www.anna.is
ravings of a lunatic í september 2008
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
bljaækljsfda
Þriðjudagur, 02. september 2008

saækjfæaskjfæaskjfæaslkfj


| anna | 19:30 | permalink | comments (9) |
S N I L L I N G A R
Mánudagur, 08. september 2008

Ég var að vinna í kvöld og steingleymdi fundi á morgun þar sem ég á að kynna nýja vefinn. Mundi eftir honum klukkan þrjú. Classic.

Nú sit ég hér að velta fyrir mér hvernig ég á að koma kynningu (sjö glærur) fyrir á tveimur glærum (sem er ekki að fara að gerast) fyrir þennan fund sem haldin verður bæði hér og í Danmörku (broadcast). Gafst upp og var að hugsa um að fara að sofa en fór fyrst inná vinnuslóðina fyrir vefinn, af gömlum vana, og ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum.

Strákar. STRÁKAR! ÞIÐ ERUÐ FOKKING ÆÐISLEGIR !!!

Afsakið orðbragðið.

Sem betur fer eru börnin hjá pabba sínum, annars væri ég sennilega búin að vekja þau til að skoða. Ég var að hugsa um að vekja konuna sem býr í íbúðinni við hliðiná, en grunar að henni finnist þetta kannski ekki alveg jafn dásamlegt og mér - sem segir mér að ég er ennþá heil á geði! SEM ER FRÁBÆRT! Vúhú!

Ég sendi inn massívar breytingar á laugardaginn sem ég hélt að myndu jafnvel seinka opnun og þeir baaaara græja þetta á nó tæm.

Snillingar. FOKKING SNILLINGAR !!!

Yessssssssss!


| anna | 3:55 | permalink | comments (0) |
Varðandi meintan heimsendi
Þriðjudagur, 09. september 2008

Í kvöld hringdi í mig forritari sem er að vinna fyrir mig og í lok símtalsins spurði hann hvort ég yrði ekkert svekkt ef heimurinn ferst og öll þessi vinna er til einskis. Það tók mig smá tíma að fatta hvað hann átti við, svo fór ég að hlæja.

Ef tilraunir manna til að komast að uppruna heimsins (skilst að það sé málið - hef ekkert kynnt mér þetta) verður til þess að heimurinn ferst, finnst mér það bara soldið sætt.

Auk þess verð ég ekki á staðnum til að pirrast yfir því, frekar en aðrir.

Ég hef meiri áhyggjur af vinkonu minni sem er í firringunni í Palestínu. Kannski er það firring nútíma mannsins. Að treysta of mikið á vísindi.

Ég held að heimurinn farist ekki.
Ef ég hef rangt fyrir mér, þá getiði komið og lamið mig.

wahahahahahahahahahahahahaha

*KABOOOOOOOOOOOM*


| anna | 23:05 | permalink | comments (3) |
116 down, 51 left
Föstudagur, 12. september 2008

...


| anna | 0:22 | permalink | comments (0) |
15. september
Mánudagur, 15. september 2008

champagne.png

Ég sagði upprunalega að ég gæti skilað 17. september - eitthvað sem ég hefði sennilega ekki sagt hefði ég gert mér grein fyrir umfangi verkefnisins.
Þeir vildu 15. ágúst.

Þegar 15. ágúst var out vildu þeir 15. sept.

16. væri eiginlega bara soldið sætt.

Þetta er búið að vera geðveiki. Það er ekki hægt að kalla þetta neitt annað. Það stóð til að sameina fimm vefi fyrst, en þeir eru orðnir sex (plús löndin) og ég átti að hafa section fyrir öll löndin inná aðalvefnum.

Fyrir rúmri viku var ég að fylgjast með notanda nota íslenska vefinn og í kjölfarið neitaði ég að opna vefinn með þessu töfalda leiðarkerfi, það var einfaldlega handónýtt. Í staðinn fær hvert land sinn eigin vef með eigið leiðarkerfi, eigin forsíðu og því munum við opna 25 vefi í stað eins, þó flestir séu nú bara ein síða. Þeir munu stækka mjög hratt sumir, aðrir verða ein síða áfram, í einhvern tíma allavega.

Ég lít út eins og róni. Ég veit ekki hvort börnin mín búa hérna ennþá, tékka á því á eftir. Þau eru búin að vera hreint út sagt yndisleg. Umbera mig þó ég sé búin að vera algjörlega í eigin heimi fyrir framan þrjá tölvuskjái allar vökustundir eða í símanum og svo er ákveðið Skriðdrekaljón líka að bíða eftir að þessari törn ljúki.

En mikið djöfull er ég stolt af þessum vef sem ég hef tekið þátt í að skapa, og ef allir sklia þessu master documenti í dag, sem segir til um hvar hver vara á að birtast á vefnum, þá förum við með þetta í loftið seinnipartinn.

Mér er reyndar meinilla við að opna á mánudegi svo það verður alveg sársaukalaust af minni hálfu að opna 5 mín eftir miðnætti - meina.. það verður ennþá fimmtándi í alveg fullt, fullt af löndum en komin þriðjudagur á Íslandi!

hehehe

Ég opna hinsvegar ekkert fyrr en ég fæ þennan master. Það er reyndar einn búinn að skila nú þegar og ég veit um tvo sem koma mjög sennilega til með að skila en hina er ég ekki alveg viss um.

Well.. hvað sem gerist.. þá er kampavínið komið í kæli.

-og áður en ég náði að birta þetta sé ég að Singapore er búið að skila sínu. Jöss

Two down, four to go...


| anna | 5:00 | permalink | comments (2) |
Er það bara ég..
Mánudagur, 15. september 2008

starwarsmarel.png





..eða hugsar einhver annar líka... "Star Wars"


| anna | 6:36 | permalink | comments (5) |
Tuesday Afternoon
Mánudagur, 15. september 2008

September 16, 2008 at 16:00:00 PM GMT


| anna | 23:43 | permalink | comments (2) |
www.marel.com
Þriðjudagur, 16. september 2008

Í dag sendi ég póst á starfsmenn Marel Food Systems útum alla heim. Ég er búin að vera að fá feedback, allt á svipuðum nótum. Fólk er mjög ánægt með síðuna.

Ég er í svo miklu spennufalli að ég er hálf lömuð. Trúi varla að fólk sé svona ánægt og átti von á einhverju böggi, er það ekki alltaf þannig? Auk þess sem síðan er langt frá því að vera eins og ég vil að hún sé. Mér er sagt að það sé alltaf þannig.

Þann 28. febrúar s.l. fór ég að hitta hönnuð með wireframe sem ég hafði teiknað upp á hótelherbergi í Danmörku. Ég hætti að mæta í vinnuna í júlí til að taka mér tíma til að sinna þessu verkefni og hafði mjög lítið haft tíma til að sinna þessu fyrir þann tíma. Þetta er útkoman www.marel.com

Ég er mjög heppin að hafa góðan vefmann innanhúss, en hann er því miður mikið í öðrum verkefnum og hafði ekki mikinn tíma fyrr en núna á lokasprettinum - ég hefði ekki viljað vera án hans þar.

Ég hefði hinsvegar ekki getað púllað þetta off ef ég hefði ekki haft mikla snillinga með mér í liði sem eru búnir að hanna og þróa ótrúlega öflugt, einfalt og notendavænt vefumsjónarkerfi. Þeir eru búnir að gera hvert kraftaverkið á fætur öðru, nú síðast þegar ég ákvað að breyta forsíðunni korter í opnun og slíta löndin frá aðalsíðunni svo þau fengju sér síður með sér leiðarkerfi.

Strákar. Þið eruð búnir að vera gjörsamlega ótrúlegir! Það er ekkert smá gaman að vinna með fólki sem kann sitt fag uppá tíu. Alveg sama hvað ég hef beðið um, það er leyst hratt og örugglega. Alveg sama hvað kemur upp, það er græjað og notendurnir mínir so far eru ánægðir með kerfið því það er svo einfalt að þú þarft að vera verulega tölvufatlaður til að skilja það ekki - samt nógu öflutgt til að gera allt sem ég vil gera.

Ég gæti ekki verið ánægðari með strákana í Keflavík:

dacodasnillingar.png

Ótrúlegir snillingar.

Eftir opnun í dag tók smá tíma að tengja öll löndin við lénin og í raun vorum við að opna 25 heimasíður í dag í stað einnar. Og auðvitað er þetta bara byrjunin, nú þarf að laga allt sem náðist ekki að laga fyrir opnun og bæta við hinu og þessu.

Takk fyrir að massa þetta verkefni með mér strákar. Það er verulega ánægjulegt að vinna með ykkur.


| anna | 18:45 | permalink | comments (19) |
Góður dagur
Fimmtudagur, 18. september 2008

Það var að sjálfsögðu ribbon cutting ceremony í vinnunni:

ribboncuttingceremony.png


Ég fékk bikar fyrir outstanding performance in the field of excellence, vúhú!

fieldofexcel.png


Og fór svo til Skriðdrekaljóns, sem geymir mótorhjólið sitt inní stofu:

motorhjolidinnistofu.png

Þar sem ég steinsofnaði...


| anna | 16:42 | permalink | comments (2) |
Nánd og úthald
Föstudagur, 19. september 2008

Ég hef aldrei upplifað svona líkamlega nánd áður. Hafði ekki þroska til að meta hana lengi framanaf, eyddi svo öllu sem ég átti eftir að ég skildi, í mann sem kunni ekki að meta það, en svo komst ég að því að það eru ekki allir menn þannig og nú er ég að hitta mann sem finnst gott að halda utanum mig og ég sofna með handleggina hans utanum mig, finn hjartsláttinn hann. Vakna þannig líka.

Líka skrítið að ég á aldrei erfitt með að sofna þegar hann heldur svona utanum mig. Manneskja sem hefur átt erfitt með að sofna frá því hún man eftir sér. Það er bara einhvernvegin þegar ég ligg og hlusta á andadráttinn hans og heyri hjartað hans slá og finn lyktina af honum og hvað hann heldur notalega þétt utanum mig, þá bara sofna ég alsæl. Og þegar ég vakna er það eftir betri svefn en þegar ég er ein og ég finn að ég hef meiri orku en á venjulegum degi. Það er eins og þessar nætur mínar hjá honum hlaði eitthvað batterí sem var tómt og þarf sennilega að vera í hleðslu í minnst 18 tíma til að ná upp einhverjum líftíma aftur.

Aldrei hefði mig grunað að þetta skipti mig svona miklu máli, þessi nánd. Og líka það að hann skuli taka tillit til þess sem ég geri og sýna því skilning. Ég sagði honum í gær að þó ég væri komin í frí, þá væri þetta svona "frí með síma". Ef eitthvað kemur upp mun ég svara og ég mun leysa úr því líka.

Hann brosti bara og sagði "ég veit".

Hann fílar mig. Hann fílar að ég er ákveðin og líka undirgefin stundum. Hann fílar að ég er eins og ég er og hann hefur eitt sem ég held bara hreinlega að engin kærasti hafi haft áður. Hann lætur mér líða eins og ég sé falleg þó ég líti út eins og lukkutröll - at best. Það er æðislegt að eiga mann sem gerir það - þó mér finnist ekkert gaman að líta út eins og lukkutröll og er vonandi hætt því núna. Allavega 24/7.

Hann er búinn að festa upp stöng í hurðagættina í eldhúsinu hjá sér, til að hífa sig uppá, segist þurfa að byrja að æfa til að hafa úthald. Ég bað hann að sýna mér hvernig hann gerir þetta í gær. Christ alive..

Sagði honum á eftir að kannski er þetta eins og með önnur eiturlyf, kannski þarf hann alltaf að gera meira og meira til að halda mér góðri.

Hann fór bara að hlæja.

Hann er búinn að kaupa sér jarðýtu og lyftara síðast síðast, kominn á nýjan bíl og núna er hann að hugsa um að kaupa valtara.

Djöfull gætu þau orðið skaðræðislega skemmtileg, rifrildin okkar, með allar þessar græjur á heimilinu..


| anna | 1:12 | permalink | comments (9) |
Kátt í höllinni
Föstudagur, 19. september 2008

bonusveisla.png

Nú vita allir sem hingað koma að ég kýs að skeina mér á Andrex klósettpappír. Hef reyndar minnst á það áður og mér finnst gaman að tala um klósettpappír á opinberum vettvangi. Þetta málefni fær ekki nógu mikið pláss í fjölmiðlum, samt er fullt af skít þar.

Þessu þarf að breyta.


| anna | 14:15 | permalink | comments (6) |
Grrrrrrr
Föstudagur, 19. september 2008

Sat hérna að vinna og varð hugsað um mat og matarljósmyndun og datt í hug blogg sem Nanna skrifaði einu sinni um það að matur myndast ekki vel á bláu leirtaui. Þetta er alveg satt, ljósmyndir af mat verða hálf ógeðslegar ef maturinn er á bláum bakgrunni/disk/fati.

switch3.jpgNema ég fór að hugsa um mitt stell, ég á blátt leirtau, eða blátt og grænt og allskonar með laufum og fuglum. Það er allt að gerast á þessu stelli. Þetta er stellið sem ég fékk í brúðargjöf og mamma á eiginlega heiðurinn af því að velja það og mér þykir það mjög fallegt - en - það er samt ekki alveg.. ég. Auk þess svindlaði ég og ég nota það bara alltaf í staðinn fyrir að nota það spari, og mér finnst það bara allt í lagi. Þetta er ekki rusl, það má þvo þetta í uppþvottavél og þetta brotnar ekki auðveldlega. Af hverju ekki að nota það?

Málið er að ég þekkti mig svo lítið þegar ég gifti mig, hafði ekki hugmynd um hvorki hvað, né hver ég var, en ég veit meira um það núna. Það er einn framleiðandi sem ég er soldið svag fyrir og í gamni fletti ég þessum framleiðanda upp á vefnum, og þegar ég fór að skoða vörurnar þeirra áttaði ég mig á því að þetta er nákvæmlega og algjörlega ég, og ég ætla að kaupa mér svona stell einn daginn - er reyndar byrjuð á því.

pillvuytbowls.jpgDrauma stellið mitt er hvítt, klassískt, vandað og unaðslega fallega hannað. Það complimentar allt sem þú berð fram á því vegna þess að postulínið er fallegt og svo sterkt að það þolir uppþvottavél. Pillivuyt depuis 1818.

Meina.. grrrr voff, voff!!

Ég er búin að kaupa mér skálar frá þessu merki og lasanja föt og þannig. Fór síðast í dag að kaupa mér svona svona skálar eins og eru á myndinni og næst ætla ég að kaupa mér matardiska og djúpa diska og.. og.. og..

Úff hvað mér finnst þetta ofboðslega fallegt. Hefði átt að kaupa diska í dag. Demit.

Enn einn fetish-inn hefur litið dagsins ljós: borðbúnaður.

Sá líka súpuausu í búðinni sem fékk hjartað mitt til að slá hraðar..


| anna | 14:41 | permalink | comments (3) |
iz nice
Sunnudagur, 21. september 2008

Ég er búin að þrífa um helgina. Ástandið var þannig að ég hafði ekki hjarta í mér tli að bjóða pólsku stúlkunni minni uppá að koma hingað. Fór snemma að sofa í gærkvöldi og bráðum verð ég búin að þvo allt þvottafjallið og ganga frá inní skápa. Þá verður þetta aftur orðið heimili.

Á mánudaginn fer ég í nudd og þegar ég er búin ætla ég heim, í hreinu íbúðina mína, að leggja mig.

Ahhhhhhhhhhh


| anna | 12:35 | permalink | comments (1) |
Nudd.. eða..
Mánudagur, 22. september 2008

Hann: Hvað heitir þú?
Anna: Anna.
Hann: þá ertu á réttum stað. Af hverju komstu?
Anna: Til að fá slökunarnudd
Hann: Nei. Þú komst ekki hingað til að fá slökunarnudd.
Anna: nú
Hann: ég ætla að meðhöndla þig.

Ég er í vímu.

Það er búið að nudda mig og stinga í mig prjónum. Ég slefaði á gólfið á tímabili..


| anna | 16:33 | permalink | comments (5) |
Jesus - the musical
Mánudagur, 22. september 2008


| anna | 21:35 | permalink | comments (2) |
Red light
Miðvikudagur, 24. september 2008

Ég er með seríu inní svefnherbergi, ljósin eru lítil rauð hjörtu og ég er búin að hafa hana í herberginu, í nokkur ár núna. Sennilega þrjú.

Um helgina dó serían mín, enda er alltaf kveikt á henni. 24/7/365

Ég fór strax að kaupa nýja. Finnst betra að hafa hana þarna.

Annars lá ég í rúminu mínu í gærkvöldi með tíu ára son minn á hægri hönd og 31 árs Skriðdrekaljón til vinstri. Það var gjörsamlega óborganlegt að heyra þessa tvo karlmenn tala saman, ég segi "karlmenn" vegna þess að mér varð algjörlega ljóst, að ég hef nákvæmlega ekki eitt karllægt bein í mínum líkama nálægt þessum tveimur.

Einkasonurinn getur ekki beðið eftir að fá að prufa gröfur og jarðýtur - enda er það eitthvað sem þeir eru sammála um að "allir alvöru menn gera".

Yndislegir.

Mér finnst svo gaman að elda fyrir hann! Þegar ég elda fyrir krakkana, plokka þau í matinn og spyrja hvað þetta er og hitt er, eins og þau skilji ekki að það er samspil allra þessara þátta sem gefa heildarbragðið. Honum finnst maturinn sem ég elda svo góður og stundum, þegar við erum að borða, þá horfir hann á mig eins og hann trúi varla að ég sé til og segir "þetta er æðislegur matur", og svo kyssir hann mig.

Það er æðislegt að eiga mann sem finnst matur góður, sem virðist aldrei hafa átt kærustu sem kann að elda og ég er að vona að þetta rubbi off á krakkana.

Og wouldn't you know it.. ég elda helmingi oftar en ég gerði.

Það er bara svo fokk leiðinlegt að elda fyrir matvant fólk. Ég hreinlega nenni því ekki. Börnin eru í skýjunum með hvað ég er farin að elda oft, þó þau þreytist ekki á að plokka og kvarta yfir hvað þetta er nú ómögulegt allt saman. Einkasonurinn vill helst að Skriðdrekaljónið sé alltaf hjá okkur, ég er víst svo góð í skapinu þegar hann er nálægt og dugleg að þrífa og svona...

Um daginn vorum við bara hérna tvö og þegar ég lagði matinn á borðið fyrir framan hann sagði hann "ég held að við ættum að fara að búa saman".

hehehe

Hann skiptir um skoðun annað kvöld, þegar ég fer með hann út að hlaupa..


| anna | 23:26 | permalink | comments (0) |
Lögreglan lýsir eftir..
Fimmtudagur, 25. september 2008

Já.. hann er farinn að hafa áhyggjur af því að hann endi í 400 kg ef hann heldur áfram að borða hjá mér. Málið er að ég er að gefa honum mjög hollan mat að borða, svo ég hef ekki þungar áhyggjur af því - en ég sagði honum að ég átti einu sinni kærasta sem hafði svo miklar áhyggjur af holdarfarinu að hann spurði mig hvernig ég myndi lýsa honum ef hann myndi týnast og ég þyrfti að láta lýsa eftir honum.

"Myndirðu segja.. þéttur? þrekinn? feitur? óbís?"

Og Skriðdrekaljónið.. "já, og hvernig myndirðu lýsa mér?"

Karlmenn.

Ég myndi segja "skollitað hár, grá/blá augu, 1.80 á hæð, sennilega á gröfu."

Verð að nota gröfuna, ég veit aldrei á hvernig bíl hann kemur næst - hann er (m.a.) á Mustang þessa dagana.

úúúÚÚÚÚÚúúúúú

Þetta er skemmtilegasti kærasti sem ég hef átt. Hringir í mig tvisvar til þrisvar í viku til að segja mér frá því hvaða vél/bíl/húsnæði hann var að kaupa. Hann á aldrei eftir að geta kallað mig kaupóða. Aldrei. Og þegar ég sagði honum að mér finnst gaman að kaupa mér töskur og skó horfði hann á mig eins og ég væri skrítin: "og? meina.. þú ert kona".

Y E S! Y E S!

I A M!


| anna | 0:07 | permalink | comments (2) |
..it's mine
Föstudagur, 26. september 2008

Ég einoka sængur á næturna. Þessa bláköldu staðreynd hefur Skriðdrekaljónið nú fengið að kynnast í eigin persónu. Hann segir að ég sé eins og Gollum, kuðla sænginni undir mig og hvæsi "we owns it, you don't needs it like we does".

Honum finnst ég samt ekkert krípí, þó hann segi að ég sé með næstum jafn stór augu og Gollum.

Í gærkvöldi lagðist ég uppí rúm, stuttu síðar kom Skriðdrekaljónið í buxum, lopapeysu með vettlinga og húfu.

"Þetta með sængina er ekki vandamál lengur".


| anna | 18:49 | permalink | comments (2) |
Paul Newman
Laugardagur, 27. september 2008

300_101896.jpgÉg féll fyrir honum í myndinni "Butch Cassidy and the Sundance Kid" og náði mér aldrei alveg, enda er þetta einn flottasti leikari sem ég hef séð í bíómynd.

Flottur maður, hvernig sem á það er litið.


| anna | 19:31 | permalink | comments (1) |
Lifur í matinn
Sunnudagur, 28. september 2008

Jóhanna: þú myrtir Ken og nú Lifur?
Anna: þetta er ekkert Lifur, þetta er lifur. Ég færi aldrei að drepa og gefa börnunum mínum fjarbýling minn að borða.
Doddi: en.. er þetta ekki blóð?
Anna: jú, hérna... fáðu þér kartöflumús líka
Doddi: þetta er blóð
Anna: þetta er hollur og góður matur
Doddi: er þetta það sem zombies borða?
Anna: já
Doddi: svo zombies verði sterkir og stórir?
Anna: recommended by zombies worldwide
Doddi: kúúúúl

Ég elda fyrir þau kjúklingarétti og svínakjötsrétti, en þegar ég ber á borð lifur klárast allt.

Go figure.


| anna | 19:11 | permalink | comments (5) |
Cliffhanger
Mánudagur, 29. september 2008

Þegar ég vaknaði settist ég við tölvuna af gömlum vana og fékk hálfgert taugaáfall þegar ég skoðaði vefmiðlana. Wtf?

Gengi krónunnar aldrei lægra. Glitnir orðinn ríkisbanki. Stoðir í greiðslustöðvun. Bandaríkjaþing fellir bjargvættarfrumvarpið. Mesta fall á Wall Street í 21 ár. Morgunblaðið og Fréttablaðið verða eitt.


Mér líður eins og ég sé að lesa sögubók nema endann vantar og höfundurinn er farinn á fylleríi útí bæ.


| anna | 21:13 | permalink | comments (7) |
Símamyndir
Þriðjudagur, 30. september 2008

Að skoða jarðýtur á netinu..

grofur.png

Frasier í sjónvarpinu..

frasier.png

Old school Nokia..

nokiastigvel.png

Tveir skrítnir í Ellingsen

furdufuglar.png

Litla leiða barnið í Ellingsen

litlaeinmanabarnid.png

Blómin í stofunni

blomstrandi.png

Lederhosen

lederhosen.png

Æfing í dag

aefing.png

Undirbúa kardimommunammið

kardimommur.png

Kardimommunammi

kardimommunammi.png



| anna | 22:11 | permalink | comments (2) |

ravings í september 2008
monthly archive

links
blogs
links - web