www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
15. september
Mánudagur, 15. september 2008

champagne.png

Ég sagði upprunalega að ég gæti skilað 17. september - eitthvað sem ég hefði sennilega ekki sagt hefði ég gert mér grein fyrir umfangi verkefnisins.
Þeir vildu 15. ágúst.

Þegar 15. ágúst var out vildu þeir 15. sept.

16. væri eiginlega bara soldið sætt.

Þetta er búið að vera geðveiki. Það er ekki hægt að kalla þetta neitt annað. Það stóð til að sameina fimm vefi fyrst, en þeir eru orðnir sex (plús löndin) og ég átti að hafa section fyrir öll löndin inná aðalvefnum.

Fyrir rúmri viku var ég að fylgjast með notanda nota íslenska vefinn og í kjölfarið neitaði ég að opna vefinn með þessu töfalda leiðarkerfi, það var einfaldlega handónýtt. Í staðinn fær hvert land sinn eigin vef með eigið leiðarkerfi, eigin forsíðu og því munum við opna 25 vefi í stað eins, þó flestir séu nú bara ein síða. Þeir munu stækka mjög hratt sumir, aðrir verða ein síða áfram, í einhvern tíma allavega.

Ég lít út eins og róni. Ég veit ekki hvort börnin mín búa hérna ennþá, tékka á því á eftir. Þau eru búin að vera hreint út sagt yndisleg. Umbera mig þó ég sé búin að vera algjörlega í eigin heimi fyrir framan þrjá tölvuskjái allar vökustundir eða í símanum og svo er ákveðið Skriðdrekaljón líka að bíða eftir að þessari törn ljúki.

En mikið djöfull er ég stolt af þessum vef sem ég hef tekið þátt í að skapa, og ef allir sklia þessu master documenti í dag, sem segir til um hvar hver vara á að birtast á vefnum, þá förum við með þetta í loftið seinnipartinn.

Mér er reyndar meinilla við að opna á mánudegi svo það verður alveg sársaukalaust af minni hálfu að opna 5 mín eftir miðnætti - meina.. það verður ennþá fimmtándi í alveg fullt, fullt af löndum en komin þriðjudagur á Íslandi!

hehehe

Ég opna hinsvegar ekkert fyrr en ég fæ þennan master. Það er reyndar einn búinn að skila nú þegar og ég veit um tvo sem koma mjög sennilega til með að skila en hina er ég ekki alveg viss um.

Well.. hvað sem gerist.. þá er kampavínið komið í kæli.

-og áður en ég náði að birta þetta sé ég að Singapore er búið að skila sínu. Jöss

Two down, four to go...


| anna | 5:00 |
comments

Flott hjá þér og til hamingju, hvort sem það verður í dag eða næstum því í dag.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 15.09.2008 | 6:00:01 | [+] |

Bíddu, bíddu þangað til ég er búin að opna! Kannski kemur risa hraðall og gleypir allt áður en ég næ að opna flöskuna!

melodramatic

Nr. 2 | posted by: anna | 15.09.2008 | 6:40:34 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web