Miðvikudagur, 02. júlí 2008
Ég fór á veitingastaðinn Orange í kvöld með lítinn hóp af fólki. Ég held að ekkert okkar hafi orðið fyrir vonbrigðum. Soldið mikið fusion á köflum en mjög skemmtilegt andrúmsloft og margt frumlegt, eins og t.d. Nýmjólkin. Mér fannst það nú mökk krípí fyrst, en í fernunni var súpa sem mér fannst vera lang besti réttur kvöldsins. Man auðvitað ekki hvað þetta var en úff hvað þetta var gott.
Þegar ég bað um reikninginn fór þjónninn en kom stuttu seinna með litla bók og rétti mér. Bókina "Little Miss Magic".
Reikningurinn var inní bókinni.
Awwww
Þetta fannst mér sætt - og ég veit að manninum sem sat við hliðiná mér fannst þetta viðeigandi. Hann hitti mig í fyrsta skipti í morgun, en hann veit hvað ég er.
Eftir matinn fórum við útá Gróttu. Ég fer með alla útlendinga sem eru á mínum vegum útá Gróttu, af því það er eini staðurinn á Íslandi sem ég rata á sem hefur landscape. Og þeim finnst það í góðu lagi, finnst Grótta massa kúl - sem hún er.
Ég laug að Skriðdrekaljóninu þegar ég sagðist ekki eiga neitt líf. Ég held að ég sé bara ekki alveg búin að átta mig á því hvernig líf ég á.
Ég get ekki verið að hugsa um það núna, hugsa um það á morgun.
..og mér finnst það í góðu lagi...