www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Lögreglan lýsir eftir..
Fimmtudagur, 25. september 2008

Já.. hann er farinn að hafa áhyggjur af því að hann endi í 400 kg ef hann heldur áfram að borða hjá mér. Málið er að ég er að gefa honum mjög hollan mat að borða, svo ég hef ekki þungar áhyggjur af því - en ég sagði honum að ég átti einu sinni kærasta sem hafði svo miklar áhyggjur af holdarfarinu að hann spurði mig hvernig ég myndi lýsa honum ef hann myndi týnast og ég þyrfti að láta lýsa eftir honum.

"Myndirðu segja.. þéttur? þrekinn? feitur? óbís?"

Og Skriðdrekaljónið.. "já, og hvernig myndirðu lýsa mér?"

Karlmenn.

Ég myndi segja "skollitað hár, grá/blá augu, 1.80 á hæð, sennilega á gröfu."

Verð að nota gröfuna, ég veit aldrei á hvernig bíl hann kemur næst - hann er (m.a.) á Mustang þessa dagana.

úúúÚÚÚÚÚúúúúú

Þetta er skemmtilegasti kærasti sem ég hef átt. Hringir í mig tvisvar til þrisvar í viku til að segja mér frá því hvaða vél/bíl/húsnæði hann var að kaupa. Hann á aldrei eftir að geta kallað mig kaupóða. Aldrei. Og þegar ég sagði honum að mér finnst gaman að kaupa mér töskur og skó horfði hann á mig eins og ég væri skrítin: "og? meina.. þú ert kona".

Y E S! Y E S!

I A M!


| anna | 0:07 |
comments

wave mín kæra þú liftir tilverunni á æðra stig - það er svo gleilegt að fá að lesa pistlana þína að ég kemst varla í "beddann" TAKK takk - þú ert æðislega "KONA" vá NJÓTTU þess..................love þessi "gamla" á Marel sem er í svipaðri stöðu NEMA hún segir ekki frá......og alls ekki svona skemmtilega ---- en hún ætlar á "koddann" NÚNA - þetta er galin - næturgali sem heldur mér við EFNIÐ- love love love - Anna nafna þín wave

Nr. 1 | posted by: Anna Sig | 26.09.2008 | 1:36:35 | [+] |

enn fleirri ósagðir hlutir og enn fleiri ósagðar árnaðaróskir!!!!
(settu inn broskalla að þörfum anna mín)
kveðja, Ljenzherrann af Kaffisterkt.

Nr. 2 | posted by: Ljenzherrann | 27.09.2008 | 23:00:29 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web