www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Deus ex machina
Laugardagur, 09. ágúst 2008

Ég sofnaði í dag. Svaf lengi, svaf lítið í nótt. Þegar ég vaknaði heyrði ég vatn renna inná baði, sem meikaði ekkert sense. Krakkarnir eru hjá pabba sínum.

Ég fór fram en þegar ég reyndi að opna baðherbergishurðina var hún læst. Ég gretti mig, what the..?

Sá einhverra hluta vegna ekki fyrir mér að það væri serial killer þarna inni og fannst ég ekki vera í hættu, þó mér fyndist þetta flippað. Ég bankaði. Ekkert svar. Fór inní stofu, veit ekki til hvers. Heyrði hurðina á baðherberginu opnast, snéri mér við og þarna stóð Bobby Ewing í öllu sínu veldi í gættinni með handklæði utanum sig miðjan. Hann brosti til mín og sagði "good morning".

Ég opnaði munninn, komst ekki lengra.

Hvað getur maður sagt þegar Bobby Ewing blasir við manni nýkomin úr sturtu heima hjá þér - ég er ekki einu sinni með sturtu! Hann fór aftur inná bað og þegar hann kom fram var hann búinn að klæða sig og setja á sig kúrekahatt. Ég stóð í sömu sporum, ennþá með munninn opinn. Hann leit í spegilinn á ganginum og lagaði hattinn. "you know what this is", sagði hann og leit á mig.

"The spin", hvíslaði ég.

Hann gekk til mín, tók um axlirnar á mér og brosti trademark "Bobby" brosinu sínu, þessu sem fær mann til að trúa að einn daginn verði friður á jörð og að súkkulaði sé - in fact - ekki fitandi. Svona "þetta verður allt í lagi" bros - og þú trúir honum. Því næst tók hann af sér hattinn og kom honum fyrir á höfðinu á mér.

Svo fór hann út og lokaði á eftir sér.

Ég stóð hreyfingarlaus í stofunni. Kúrekahatturinn byrjaði að síga niður fyrir augun og á endanum varð allt svart. Í huganum sá ég Bobby fyrir mér.

Brosið var ekki alveg jafn sannfærandi og þegar hann var á staðnum.


| anna | 23:47 |
comments

vild´ég væri Pamela í Dallas?

Nr. 1 | posted by: baun | 10.08.2008 | 11:37:52 | [+] |

Það er engin Pamela.

Nr. 2 | posted by: anna | 10.08.2008 | 11:49:18 | [+] |

Ég þurfti endilega að sjá Bobby í einhverri sjónvarpsmynd (líklega þegar ég var ólétt, þá horfði ég á sjónvarpsmyndir á daginn um tíma þegar ég átti að liggja). Þar var hann orðinn hvíthærður frekar en gráhærður og algerlega ömurlega lúseralegur eitthvað. Eyðilagði allt fyrir mér. Kær kveðja.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 11.08.2008 | 18:49:17 | [+] |

Gott að ég hef aldrei séð Bobby í þessu ástandi. Annars hefði honum ekki tekist að hugga mig neitt.

Nr. 4 | posted by: anna | 11.08.2008 | 23:56:06 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web