www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
G-anal
Föstudagur, 18. júlí 2008

Þann 27. apríl s.l. setti ég upp google analytics fyrir anna.is vegna þess að ég þurfti að skilja hvernig ganal virkar og það var auðveldara að skilja það ef ég byrja á að nota það á síðu sem ég þekki eins og handabakið á mér.

Hef reyndar aldrei skilið þetta orðatiltæki, ég er ekki viss um að ég myndi þekkja handabakið á mér í sakbendingu - eitt og sér. Ég myndi hinsvegar þekkja lófann á mér um leið, allavega þann vinstri.

Frá því ég byrjaði að mæla aðsóknina hefur hún haldist frekar stöðug, sem kemur mér á óvart vegna þess að yfirleitt dalar hún á sumrin. Hún gerir það allavega á þeim fyrirtækjasíðum sem ég hef fylgst með aðsókn á.

Frá því talning hófst hefur anna.is fengið 20,760 heimsóknir frá 929 borgum, þar af eru 6,715 absolute unique visitors sem skoðuðu samtalst 62,271 síður. Meðal notandi skoðar 3 síður í hverri heimsókn og meðal tími sem fólk eyðir á síðunni eru 5.05 mín (það er lítið að marka þetta þar sem fólk getur skilið gluggann eftir opinn þó það sé ekki actually að lesa síðuna). 67.61% af þeim sem komu á síðuna komu aftur. Það er nú alveg ágætt.

39.96% af traffíkinni á síðuna er fólk sem slær inn urlið eða fer beint inná hana, 45.76% af heimsóknum kemur frá vísunum á öðrum síðum og 14.28% kemur frá leitarvélum.

45.95% notenda notar Internet Explorer
42.59% notar Firefox
10.05% notar Safari

Heimskort anna.is:


| anna | 0:36 |
comments

Assgoti er punkturinn minn flottur þarna.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 18.07.2008 | 1:14:30 | [+] |

Segðu! cool

Nr. 2 | posted by: anna | 18.07.2008 | 1:16:27 | [+] |

Hver er á Hawaii? Tony?

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 18.07.2008 | 5:21:16 | [+] |

Allan, ég held að punktarnir okkar nánast snertist.

Anna, af hverju ertu svona óvinsæl í Kína og Japan?

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 18.07.2008 | 8:21:39 | [+] |

Organisti: þetta er skandall, en ég bæti þetta upp í Norður Kóreu.

Alan: Veistu ekki hvar Tony er??

Nr. 5 | posted by: anna | 18.07.2008 | 8:54:50 | [+] |

Organisti, jú þú ert nánast í bakgarðinum hérna.

Anna, ég er ekki viss um að það sé punktur í Vegas, svo Hawaii hlýtur að vera næst líklegast. Er hann ekki kominn á eftirlaun?

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 18.07.2008 | 13:40:59 | [+] |

Vegas er inni, Tony er hinsvegar ekki þar smile

Nr. 7 | posted by: anna | 18.07.2008 | 14:12:50 | [+] |

Nei Alan, þetta er öfugt hjá þér; Þú ert í bakgarðinum hjá mér. Það er nú alveg klárt hvað er fram og aftur á þessu korti.

Er ekki líklegast að Tony hafi lent í midlife crises og gerst bush pilot í Alaska. Það er punktur þar.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 18.07.2008 | 17:57:00 | [+] |

Já, nei. Punkturinn í Alaska er fyrrverandi kærasti...

Nr. 9 | posted by: anna | 19.07.2008 | 11:53:32 | [+] |

Hvernig fer maður að því að fá svona Google analytics á síðuna sína? Er btw búin að prófa Google docs eftir að hafa lesið bloggið þitt og verð að segja að það er algjör snilld smile

Nr. 10 | posted by: Guðný Pálína | 19.07.2008 | 11:58:34 | [+] |

Það er pís of keik að setja ganal upp.

Þú ferð á google, velur "my account" og "Analytics". Ferð í gegnum ferlið þar og færð upp kóða sem þú þarft að setja á síðuna. Ég sá að þú ert með blogspot, þá ferðu eftir leiðbeiningunum hér: http://andywibbels.com/post/1389

Sólarhring síðar geturðu farið að fylgjast með traffík í gegnum google smile

Hvað google docs varðar, ef þú ert að vinna eitthvað með öðrum þá er "share" möguleikinn á google docs líka algjör snilld.

Nr. 11 | posted by: anna | 19.07.2008 | 12:45:16 | [+] |

G-anal tottar steypubíl. Fáið ykkur Woopra aðgang á woopra.com og þið getið stalkað lesendur út í eitt.

Nr. 12 | posted by: Don Pedro | 20.07.2008 | 6:01:30 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web