www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Nánd og úthald
Föstudagur, 19. september 2008

Ég hef aldrei upplifað svona líkamlega nánd áður. Hafði ekki þroska til að meta hana lengi framanaf, eyddi svo öllu sem ég átti eftir að ég skildi, í mann sem kunni ekki að meta það, en svo komst ég að því að það eru ekki allir menn þannig og nú er ég að hitta mann sem finnst gott að halda utanum mig og ég sofna með handleggina hans utanum mig, finn hjartsláttinn hann. Vakna þannig líka.

Líka skrítið að ég á aldrei erfitt með að sofna þegar hann heldur svona utanum mig. Manneskja sem hefur átt erfitt með að sofna frá því hún man eftir sér. Það er bara einhvernvegin þegar ég ligg og hlusta á andadráttinn hans og heyri hjartað hans slá og finn lyktina af honum og hvað hann heldur notalega þétt utanum mig, þá bara sofna ég alsæl. Og þegar ég vakna er það eftir betri svefn en þegar ég er ein og ég finn að ég hef meiri orku en á venjulegum degi. Það er eins og þessar nætur mínar hjá honum hlaði eitthvað batterí sem var tómt og þarf sennilega að vera í hleðslu í minnst 18 tíma til að ná upp einhverjum líftíma aftur.

Aldrei hefði mig grunað að þetta skipti mig svona miklu máli, þessi nánd. Og líka það að hann skuli taka tillit til þess sem ég geri og sýna því skilning. Ég sagði honum í gær að þó ég væri komin í frí, þá væri þetta svona "frí með síma". Ef eitthvað kemur upp mun ég svara og ég mun leysa úr því líka.

Hann brosti bara og sagði "ég veit".

Hann fílar mig. Hann fílar að ég er ákveðin og líka undirgefin stundum. Hann fílar að ég er eins og ég er og hann hefur eitt sem ég held bara hreinlega að engin kærasti hafi haft áður. Hann lætur mér líða eins og ég sé falleg þó ég líti út eins og lukkutröll - at best. Það er æðislegt að eiga mann sem gerir það - þó mér finnist ekkert gaman að líta út eins og lukkutröll og er vonandi hætt því núna. Allavega 24/7.

Hann er búinn að festa upp stöng í hurðagættina í eldhúsinu hjá sér, til að hífa sig uppá, segist þurfa að byrja að æfa til að hafa úthald. Ég bað hann að sýna mér hvernig hann gerir þetta í gær. Christ alive..

Sagði honum á eftir að kannski er þetta eins og með önnur eiturlyf, kannski þarf hann alltaf að gera meira og meira til að halda mér góðri.

Hann fór bara að hlæja.

Hann er búinn að kaupa sér jarðýtu og lyftara síðast síðast, kominn á nýjan bíl og núna er hann að hugsa um að kaupa valtara.

Djöfull gætu þau orðið skaðræðislega skemmtileg, rifrildin okkar, með allar þessar græjur á heimilinu..


| anna | 1:12 |
comments

Njóttu vel og vona að síminn verði þögull.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 19.09.2008 | 5:54:26 | [+] |

Hrýtur hann?

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 19.09.2008 | 7:03:25 | [+] |

Mér finnst eins og ég hljóti að vera að lesa þetta í leyfisleysi.
En málið er auðvitað að ég er svag fyrir að gera hluti í leyfisleysi.

Áhugavert

Nr. 3 | posted by: Pjétur G | 19.09.2008 | 7:19:54 | [+] |

gæti koppí-peistað þessa færslu (mínus vinnuvélarnar), það er hreint ótrúlegt að kynnast svona karlmanni. hrein sæla angel

Nr. 4 | posted by: baun | 19.09.2008 | 9:28:45 | [+] |

Já ég ætla að njóta þess Kristín smile

Hann segist hrjóta. Ég hef ekki orðið vör við það.

Ég er líka svag fyrir því sem er bannað. Enda í hvert skipti sem ég er beðin um að hætta að blogga skrifa ég bara meira.

Þetta er spes situasjón finnst mér Baun. Ég hef ekki kynnst svona áður. Mér líður svo vel nálægt honum á afslappaðan og notalegan hátt.

Nr. 5 | posted by: anna | 19.09.2008 | 10:11:18 | [+] |

Ég styð opinberunina fullum fetum, sérstaklega þar sem þú sleppir nafngreiningum. Er á því að viðkvæmni fyrir að segja frá sjálfum sér sé með öllu óþörf. Svo er líka svo gaman að lesa þína opinberun angel

Nr. 6 | posted by: Guðrún Inga | 19.09.2008 | 13:59:53 | [+] |

Var ég að opinbera?

OMG.

Alltaf frétti ég allt síðust..

Nr. 7 | posted by: anna | 19.09.2008 | 14:14:12 | [+] |

Ég hélt að þú værir 'hið opinbera', Anna. Njóttu nándarinnar winky

Nr. 8 | posted by: Miss G | 19.09.2008 | 14:33:04 | [+] |

Já einmitt, ég er stofnun! lol

Nr. 9 | posted by: anna | 19.09.2008 | 14:45:24 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web