Þriðjudagur, 15. júlí 2008
Í kvöld fór ég með vinkonu minni út að borða, vegna þess að ég er búin að lifa til skiptis á rusli og engu s.l. daga og var farið að skorta alvöru næringu. Hún stakk uppá að við færum á veitingahúsið "Á næstu grösum", sem við gerðum og fengum góðan mat.
Konan sem var að afgreiða er einn af þremur eigendum, Dóra. Hreint yndisleg manneskja. Nærvera hennar kom mér í gott skap, allt var svo létt og leikandi nálægt henni. Mæli með þessu veitingahúsi.
Vinkona mín opnaði fyrir mér nýja sýn á sjálfa mig og staðfesti það sem ég fann á sunnudagskvöldið. En þó ég viti það veit ég ekki hvað ég á að gera við það.
Mikið ofboðslega er Barbra Streisand heillandi kona.
Ég er búin að eyða tíma í að keyra svolítið undanfarið og þegar ég er ein í bíl lengur en í tuttugu mínútur fer ég alltaf að hugsa um sama hlutinn. Kannski er það ekki tilviljun.
Soldið skrítið.
Er ég þessi kona?
Hver er ég?