimmtudagur, 23. október 2008
Ég komin með kinnholusýkingu núna ofaní hitt ruglið.
Vúbbdí-fokking-dú.
Læknarnir mínir (báðir) vilja ekki að ég taki inn meira pensillín, enda hefur það svosem engum árangri skilað, svo núna er ég bara á verkjalyfjum. Þeir vilja sjá hvort mitt eigið ónæmiskerfi haldi í mér lífinu fram á þriðjudag. Mér líður eins og ég sé science project. Fékk samt upp heimasímann og gsm símann hjá öðrum - just in case ef mér versnar mjög skyndilega. Sem er hughreistandi.
Það er bara eitt sem vinnur með mér núna og það er hvað ég er pissed off. Fyrrverandi maðurinn minn sagði að ég væri fallegust þegar ég er reið (skýrir margt, eftirá að hyggja) og þessa dagana er ég positively stunning - á milli þess sem ég ligg meðvitundarlaus í sófanum.
|
|
 |
 |
Neyðarlög
Fimmtudagur, 23. október 2008
Einkasonur: mamma, hvenær ætlar þú eiginlega að kaupa fyrir mig pókedex?
Anna: æ elsku Doddi minn.. ég á enga peninga, lánin mín hafa hækkað svo mikið útaf verðbólgunni og svo er eiginlega ekki hægt að versla dót frá útlöndum eins og staðan á krónunni er.
Einkasonur: en ég er búin að bíða síðan í sumar
Anna: ég veit og ég hefði átt að kaupa það í sumar, en ég vissi ekki að það kæmi svona mikil kreppa á íslandi og nú kostar pókedexið miklu meira
Einkasonur: nei, ég skoðaði það á ebay og það kostar ennþá það sama!
Anna: já ég veit, en af því gengi krónunnar er orðið svo lágt, þá..
Hvernig á tíu ára strákur að vita eitthvað um gengi krónunnar? Ég stillti lófunum upp í jafn mikilli hæð yfir borðinu og sýndi honum hvernig gengi gjaldmiðla gæti verið í jafnvægi og hvernig annar gjaldmiðillinn gæti svo fallið í verði og þá þyrfti miklu meira af honum til að verða jafn verðmætur og hinn. Ég er sennilega ekki rétta manneskjan til að útskýra þetta, en hann virtist taka útskýringar mínar trúanlegar.
Einkasonur: hvað verður kreppan lengi? hvenær verður hægt að kaupa pókedexið?
Anna: ég óttast að hún gæti jafnvel verið í... fjögur ár
Frumburður: fjögur ár! Ert þetta ekki bara þú og þín bjartsýni mamma?
Anna: ég er ansi hrædd um ekki, en ég vona auðvitað að hún gangi yfir á skemmri tíma.
Sonur minn var mjög leiður að sjá og á því augnarbliki tók ég ákvörðun. Gerðist sek um næstum nákvæmlega það sama og yfirvöld á Íslandi: að taka eign hlutlauss áhorfanda sem ber enga ábyrgð á ástandinu og láta renna uppí mitt klúður. Mér til varnar, þá sá ég klúðrið ekki fyrir eins og stjórnvöld hefðu átt að gera, ég var of upptekin í vinnu til að pæla í þessu í sumar og hef ekkert vit á fjármálaheiminum hvort sem er. Breytir því ekki að mér finnst skítlegt eðli mitt koma vel í ljós í þessu máli og mun ekki reyna að firra mig ábyrgð.
Anna: Í ljósi þess að það er kreppa og til að bæta Dodda upp tilfinningalegan og efnislegan skaða sem kreppan hefur þegar valdið honum hef ég ákveðið að setja neyðarlög hér á heimilinu.
Við frumburðurinn horfðumst í augu.
Frumburður: Þú ætlar að gefa honum pókedexið MITT - er það ekki?!!
Anna: Nei, en ég fer fram á að þú lánir honum það, gegn ákveðnum skilyrðum.
Frumburður: Ókey, ef ég fæ að draga upp samninginn
Anna: Doddi?
Einkasonur: Ég samþykki það
Anna: Hafðu í huga að samningurinn þarf að vera réttlátur og með skilyrðum sem tíu ára drengur getur uppfyllt.
Frumburður: Ókey
Anna: Þú dregur upp samninginn Jóhanna, ég les hann yfir, Doddi skrifar undir og málið er dautt
Einkasonur: og þegar kreppan er búin get ég keypt mér pókedex!
Anna: ég efast reyndar stórlega um að pókedex verði málið þá
Einkasonur: víst
Anna: nah.. ég hugsa að áhugamál þín verði orðin önnur þegar þú ert fjórtán ára
Einkasonur: NEHEI
Anna: ókey, ókey, auðvitað kaupir þú pókedex þegar kreppan er búin ef þú vilt gera það, að sjálfsögðu
Einkasonur: já!
Anna: Jóhanna, draw up the papers!
Frumburður: Considder it done.
Einkasonur: Vúhú!
Við héldum áfram að borða og þegar ég kyngdi matnum leitaði tungan á mér í skurðinn í gómnum.
Anna: Hey krakkar... ég held að húðin í gómnum á mér sé byrjuð að flettast af.
Frumburður: Takk fyrir að deila þessum upplýsingum með okkur mamma, fallega gert
Anna: Ekkert að þakka
Einkasonur: Ég er búin að missa matarlystina
Anna: False alarm! þetta var bara paprika!
---
Samningur um meðferð & umönnun á Pókedexi
Vegna nýlegrar umræðu um þann skaða sem yngsta barn heimilisins hefur hlotið af því að bíða eftir Pókedexi sem forráðamaður þess ætlaði að fjárfesta í, og vegna fjárskorts af völdum samdráttar hagvaxtar á Íslandi sem stendur í vegi fyrir slíkri fjárfestingu, stendur nú til að ljá honum Pókedex eldra systkinis til að geyma og njóta á meðan hann gengur í gegnum sitt Pókemon tímabil og áður en æska hans er glötuð að eilífu.
Til þess að undirritaður, eigandi Pókedexins, geti fallist á þetta fyrirkomulag skal yngra barn framfylgja órjúfanlegum skilyrðum er varða notkun og umönnun umrædds leikfangs:
a) Pókedexið má aldrei komast í tæri við skólatösku, sundtösku, leikfimitösku eða aðrar töskur tengdar akademískum ferli lántakanda.
b) Pókedexið skal ekki bleyta, geyma nálægt sandi, snjó, grasi eða öðrum svipað skaðlegum efnum sem hægt er að finna í náttúrunni.
c) Pókedexið skal aldrei skilið eftir í vörslu einstaklinga sem ekki eru blóðskyldir lántakanda.
d) Ekki má breyta stillingum eða gömlum vistuðum upplýsingum í Pókedexinu. Einföldun: ALLS EKKI ÝTA Á EDIT TAKKANN.
e) Þegar sá dagur rennur upp sem lántakandi kemur höndum yfir nýrri útgáfu af umræddu leikfangi, skal gamla Pókedexinu skilað í sama ástandi og þegar það var afhent lántakanda.
Lántakandi, sign
Eigandi, sign
Frail mother, sign
---
Samningurinn hefur nú verið undirritaður í votta viðurvist og Pókedexið verður afhent við hátíðlega athöfn næst þegar börnin dvelja hjá föður sínum.
|
|
 |
 |
hvað er að
Þriðjudagur, 28. október 2008
í dag var ég send í myndatöku hjá þriðja aðila þar sem hausinn á mér var skorðaður, crosshair laser notaður til að stilla mér upp og allur munnurinn myndaður. sérfræðingurinn ætlaði að hringja í mig þegar hann hefði fengið myndina í hendurnar og skoðað. hann hringdi ekki.
hann sagði í dag að þetta sé dularfullt, setit mig á pensillín aftur til að halda sýkingunni í skefjum. pensillín hefur ekki gert neitt hingað til og ég er ennþá í sömu sporum og engu nær um hvað er að.
|
|
 |
 |
símtal
Fimmtudagur, 30. október 2008
Læknirinn hringdi. Er búinn að fá myndirnar og sagði að ég væri svo illa gróin eftir aðgerðina að hann vill bíða fram á þriðjudag, þá á ég að koma til hans næst. Hann sagðist vera að vona að ég verði farin að gróa betur þá. Auðvitað grær þetta seint og illa þegar það er sýking í þessu.
Dagurinn í dag er nú samt besti dagurinn frá því þessi ósköp dundu yfir, ég er búin að vera lítið sljó og nánast hitalaus þó ég fái ennþá púls ógeðið og sýkingin virðist lifa góðu lífi. Höfuðverkurinn er á undanhaldi og ég hef ekkert fundið til í eyranu í allan dag. Ég er að vona að þetta pensillín sé að gera eitthvað, enda er þetta ný tegund, og eitt það al dýrasta pensillín sem ég hef um ævina keypt.
Það sem mér finnst óhugnanlegt er að upptök sýkingarinnar finnst ekki. Allar tennur sem prófaðar hafa verið, eru heilar.
|