www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég elska google docs
Miðvikudagur, 16. júlí 2008

Ég elska google.

Þvílíkur munur að geta deilt skjali með öðrum og editerað live, óháð því hvaða stýrikerfi fólk er að nota og ef þú ert að vinna með verktökum sem hafa ekki aðgang að innranetið skiptir það engu máli. Alltaf sama skjalið, engir tölvupóstar fram og til baka, engin misskiliningur, ekkert mál að setja inn screenshots og komments. Ekkert mál að sjá hver editeraði hvað og hvenær.

Skjalið vistast sjálfkrafa svo þó windows krassi - google saves.

Þægilegt og einfalt í notkun, hratt, það eina sem þarf er gmail og the beauty part.. þetta kostar ekki krónu.

The future is now.

Ég er að vinna á tveimur vélum, borðvél og lappa. Ég vinn meira á borðvélinni vegna þess að við hana hef ég tvo risa skjái tengda, svo það er þægilegra fyrir mig, en þegar sú vél frýs (sem gerist reglulega vegna þess að ég er að keyra svo mikið á henni - og - ég er á windows) þá skipti ég yfir á lappann á meðan ég endurræsi borðvélina - en - get haldið áfram að vinna óslitið með öll skjölin mín á sínum stað á google docs og hef engri vinnu tapað. Vúhú!

Hvað ætli stjórnendur gætu sparað mikið af peningum með því að nota þetta - í ljósi þess að í venjulegum fyrirtækjum þurfa fæstir starfsmenn að nota word (sem er í raun indesign fyrir fólk sem kann ekki eða hefur ekki efni á indesign), nema þessir þrír sem þurfa að búa til skýrslur með bls tali - og þetta gæti actually orðið til þess að fólk læri að nota tölvupóst eins og á að nota hann og skrifi textann í sjálfan póstinn í stað þess að senda helvítis word skjöl fram og til baka. Gerir mig geðveika. Hvað er t.d. með allt sem ég fæ frá menntastofnunum, af hverju í fjandanum eru það oftast word skjöl sem viðhengi í stað þess að senda efnið í póstinum? Og ég er ekki bara að tala um leyfisgjöld, ég er að hugsa um tímasparnað, vegna þess að google docs virkar hratt og tekur ekki margar mínútur að keyrast upp.

Rétt upp hönd þeir sem verða pirraðir yfir því hvað word er lengi að hlunkast upp þegar þú vilt skoða skjal. Ég hef mjög lítið tolerance fyrir því, enda nota ég helst ekki word ef ég kemst hjá því - og nú þarf ég þess ekki.

Google rulez.


| anna | 8:47 |
comments

Þakka þér!

Word var kannski einhverntíman ritvinnsluforrit, en það er langt síðan það tapaði sér í útsölu umbrotsins. Sem slíkt skilar það sínu, svosem, en þegar unnið er með texta, þá þvælist þetta bara fyrir.

Ég hef ekki notað Google Docs mikið, en konseptið er brilljant. Undanfarið hef ég eiginlega alveg skipt yfir í WriteRoom þegar ég þarf að skrifa eitthvað sem sprengir af sér notepad. Ég hef svo stundum rennt því í gegnum Word (eða Pages) áður en ég skila því af mér.

Þúst. Keep it simple, stupid.

Nr. 1 | posted by: Bastarður Forritafitu | 16.07.2008 | 12:17:46 | [+] |

Nákvæmlega - keep it simple, stupid!

Og það er það sem google er að gera svo vel, þetta er svo fricking simple og auðvelt í notkun! wave

Nr. 2 | posted by: anna | 16.07.2008 | 12:19:55 | [+] |

Tékka á þessu. Þoli ekki word, fegin að sjá að m.a.s. risavélin þín er lengi að opna skjölin, hélt að þetta væri galli í minni tölvu. Þoli ekki word.

Nr. 3 | posted by: Kristín | 16.07.2008 | 15:23:55 | [+] |

Word er fínt, bara ekki uppfæra úr Office 2000.

Ég hef bara heyrt af þessum Google docs en ekki prófað. Það sem ég set spurningu við er hvar skjölin eru vistuð og hvernig er hægt að tryggja að óviðkomandi geti ekki nálgast þau?

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 16.07.2008 | 15:35:56 | [+] |

Kristín. Það eru allar vélar lengi að keyra upp word. Alveg sama hversu svakalega góðar þær eru, a.m.k. hef ég aldrei orðið vitni að windows keyra þetta forrit hratt upp. Not once.

Alan. Já.. the risk factor. Ekkert af því sem ég set þarna inn er hernaðarleyndarmál og líkurnar á því að þetta komist í hendur óviðkomandi aðila eru jafn miklar og að einhver brjótist inná gmailinn þinn.

Bottom line.. ég treysti google betur fyrir skjölunum mínum en ég treysti nettengdri borðvél sem keyrir á windows smile

Nr. 5 | posted by: anna | 16.07.2008 | 20:04:04 | [+] |

Ég er sennilega eini maðurinn í heiminum sem á ekki gmail, en hins vegar nota ég Google Notebook, það er mesta snilld internetsins síðan TCP/IP og Gopher var uppgötvað.

Google er goott, Windows er wont. Mantra dagsins.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 16.07.2008 | 20:19:39 | [+] |

Meina.. google calendar sendir mér sms þegar ég þarf að fara á fundi - sækja börnin eða einhver á afmæli.

Ég bara elska google, það er bara þannig. Kíktu á google docs, þú verður húkkt á no time wink

Nr. 7 | posted by: anna | 16.07.2008 | 20:22:02 | [+] |

ps. ég get sent þér gmail invite ef þig vantar cool

Nr. 8 | posted by: anna | 16.07.2008 | 20:23:09 | [+] |

Já calendarið er annað sem ég nota, allir afmælisdagarnir og svo líka matmálstímar og þannig sem maður gleymir stundum. Maður getur líka haft tunglkvartelin þarna inni og þannig forðast vampýrur á fullu tungli. Lífsnauðsynleg þjónusta sumsé.

Ég fæ kannski gmail invite hjá þér seinna, þarf ekki svoleiðis eins og er, 'alanhudson.com' mailserverinn er með ótakmarkaðan fjölda netfanga, það dugar í bili.

Nr. 9 | posted by: AlanHudson | 16.07.2008 | 22:14:02 | [+] |

Ég nota reyndar aldrei google mail-ið mitt, það redirectar á anna.is netfangið.

Vissi ekki af þessum vampírufítus, þarf að kynna mér þetta nánar..

wendy_werewolf.gif

Nr. 10 | posted by: anna | 16.07.2008 | 22:18:47 | [+] |

OMG - ég er nýbúin að senda þér Word skjal í viðhengi embarassed

Nr. 11 | posted by: Sigga | 17.07.2008 | 14:21:31 | [+] |

Það var nú meira fylgiskjal, ekki innihald póstsins. Gilda aðrar reglur um slíkt. wink

Það sem ég þoli ekki er t.d. tilkynning um opið hús í skólanum og ég fæ póst þar sem innihaldið er "opið hús, sjá viðhengi" og textinn í viðhenginu eru örfárar línur um opið hús í skólanum. Eitthvað sem hefði átt að vera í póstinum sjálfum.

Nr. 12 | posted by: anna | 17.07.2008 | 15:49:26 | [+] |

Ég er svo innilega sammála! smile

Nr. 13 | posted by: Sigga | 17.07.2008 | 16:30:13 | [+] |

Er ekki bara spurningin um að vera með nógu feitt járn undir þessu ? smile

http://www.orku.net/~thor/word.mp4


nerd

Nr. 14 | posted by: Þór | 19.07.2008 | 23:57:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web