www.anna.is
ravings of a lunatic í júlí 2008
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekkert líf
Þriðjudagur, 01. júlí 2008

Ég er að læra að hafa útlendinga í fóstri. Verð að viðurkenna að mér finnst sjálfri mjög þægilegt ef einhver annar en ég arranserar öllu skutli og bókunum þegar ég er úti svo þetta er ljúf skylda.

Held að Skriðdrekaljónið vinni jafn mikið og ég. Í fyrsta skipti þegar hann kom heim til mín og sá skjáina og setup-ið mitt.. þá tók hann utanum mittið á mér, brosti til mín og sagði "þú átt þér ekkert líf, er það?" og ég brosti til baka með stjörnur í augunum og sagði eins og satt er: "nei, ekkert". Þá virti hann mig fyrir sér í smá stund, ennþá brosandi og svo kyssti hann mig - og ég kiknaði í hnjáliðunum.

Málið er að ég veit ekki hvort ég kann á lífið eins og það virkar þegar ég er með honum, en mig langar að reyna og læra það.

Kannski missi ég vitið og fríka út, raka af mér hárið og hætti að ganga í nærbuxum. Ég hef reyndar farið í gegnum þannig tímabil nema það tók engin eftir því.

Var alltaf með húfu og í síðbuxum.


| anna | 22:59 | permalink | comments (2) |
Ójá
Miðvikudagur, 02. júlí 2008

9781846462368.pngÉg fór á veitingastaðinn Orange í kvöld með lítinn hóp af fólki. Ég held að ekkert okkar hafi orðið fyrir vonbrigðum. Soldið mikið fusion á köflum en mjög skemmtilegt andrúmsloft og margt frumlegt, eins og t.d. Nýmjólkin. Mér fannst það nú mökk krípí fyrst, en í fernunni var súpa sem mér fannst vera lang besti réttur kvöldsins. Man auðvitað ekki hvað þetta var en úff hvað þetta var gott.

Þegar ég bað um reikninginn fór þjónninn en kom stuttu seinna með litla bók og rétti mér. Bókina "Little Miss Magic".

Reikningurinn var inní bókinni.

Awwww

Þetta fannst mér sætt - og ég veit að manninum sem sat við hliðiná mér fannst þetta viðeigandi. Hann hitti mig í fyrsta skipti í morgun, en hann veit hvað ég er.

Eftir matinn fórum við útá Gróttu. Ég fer með alla útlendinga sem eru á mínum vegum útá Gróttu, af því það er eini staðurinn á Íslandi sem ég rata á sem hefur landscape. Og þeim finnst það í góðu lagi, finnst Grótta massa kúl - sem hún er.

Ég laug að Skriðdrekaljóninu þegar ég sagðist ekki eiga neitt líf. Ég held að ég sé bara ekki alveg búin að átta mig á því hvernig líf ég á.

Ég get ekki verið að hugsa um það núna, hugsa um það á morgun.

..og mér finnst það í góðu lagi...


| anna | 23:37 | permalink | comments (0) |
Paul Ramses
Föstudagur, 04. júlí 2008

Heyrðu.. ég er með umsókn frá einhverjum Ramses hérna.
Hvað vill hann?
Er að sækja um pólitískt hæli.
Hver er þetta?
Einhver svartur maður bara.
Hvern þekkir hann?
Engan merkilegan, var að vinna eitthvað fyrir barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Er á dauðalista stjórnvalda í Kenía sýnist mér.
Já ok. Hefur einhver hringt útaf honum?
Nei, hann þekkir engan sem skiptir máli.
Hvaðan kom hann?
Kom við á Ítalíu áður en hann kom til landsins.
Heyrðu.. voru ekki einhverjir samningar í gangi sem heimila okkur að senda hann til baka?
Jú, en hann á konu hérna sem er nýbúin að eignast barn.
Það er ekki okkar vandamál, talaðu við Bíbí, hann gefur grænt á að senda þennan vandræðamann aftur út. Þú nærð honum í talstöðinni, hann er sennilega að leika sér með löggunni í dag á skotsvæðinu, er ekki þriðjudagur?
Jú. Eru þeir með nýju græjurnar?
Já, við fáum að prófa í næstu viku.
Massa kúl! Ég hafna þessu og útbý bréf.
Vertu ekkert að senda neitt bréf maður, við látum bara handtaka hann og senda úr landi. Ef við förum að senda bréf getur hann farið að gera læti og þú veist hvernig þetta helvítis mannréttindalið lætur, sívælandi alla daga.
Já það er rétt, tökum þetta under the radar bara.
Málið dautt.
---

Ég veit ekki hvar þessi ákvörðun var tekin eða hver tók hana og þetta samtal er skáldskapur. Ég veit hinsvegar að ef kærasta Paul Ramses væri blóðskyld ráðherra hefði hann fengið ríkisborgararétt á fimm mínútum. Fimm mínútum.

Það er ekki oft sem ég nenni að láta bananalýðveldið Ísland fara í taugarnar á mér, en það koma dagar.

Paul Ramses kynntist Íslendingum þegar hann vann við hjálparstarf. Honum fannst Íslendingarnir gott fólk og hélt í alvöru að á Íslandi væri ekki sama ruglið látið viðgangast og í hans heimalandi. Paul Ramses hélt að á Íslandi væru stjórnvöld jafn óspillt og náttúra landsins. Hann hélt að Ísland væri staður þar sem mannréttindi eru ekki fótum troðin.

Think again.


| anna | 12:24 | permalink | comments (12) |
Key Tronic
Mánudagur, 07. júlí 2008

Lyklaborðið mitt er ónýtt vegna þess ég helti kóki yfir það í fyrradag. Ctrl takkinn virkar ekki eins og hann á að gera, samt virkar hann betur núna en hann gerði í gær. Í gær var allt að gerast. Fullt af gluggum og dóti sem ég hef aldrei séð áður birtist á skjánum þegar ég notaði Ctrl. Það er svona að lifa á brúninni.

Ég á annað lyklaborð hérna einhversstaðar. Gagnast mér lítið þar sem ég veit ekki hvar það er. Samt er eins og mig minni að ég hafi sett það á "góðan stað" vegna þess að ég á til að skemma amk 1 lyklaborð á ári. Oftast skemmi ég þau á sumrin og oftast með því að hella einhverju ofaní þau og oftast vegna þess að ég er að slá til flugu sem sleppur - vegna þess að ég er með hugan við það sem ég er að gera á lyklaborðinu, ekki við að drepa fluguna. Þegar ég átta mig á því að ég er búin að drepa lyklaborðið dæmi ég fluguna til dauða. Þó ég þurfi að rústa íbúðinni til að ná henni.

Þess vegna er íbúðin mín í rúst núna.

Ég held að ég hafi skrifað næstum nákvæmlega svona blogg áður. Og mér er sama.

Þegar flugan var dauð henti ég henni frammaf svölunum. Kannski var þetta hundur, húsið nötraði þegar hún lenti á jörðinni. Vildi láta kalla sig Lúkas. Flugur eru í alvöru geðveikar.

Annars var ég að keyra um daginn með sportskiptingunni minni þegar kom í ljós að ég var ekki ein í bílnum. Hjá mér var geitungur. Anna Rambó, cool as ice, opnaði alla fjarstýrða glugga í bílnum, fann Whitney Houston disk sem ég setti í magasínið. Geitungurinn fór alveg um leið. (Þetta virkar á karlmenn líka.)

Whitney er næstum jafn öflug og WD40.

Smá útúrdúr.

Ég elska WD40 og eftir að ég skoðaði heimasíðuna þeirra elska ég það bara meira "plays as hard as you do". Með svona tag line.. meina.. þú getur ekki tapað. Það er ekkert sem ekki er hægt að gera með þessu efni. Þú getur drepið pöddur, kryddað pizzur, lagað rennilása og spreyjað í augun á sveittum og uppáþrengjandi lúðum á djamminu.

Útúrdúr lýkur.

Það er svona þegar maður er í extreme aðstæðum, þá tekur eðlisávísunin við og maður bara veit hvað þarf að gera.

Ég er kannski ekki í extreme aðstæðum núna en ég þarf annaðhvort að finna lyklaborðið sem er á góða staðnum - sem ég veit ekki hvar er - eða kaupa lyklaborð. Sennilega er ég fljótari að kaupa nýtt.

Á eftir held ég stutta minningarathöfn en ég ætla ekki að henda gamla lyklaborðinu frammaf svölunum því þetta þetta er síðasta góða KeyTronic lyklaborðið mitt. Örlögin leika mig grátt.

Blóm og kransar afþakkaðir - en þeir sem eiga KeyTronic lyklaborð sem þeir eru hættir að nota, dead serious:

Anna Helgadóttir
Hagamel 53
107 Rvk
Iceland

(pref. ergoforce)
----
Þessi færsla var skrifuð fyrir nokkrum dögum og ég birti hana ekki sökum leti, ég fann lyklaborðið sem ég átti hérna til vara (góði staðurinn var undir skrifborðinu við tærnar á mér) og ég er að geðbilast að nota þetta helv andsk logitech RUSL.

Hvar fæ ég alvöru lyklaborð í dag?


| anna | 21:42 | permalink | comments (18) |
Z status
Miðvikudagur, 09. júlí 2008

Z report.. verður send á fim morgun.

Z introduction.. verður tilbúin á fös.

Z girl.. þreytt.

Z situation.. ég get ekki tekið sársaukann þinn í burtu, en það koma samt tár. Og þegar þú sendir mér þessar fréttir hefði ég viljað taka utanum þig, en ég veit að það er ekki my place. Ég veit ekki hvort tíminn getur læknað eins og sumir segja, en ég veit að hann deyfir.


Hang in there.


| anna | 3:15 | permalink | comments (4) |
Skal slátra einum fyrir þig..
Fimmtudagur, 10. júlí 2008

Í fyrradag skrifaði ég fyrsta vinnutengda bloggið á ensku á Innranet Marel. Ég mun halda því áfram.

Um síðustu helgi hitti ég mömmu Hauks og manninn hennar. Mig grunaði að það yrði ekki langt í að ég hitti hana því ég frétti að henni hafi fundist "Skriðdrekaljón" svo frábært gælunafn fyrir Hauk að hún hringdi strax og spurði hvenær hún fengi að hitta mig. Hún fékk það á sunnudaginn. Þegar ég sá hana brá mér svolítið fyrst, því allt við hana minnti mig á ömmu eins og ég man eftir henni frá því ég var lítil stelpa. Leið eins og ég væri orðin sex ára aftur inní eldhúsinu hjá ömmu. Þessi amma mín er dáin. Hún var uppáhalds amma mín og það er óhætt að segja að mér líki vel við mömmu Skriðdrekaljónsins.

Akkúrat þegar allt gekk eins og í sögu sinnaðist okkur Skriðdrekaljóninu í fyrsta skipti þetta kvöld. Vegna misskilnings særði hann mig og viðbrögð mín gerðu hann reiðan. Við fórum að sofa reið og sár og með fullt af kílómetrum á milli okkar.

Ég var búin að segja honum að ef ég bregst harkalega við einhverju þá er ég sennilega að bregðast við einhverju úr fortíðinni. Hrædd um að sagan sé að endurtaka sig.

Daginn eftir náði hann til mín, náði mér úr vörn. Svo kom hann og tók utanum mig og sagði að hann er ekki að fara neitt.

Segist ekki vera að fara neitt - rýkur svo útí óbyggðir til að veiða!
Allir eins.. ALLIR EINS!

Ég er nú bara að grínast, þessi veiðiferð var löngu ákveðin og þegar ég fékk sms: "skal slátra einum f þig" brosti ég hringinn.

Ég á mann sem drepur og færir mér dýr sem ég get eldað.

Awwww, ég vildi karlmann og ég fékk KARLMANN - með stórum stöfum.


| anna | 8:20 | permalink | comments (0) |
Skriðdrekaveiðiljón
Fimmtudagur, 10. júlí 2008

Hann lét mig vita að hann yrði ekki í símasambandi fyrr en hann kemur heim úr óbyggðum svo ég bjóst ekki við að heyra í honum fyrr en á föstudagskvöldið.

Rétt áðan hringdi hann ofanaf fjalli sem hann keyrði uppá til að fá signal á símann, svo hann gæti hringt í mig.

Hann gleður mig svo þessi maður.


| anna | 13:47 | permalink | comments (0) |
Ég skal segja ykkur það...
Þriðjudagur, 15. júlí 2008

Rétt áðan tók ég fram gamla góða Key Tronic lyklaborðið mitt sem en hefur verið að þorna í rólegheitunum á bakvið ofn inní herbergi síðan ég skellti því í uppþvottavélina til að hreinsa kókið sem ég sullaði yfir það í burtu - og sjá!

ÞAÐ VIRKAR!

Er ekki lífið dásamlegt stundum.

Allt í einu er allt orðið svo rétt aftur og gott. Og hætt að rigna.
Ohh.. dásamlegt.


| anna | 18:25 | permalink | comments (6) |
Royal
Þriðjudagur, 15. júlí 2008

Í kvöld fór ég með vinkonu minni út að borða, vegna þess að ég er búin að lifa til skiptis á rusli og engu s.l. daga og var farið að skorta alvöru næringu. Hún stakk uppá að við færum á veitingahúsið "Á næstu grösum", sem við gerðum og fengum góðan mat.

Konan sem var að afgreiða er einn af þremur eigendum, Dóra. Hreint yndisleg manneskja. Nærvera hennar kom mér í gott skap, allt var svo létt og leikandi nálægt henni. Mæli með þessu veitingahúsi.

Vinkona mín opnaði fyrir mér nýja sýn á sjálfa mig og staðfesti það sem ég fann á sunnudagskvöldið. En þó ég viti það veit ég ekki hvað ég á að gera við það.

Mikið ofboðslega er Barbra Streisand heillandi kona.

Ég er búin að eyða tíma í að keyra svolítið undanfarið og þegar ég er ein í bíl lengur en í tuttugu mínútur fer ég alltaf að hugsa um sama hlutinn. Kannski er það ekki tilviljun.

Soldið skrítið.

Er ég þessi kona?

Hver er ég?


| anna | 23:52 | permalink | comments (0) |
Ég elska google docs
Miðvikudagur, 16. júlí 2008

Ég elska google.

Þvílíkur munur að geta deilt skjali með öðrum og editerað live, óháð því hvaða stýrikerfi fólk er að nota og ef þú ert að vinna með verktökum sem hafa ekki aðgang að innranetið skiptir það engu máli. Alltaf sama skjalið, engir tölvupóstar fram og til baka, engin misskiliningur, ekkert mál að setja inn screenshots og komments. Ekkert mál að sjá hver editeraði hvað og hvenær.

Skjalið vistast sjálfkrafa svo þó windows krassi - google saves.

Þægilegt og einfalt í notkun, hratt, það eina sem þarf er gmail og the beauty part.. þetta kostar ekki krónu.

The future is now.

Ég er að vinna á tveimur vélum, borðvél og lappa. Ég vinn meira á borðvélinni vegna þess að við hana hef ég tvo risa skjái tengda, svo það er þægilegra fyrir mig, en þegar sú vél frýs (sem gerist reglulega vegna þess að ég er að keyra svo mikið á henni - og - ég er á windows) þá skipti ég yfir á lappann á meðan ég endurræsi borðvélina - en - get haldið áfram að vinna óslitið með öll skjölin mín á sínum stað á google docs og hef engri vinnu tapað. Vúhú!

Hvað ætli stjórnendur gætu sparað mikið af peningum með því að nota þetta - í ljósi þess að í venjulegum fyrirtækjum þurfa fæstir starfsmenn að nota word (sem er í raun indesign fyrir fólk sem kann ekki eða hefur ekki efni á indesign), nema þessir þrír sem þurfa að búa til skýrslur með bls tali - og þetta gæti actually orðið til þess að fólk læri að nota tölvupóst eins og á að nota hann og skrifi textann í sjálfan póstinn í stað þess að senda helvítis word skjöl fram og til baka. Gerir mig geðveika. Hvað er t.d. með allt sem ég fæ frá menntastofnunum, af hverju í fjandanum eru það oftast word skjöl sem viðhengi í stað þess að senda efnið í póstinum? Og ég er ekki bara að tala um leyfisgjöld, ég er að hugsa um tímasparnað, vegna þess að google docs virkar hratt og tekur ekki margar mínútur að keyrast upp.

Rétt upp hönd þeir sem verða pirraðir yfir því hvað word er lengi að hlunkast upp þegar þú vilt skoða skjal. Ég hef mjög lítið tolerance fyrir því, enda nota ég helst ekki word ef ég kemst hjá því - og nú þarf ég þess ekki.

Google rulez.


| anna | 8:47 | permalink | comments (14) |
Er þetta hægt?
Fimmtudagur, 17. júlí 2008

Ég hringdi í hann úr bílnum, sagði honum frá því sem ég var að hugsa. Eftir heilmiklar útskýringar endaði ég á að spyrja hvort þetta væri hægt.

Mr. Wolf: Ef þér getur dottið þetta í hug og komið því í orð, þá get ég gert það.
Anna: Dásamlegt.
Mr. Wolf: Við vorum með samkomulag: þú segir mér hvað þú vilt, ég geri það.

Auðvitað kann ég ekki á svona samskipti. Ég er vön því að fá að heyra allt sem er ekki hægt að gera eða hvað þetta er flókið og erfitt og ég gæti þurft að bíða í þrettán ár - eða að þetta kosti svakalega mikið vegna þess að þetta tekur svo langan tíma. Þegar ég tala við hann líður mér stundum eins og ég sé komin á eitthvað spiritual plan þar sem ég er guð og allt sem mig langar að gera er hægt. Það er æðislegt að vinna með svona fólki.

Anna: Svo þú gerir allt sem ég vil.
Mr. Wolf: Það eina sem þú þarft að gera er að biðja mig um að gera það.
Anna: Jahérna.
Mr. Wolf: Verður spennandi að heyra hvað þú biður mig að gera.

Þetta sagði hann fyrir nokkrum vikum síðan. Og so far, þá stendur þetta.

Það er allt hægt og hann er meira að segja fljótur að því líka.


| anna | 19:03 | permalink | comments (0) |
Húsfundur DAUÐANS
Fimmtudagur, 17. júlí 2008

Ég var að stinga af húsfundi dauðans sem byrjaði klukkan átta. Hrikalega leiðast mér fundir þar sem endalaust er rætt í kringum hlutina og engin getur tekið ákvörðun - en - það náðist að taka ákvörðun um að skipta um dyrabjöllur í öllu húsinu svo bráðum nálgast sá dagur að fólk geti heimsótt mig án þess að eiga gsm síma.

Ekki að það sé veruleg hætta á að neinn komi.

En það má ekki gera lítið úr þessu, auðvitað þarf að ræða hlutina. Það er mikið af peningum í húfi þegar rætt er um framkvæmdir utanhúss (eða utaná húsinu), svo nú langar mig að spyrja hvort einhver þekki til eftirfarandi verktakafyrirtækja.

Ísmál ehf
Fyrirtak Málninarþjónusta ehf

Og hvort einhver geti gefið mér umsögn um mann sem rekur fyrirtækið Matstækni og heitir Davíð.

Ég legg komment sem koma inn fyrir fundinn, en honum verður (vonandi) slitið á næstu dögum..


| anna | 22:37 | permalink | comments (2) |
G-anal
Föstudagur, 18. júlí 2008

Þann 27. apríl s.l. setti ég upp google analytics fyrir anna.is vegna þess að ég þurfti að skilja hvernig ganal virkar og það var auðveldara að skilja það ef ég byrja á að nota það á síðu sem ég þekki eins og handabakið á mér.

Hef reyndar aldrei skilið þetta orðatiltæki, ég er ekki viss um að ég myndi þekkja handabakið á mér í sakbendingu - eitt og sér. Ég myndi hinsvegar þekkja lófann á mér um leið, allavega þann vinstri.

Frá því ég byrjaði að mæla aðsóknina hefur hún haldist frekar stöðug, sem kemur mér á óvart vegna þess að yfirleitt dalar hún á sumrin. Hún gerir það allavega á þeim fyrirtækjasíðum sem ég hef fylgst með aðsókn á.

Frá því talning hófst hefur anna.is fengið 20,760 heimsóknir frá 929 borgum, þar af eru 6,715 absolute unique visitors sem skoðuðu samtalst 62,271 síður. Meðal notandi skoðar 3 síður í hverri heimsókn og meðal tími sem fólk eyðir á síðunni eru 5.05 mín (það er lítið að marka þetta þar sem fólk getur skilið gluggann eftir opinn þó það sé ekki actually að lesa síðuna). 67.61% af þeim sem komu á síðuna komu aftur. Það er nú alveg ágætt.

39.96% af traffíkinni á síðuna er fólk sem slær inn urlið eða fer beint inná hana, 45.76% af heimsóknum kemur frá vísunum á öðrum síðum og 14.28% kemur frá leitarvélum.

45.95% notenda notar Internet Explorer
42.59% notar Firefox
10.05% notar Safari

Heimskort anna.is:


| anna | 0:36 | permalink | comments (12) |
Wanted
Sunnudagur, 20. júlí 2008

Á einhver gamlan plötuspilara niðrí geymslu/bílskúr sem hann ætlar ekki að nota og er tilbúin til að gefa ?


| anna | 23:30 | permalink | comments (4) |
Í nótt dreymdi mig Freddy Krueger
Fimmtudagur, 24. júlí 2008

Ég held að það hafi bara aldrei gerst áður.

Fyrst var hann í fullum skrúða og mér fannst hann svo subbulegur að ég krafðist þess að fá að þvo af honum leppana. Á meðan ég var að þvo draslið, sat hann inní eldhúsi í appelsínugulum boxer nærbuxum með teppi yfir axlirnar að drekka kaffi og spjalla við krakkana.

Þegar krakkarnir fóru út að leika fór hann á trúnó og brotnaði niður því hann er svo misskilinn.

Elsku karlinn.


| anna | 9:01 | permalink | comments (3) |
Ég byrjaði þennan dag á því að brosa
Laugardagur, 26. júlí 2008

Þegar ég skoðaði þetta myndband.

Yndislegt.


| anna | 11:31 | permalink | comments (0) |
Holy motherfucking shit
Laugardagur, 26. júlí 2008

Ég fór í bíó í kvöld að sjá mynd sem flestir bíó-fíklar sem ég þekki hafa gefið fullt hús stiga - og ég varð ekki fyrir vonbrgiðum.

Djöfull er Batman massa kúl.

Heath Ledger. Úff.

Þessa mynd þarf maður að sjá tvisvar.

HANN Á SVO FLOTT DÓT!


| anna | 23:59 | permalink | comments (13) |
Af hverju ertu búin að kötta mig út af síðunni?
Sunnudagur, 27. júlí 2008

Ég er að gera tillraun, svaraði ég.
Hvernig tilraun?

Ég brosti aðeins og hann vissi að ég myndi ekki gefa honum svar, svo hann spurði ekki aftur.

Hvað ertu að hugsa þegar þú horfir svona á mig?

Hann hefur oft spurt mig að þessu, en ég hef aldrei gefið honum svar.
Það er ekkert ljótt.

Ég er skíthræddur við þig.
Af hverju?
Hef aldrei átt kærustu sem er norn.
Ég er góð norn.
Ef þú værir vond norn myndirðu ekki segja mér það.


True.


| anna | 23:07 | permalink | comments (0) |
mrrrr
Þriðjudagur, 29. júlí 2008

Þegar ég vaknaði í gærmorgun var mér illt hægra megin í andlitinu, mest illt í auganu. Ég hringdi í lækni sem skrifaði uppá pensillín, hringdi næst í fyrrverandi manninn minn og bað hann að ná í lyfin fyrir mig því ég treysti mér ekki til að keyra útí aptótek og hafði beðið lækninn að senda þau í lyfju í lágmúla vegna þess að ég mundi ekki eftir neinum öðrum apótekum þegar ég talaði við lækninn. dont' get it, það er apótek hérna rétt hjá. Þegar blaðamaðurinn kom með lyfið vakti hann mig og honum brá þegar hann sá mig. Sagði að ég liti skelfilega út. Ég tók lyfin og hélt áfram að sofa. Þetta var klukkan fjögur.

Venjulega þegar ég er veik þá græt ég af minnsta tilefni, en í gær var eins og hægra augað mitt væri fullt af rakvélablöðum ef ég táraðist, það var sárt að hafa augað opið líka svo ég drakk mikið panodil hot og svaf.

Ég vaknaði klukkan tíu í gærkvöldi og þegar ég opnaði augun voru tveir pokar á borðinu.fyrir framan mig. Ég hélt að mig hefði kannski verið a ðdreyma þegar hann kom, en hann skildi eftir malt og nammi og harðan disk fullan af bíómyndum svo mér myndi ekki leiðast. Ég held að honum hafi lika brugðið þegar hann sá mig og ég held að hann hafi ekki verið lengi en mér þykir vænt um að hann kom.

Ég var með sáran sting í heilanum í allan gærdag. Aftan í höfðinu, hægra megin. Fékk líka sting í hægra gagnaugað en ekki eins oft. Mér var líka illt inní mér, neðarlega í bakinu. Hægra megin. Og þegar ég vaknaði í eitt skiptið fékk ég hnerrakast sem var hrikalega sárt, og á eftir var ég alveg dofin í fingurgómunum í hægri höndinni í smá tíma. Mjög furðuleg tilfinning. Eins og að vera með stjörnuljós í fingrunum.

Sennilega verð ég jafn hjálparlaus og karlmaður þegar ég verð svona veik.

Pensillínið er greinilega að virka, mér er ekki jafn illt í auganu lengur, verkurinn í andlitinu er farinn og ég er hætt að fá þessa sáru stingi í heilann og gagnaugað.

Mér líður samt svolítið eins og ég hafi orðið fyrir lest, dösuð.


| anna | 12:28 | permalink | comments (6) |
As luck would have it
Fimmtudagur, 31. júlí 2008

Í kvöld var ég boðin í afmæli sem endaði í póker match þar sem ég vann borðið. Hreinsaði þrjá spilarana þegar ég lagði allt undir með þrjár drottningar á hendi og lokapottinn tók ég af síðasta spilaranum með tveimur pörum, áttum og kóngum. Kóngarnir voru í borði, vorum að spila afbrigði af texas holdem.

Hressandi kvöld.

Þegar ég kom heim hringdi vinkona mín í mig sem var að koma frá Þýskalandi þar sem hún var að reynsluaka nýjum Porsche hjá framleiðanda á toppbraut og undir leiðsögn topp ökumanna. 24 tímar og hún er fallin. Another car junkie is born. Svo ég noti hennar orð "meina Anna, vá ég hef alltaf fílað að fara í tívolí og í tækin, en tívolí smívolí shit þetta er svo MIKLU MIKLU SKEMMTILEGRA!"

I know. Það er svo miklu skemmtilegra þegar þú ert með alvöru dót og svona bíll vinnur hvaða tívolítæki sem er. Hands down.

Dem hvað ég hefði verið til í að vera með henni þarna úti.


| anna | 23:54 | permalink | comments (0) |

ravings í júlí 2008
monthly archive

links
blogs
links - web