Láttu nú ekki svona Hörður, þetta venst..
Fimmtudagur, 28. ágúst 2008
Ekki voru allir jafn hressir þegar Anna kynnti nýja útlitið á vefnum fyrir stjórn Marel Food Systems á fundi í Fjarskanistan á þriðjudaginn. Ég var tilbúin með plan b, en þeim fannst það ekki nógu frumlegt heldur.
Smá grín. Auðvitað voru allir hressir og samþykktu fyrstu tillöguna - enda var plan b bara tótal rugl sem myndi ekki virka á neinum vef. Það sér hver maður.
hehehe
Í gærkvöldi var ég að fara yfir vefinn og útbúa lista yfir allt sem mig vantar af efni og senda á fólk. Búa til annan lista fyrir forritarana yfir hluti sem þarf að klára. Ég er ennþá að setja þann lista saman en sendi á þá jafn óðum.
Ég sagði upprunalega að með rétta kerfinu gæti ég púllað þetta off fyrir 17. september, af því ég er sækó. Fer bara vel með það. Mér var gefið til 15. ágúst vegna þess að þeir eru meira sækó en ég, sem er hressandi - en vegna sumarleyfa var ekki hægt að fá allt efnið frá fólki fyrir þann tíma svo 15 september er dagurinn. Ég er reyndar á móti því að opna vefi á mánudögum svo ég mun reyna að opna eina mínútu eftir miðnætti til að opna á þriðjudegi.
Þegar ég er búin að skila þessum vef mun ég mæta í vinnuna í þrjá daga og svo ætla ég í viku frí. Ég veit ekki hvert ég ætla að fara en ég veit nákvæmlega hvað ég ætla að gera. Ég ætla að sofa, svo kannski fer ég bara uppí rúm.
Og þegar ég kem til baka, þá hefst ég handa við að gera vefinn, sem ég mun opna 15. september, ennþá betri.
Annað kvöld ætla ég að halda uppá afmælið mitt með því að elda hryllilega góðan mat en svo er það back to business.
Ég er að verða mjög stolt af þessum vef.