Mánudagur, 07. júlí 2008
Lyklaborðið mitt er ónýtt vegna þess ég helti kóki yfir það í fyrradag. Ctrl takkinn virkar ekki eins og hann á að gera, samt virkar hann betur núna en hann gerði í gær. Í gær var allt að gerast. Fullt af gluggum og dóti sem ég hef aldrei séð áður birtist á skjánum þegar ég notaði Ctrl. Það er svona að lifa á brúninni.
Ég á annað lyklaborð hérna einhversstaðar. Gagnast mér lítið þar sem ég veit ekki hvar það er. Samt er eins og mig minni að ég hafi sett það á "góðan stað" vegna þess að ég á til að skemma amk 1 lyklaborð á ári. Oftast skemmi ég þau á sumrin og oftast með því að hella einhverju ofaní þau og oftast vegna þess að ég er að slá til flugu sem sleppur - vegna þess að ég er með hugan við það sem ég er að gera á lyklaborðinu, ekki við að drepa fluguna. Þegar ég átta mig á því að ég er búin að drepa lyklaborðið dæmi ég fluguna til dauða. Þó ég þurfi að rústa íbúðinni til að ná henni.
Þess vegna er íbúðin mín í rúst núna.
Ég held að ég hafi skrifað næstum nákvæmlega svona blogg áður. Og mér er sama.
Þegar flugan var dauð henti ég henni frammaf svölunum. Kannski var þetta hundur, húsið nötraði þegar hún lenti á jörðinni. Vildi láta kalla sig Lúkas. Flugur eru í alvöru geðveikar.
Annars var ég að keyra um daginn með sportskiptingunni minni þegar kom í ljós að ég var ekki ein í bílnum. Hjá mér var geitungur. Anna Rambó, cool as ice, opnaði alla fjarstýrða glugga í bílnum, fann Whitney Houston disk sem ég setti í magasínið. Geitungurinn fór alveg um leið. (Þetta virkar á karlmenn líka.)
Whitney er næstum jafn öflug og WD40.
Smá útúrdúr.
Ég elska WD40 og eftir að ég skoðaði heimasíðuna þeirra elska ég það bara meira "plays as hard as you do". Með svona tag line.. meina.. þú getur ekki tapað. Það er ekkert sem ekki er hægt að gera með þessu efni. Þú getur drepið pöddur, kryddað pizzur, lagað rennilása og spreyjað í augun á sveittum og uppáþrengjandi lúðum á djamminu.
Útúrdúr lýkur.
Það er svona þegar maður er í extreme aðstæðum, þá tekur eðlisávísunin við og maður bara veit hvað þarf að gera.
Ég er kannski ekki í extreme aðstæðum núna en ég þarf annaðhvort að finna lyklaborðið sem er á góða staðnum - sem ég veit ekki hvar er - eða kaupa lyklaborð. Sennilega er ég fljótari að kaupa nýtt.
Á eftir held ég stutta minningarathöfn en ég ætla ekki að henda gamla lyklaborðinu frammaf svölunum því þetta þetta er síðasta góða KeyTronic lyklaborðið mitt. Örlögin leika mig grátt.
Blóm og kransar afþakkaðir - en þeir sem eiga KeyTronic lyklaborð sem þeir eru hættir að nota, dead serious:
Anna Helgadóttir
Hagamel 53
107 Rvk
Iceland
(pref. ergoforce)
----
Þessi færsla var skrifuð fyrir nokkrum dögum og ég birti hana ekki sökum leti, ég fann lyklaborðið sem ég átti hérna til vara (góði staðurinn var undir skrifborðinu við tærnar á mér) og ég er að geðbilast að nota þetta helv andsk logitech RUSL.
Hvar fæ ég alvöru lyklaborð í dag?