www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Grrrrrrr
Föstudagur, 19. september 2008

Sat hérna að vinna og varð hugsað um mat og matarljósmyndun og datt í hug blogg sem Nanna skrifaði einu sinni um það að matur myndast ekki vel á bláu leirtaui. Þetta er alveg satt, ljósmyndir af mat verða hálf ógeðslegar ef maturinn er á bláum bakgrunni/disk/fati.

switch3.jpgNema ég fór að hugsa um mitt stell, ég á blátt leirtau, eða blátt og grænt og allskonar með laufum og fuglum. Það er allt að gerast á þessu stelli. Þetta er stellið sem ég fékk í brúðargjöf og mamma á eiginlega heiðurinn af því að velja það og mér þykir það mjög fallegt - en - það er samt ekki alveg.. ég. Auk þess svindlaði ég og ég nota það bara alltaf í staðinn fyrir að nota það spari, og mér finnst það bara allt í lagi. Þetta er ekki rusl, það má þvo þetta í uppþvottavél og þetta brotnar ekki auðveldlega. Af hverju ekki að nota það?

Málið er að ég þekkti mig svo lítið þegar ég gifti mig, hafði ekki hugmynd um hvorki hvað, né hver ég var, en ég veit meira um það núna. Það er einn framleiðandi sem ég er soldið svag fyrir og í gamni fletti ég þessum framleiðanda upp á vefnum, og þegar ég fór að skoða vörurnar þeirra áttaði ég mig á því að þetta er nákvæmlega og algjörlega ég, og ég ætla að kaupa mér svona stell einn daginn - er reyndar byrjuð á því.

pillvuytbowls.jpgDrauma stellið mitt er hvítt, klassískt, vandað og unaðslega fallega hannað. Það complimentar allt sem þú berð fram á því vegna þess að postulínið er fallegt og svo sterkt að það þolir uppþvottavél. Pillivuyt depuis 1818.

Meina.. grrrr voff, voff!!

Ég er búin að kaupa mér skálar frá þessu merki og lasanja föt og þannig. Fór síðast í dag að kaupa mér svona svona skálar eins og eru á myndinni og næst ætla ég að kaupa mér matardiska og djúpa diska og.. og.. og..

Úff hvað mér finnst þetta ofboðslega fallegt. Hefði átt að kaupa diska í dag. Demit.

Enn einn fetish-inn hefur litið dagsins ljós: borðbúnaður.

Sá líka súpuausu í búðinni sem fékk hjartað mitt til að slá hraðar..


| anna | 14:41 |
comments

Dæs. Þetta er einmitt uppáhaldsstellið mitt. Kaupi það í Rekstrarvörum. Voff og spangól.

Nr. 1 | posted by: Miss G | 19.09.2008 | 15:15:40 | [+] |

Þetta er geðveikt stell. Mér finnst það æðislega fallegt.

Ertu að kaupa diska líka í þessu? Það er næsta skref hjá mér, er búin að kaupa föt og skálar. OG MIG LANGAR SVO Í DISKANA!

Nr. 2 | posted by: anna | 19.09.2008 | 15:56:59 | [+] |

Já, allar græjur, föt og skálar í allskonar formi, djúpa diska, grunna diska og, og, og ... (hef reyndar alveg pláss fyrir meira).

Nr. 3 | posted by: Miss G | 19.09.2008 | 16:30:53 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web