www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
mrrrr
Þriðjudagur, 29. júlí 2008

Þegar ég vaknaði í gærmorgun var mér illt hægra megin í andlitinu, mest illt í auganu. Ég hringdi í lækni sem skrifaði uppá pensillín, hringdi næst í fyrrverandi manninn minn og bað hann að ná í lyfin fyrir mig því ég treysti mér ekki til að keyra útí aptótek og hafði beðið lækninn að senda þau í lyfju í lágmúla vegna þess að ég mundi ekki eftir neinum öðrum apótekum þegar ég talaði við lækninn. dont' get it, það er apótek hérna rétt hjá. Þegar blaðamaðurinn kom með lyfið vakti hann mig og honum brá þegar hann sá mig. Sagði að ég liti skelfilega út. Ég tók lyfin og hélt áfram að sofa. Þetta var klukkan fjögur.

Venjulega þegar ég er veik þá græt ég af minnsta tilefni, en í gær var eins og hægra augað mitt væri fullt af rakvélablöðum ef ég táraðist, það var sárt að hafa augað opið líka svo ég drakk mikið panodil hot og svaf.

Ég vaknaði klukkan tíu í gærkvöldi og þegar ég opnaði augun voru tveir pokar á borðinu.fyrir framan mig. Ég hélt að mig hefði kannski verið a ðdreyma þegar hann kom, en hann skildi eftir malt og nammi og harðan disk fullan af bíómyndum svo mér myndi ekki leiðast. Ég held að honum hafi lika brugðið þegar hann sá mig og ég held að hann hafi ekki verið lengi en mér þykir vænt um að hann kom.

Ég var með sáran sting í heilanum í allan gærdag. Aftan í höfðinu, hægra megin. Fékk líka sting í hægra gagnaugað en ekki eins oft. Mér var líka illt inní mér, neðarlega í bakinu. Hægra megin. Og þegar ég vaknaði í eitt skiptið fékk ég hnerrakast sem var hrikalega sárt, og á eftir var ég alveg dofin í fingurgómunum í hægri höndinni í smá tíma. Mjög furðuleg tilfinning. Eins og að vera með stjörnuljós í fingrunum.

Sennilega verð ég jafn hjálparlaus og karlmaður þegar ég verð svona veik.

Pensillínið er greinilega að virka, mér er ekki jafn illt í auganu lengur, verkurinn í andlitinu er farinn og ég er hætt að fá þessa sáru stingi í heilann og gagnaugað.

Mér líður samt svolítið eins og ég hafi orðið fyrir lest, dösuð.


| anna | 12:28 |
comments

Vona að þér batni.

Skrítið að fólk verið dasað ef það lendir fyrir lest........... er það ekki bara væll í því? sick

Nr. 1 | posted by: Elín | 29.07.2008 | 15:15:26 | [+] |

Takk Elín. Ég skil reyndar ekki restina af kommentinu, en ég er náttúrlega ekki alveg all there..

Nr. 2 | posted by: anna | 29.07.2008 | 15:53:53 | [+] |

æ, ljótt að heyra, vona að þér batni fljótt og vel.

Nr. 3 | posted by: baun | 30.07.2008 | 20:56:35 | [+] |

Var verið að taka forskot á verslunarmannahelgina- vona það þín vegna.
Toppaði klaufaskap minn í dag- Vá hélt það væri ekki hægt. Hlakka til að hitta þig og seigja frá því ævintýri.
see you soon?
l
Garún

Nr. 4 | posted by: gbb | 4.08.2008 | 22:40:55 | [+] |

sæl anna....ekki ertu með Iritis (lithimnubólgu) eins og ég var með og Loftur í UT fékk líka? mér sýnist lýsingin vera eins....vonandi fer þér að batna smile

Nr. 5 | posted by: bylgja | 6.08.2008 | 11:10:16 | [+] |

sæl anna....ekki ertu með Iritis (lithimnubólgu) eins og ég var með og Loftur í UT fékk líka? mér sýnist lýsingin vera eins....vonandi fer þér að batna smile

Nr. 6 | posted by: bylgja | 6.08.2008 | 11:12:08 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web