www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
www.marel.com
Þriðjudagur, 16. september 2008

Í dag sendi ég póst á starfsmenn Marel Food Systems útum alla heim. Ég er búin að vera að fá feedback, allt á svipuðum nótum. Fólk er mjög ánægt með síðuna.

Ég er í svo miklu spennufalli að ég er hálf lömuð. Trúi varla að fólk sé svona ánægt og átti von á einhverju böggi, er það ekki alltaf þannig? Auk þess sem síðan er langt frá því að vera eins og ég vil að hún sé. Mér er sagt að það sé alltaf þannig.

Þann 28. febrúar s.l. fór ég að hitta hönnuð með wireframe sem ég hafði teiknað upp á hótelherbergi í Danmörku. Ég hætti að mæta í vinnuna í júlí til að taka mér tíma til að sinna þessu verkefni og hafði mjög lítið haft tíma til að sinna þessu fyrir þann tíma. Þetta er útkoman www.marel.com

Ég er mjög heppin að hafa góðan vefmann innanhúss, en hann er því miður mikið í öðrum verkefnum og hafði ekki mikinn tíma fyrr en núna á lokasprettinum - ég hefði ekki viljað vera án hans þar.

Ég hefði hinsvegar ekki getað púllað þetta off ef ég hefði ekki haft mikla snillinga með mér í liði sem eru búnir að hanna og þróa ótrúlega öflugt, einfalt og notendavænt vefumsjónarkerfi. Þeir eru búnir að gera hvert kraftaverkið á fætur öðru, nú síðast þegar ég ákvað að breyta forsíðunni korter í opnun og slíta löndin frá aðalsíðunni svo þau fengju sér síður með sér leiðarkerfi.

Strákar. Þið eruð búnir að vera gjörsamlega ótrúlegir! Það er ekkert smá gaman að vinna með fólki sem kann sitt fag uppá tíu. Alveg sama hvað ég hef beðið um, það er leyst hratt og örugglega. Alveg sama hvað kemur upp, það er græjað og notendurnir mínir so far eru ánægðir með kerfið því það er svo einfalt að þú þarft að vera verulega tölvufatlaður til að skilja það ekki - samt nógu öflutgt til að gera allt sem ég vil gera.

Ég gæti ekki verið ánægðari með strákana í Keflavík:

dacodasnillingar.png

Ótrúlegir snillingar.

Eftir opnun í dag tók smá tíma að tengja öll löndin við lénin og í raun vorum við að opna 25 heimasíður í dag í stað einnar. Og auðvitað er þetta bara byrjunin, nú þarf að laga allt sem náðist ekki að laga fyrir opnun og bæta við hinu og þessu.

Takk fyrir að massa þetta verkefni með mér strákar. Það er verulega ánægjulegt að vinna með ykkur.


| anna | 18:45 |
comments

Til hamingju með vefinn - glæsilegur
colgate

Nr. 1 | posted by: Guðrún Inga | 16.09.2008 | 21:15:48 | [+] |

til lukku!

Nr. 2 | posted by: baun | 16.09.2008 | 21:16:01 | [+] |

Til hamingju snillingur Anna! Færðu nú ekki að fara í smá frí? Þú átt það nú heldur betur skilið.

Nr. 3 | posted by: Vala | 16.09.2008 | 21:31:57 | [+] |

Til hamingju með þetta Anna.
Þetta er flottur vefur sem þú getur verið stolt af!

Vona að þú fáir góða hvíld.... og farir svo að blogga af krafti.

Nr. 4 | posted by: Rato | 16.09.2008 | 21:41:41 | [+] |

Bara nokkuð gott! (Það er aldrei við hæfi að hæla fólki of mikið).

Hefurðu skoðað heimasíðuna hans Gylfa Ægissonar? http://gylfiægisson.is/

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 16.09.2008 | 21:49:54 | [+] |

Glæsilegt Anna, til hamingju! smile

Nr. 6 | posted by: z | 16.09.2008 | 21:54:44 | [+] |

Takk smile Þetta var magnaður dagur og æðislegt að finna hvað fólk er ánægt.

Algjörlega æðislegt.

Nr. 7 | posted by: anna | 16.09.2008 | 22:52:01 | [+] |

Til hamingju wave

Nr. 8 | posted by: Syngibjörg | 17.09.2008 | 0:11:00 | [+] |

Til hamingju wave

Nr. 9 | posted by: Syngibjörg | 17.09.2008 | 0:11:00 | [+] |

Frábært, til hamingju!

Nr. 10 | posted by: Kristín | 17.09.2008 | 6:48:06 | [+] |

Það er meira um að vera á síðunni hans Gylfa þó hans market cap sé öllu lægra en Marels.

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 17.09.2008 | 7:37:03 | [+] |

Rosalega flott og cohesive síða hjá þér Anna - til hamingju með þetta. Hlýtur að vera mikill léttir að vera loksins búin að koma þessu í loftið 0

Þú ferð þá vonandi að fara að hafa tíma í löns á næstunni smile

Nr. 12 | posted by: María | 17.09.2008 | 10:08:35 | [+] |

Glæsilegt Anna, einfalt og flott! Litlu matarlógóin eru vinaleg - nú geturðu snúið þér að því að toppa þetta. Finna upp hjólið? Og kannski eldinn?

Nr. 13 | posted by: Miss G | 17.09.2008 | 11:53:12 | [+] |

Takk! smile

Miss G. Nei, það er nefnilega nákvæmlega það sem ég ætla ekki að gera: finna upp hjólið eða eldinn.

Nota það sem virkar og nota það vel. Er ennþá að fá komment frá starfsfólki útum allan heim sem er verulega ánægt og segja að þetta sé besta heimasíða sem þeir hafi haft, þetta fólk var allt með sitthvora heimasíðuna áður.

Ég er gjörsamlega overwhelmed yfir hvað síðan er að fá góðar viðtökur. Finnst þetta ótrúlegt og er á fullu núna að setja inn leiðréttingar og laga til skv. ábendingum..

Nr. 14 | posted by: anna | 17.09.2008 | 12:06:21 | [+] |

Já, nei - ekki til að toppa vefinn, heldur skyggja á afrekið winky

Nr. 15 | posted by: Miss G | 17.09.2008 | 12:48:01 | [+] |

hehehe, ég hef meiri áhyggjur af því hvernig ég á að toppa afmælið mitt þegar ég verð fertug!

Er búin að redda þyrlu, veit bara ekki hvað ég ætla að gera við hana ennþá..

hehehe

Nr. 16 | posted by: anna | 17.09.2008 | 12:49:45 | [+] |

Þyrlu? Hnuss. Það verður offramboð á einkaþotum þegar þú nærð "the big 4-0" happy En, við hin bíðum spennt eftir útfærslunni.

Nr. 17 | posted by: Miss G | 17.09.2008 | 13:07:31 | [+] |

Það verður erfitt að láta þyrlu lenda á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis.

Nr. 18 | posted by: AlanHudson | 18.09.2008 | 4:57:58 | [+] |

Það er engin tilviljun að ég lét setja upp þyrlupall á þakið á blokkinni árið sem ég var í hússtjórn..

Nr. 19 | posted by: anna | 18.09.2008 | 9:06:16 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web