Fimmtudagur, 19. júní 2008
Sá þriðji er kominn og AFTUR senda þeir hann á rangan stað. What morons.
Ég sem var búin að skrifa harðorðt bréf til framkvæmdastjóra villidýramiðlunarinnar og segja honum að þessi óþjóðalýður skýtur allt sem hvítt er fyrir utan borgina! Eins gott að fólk fari ekki í brúðkaupsferð í fullum skrúða út fyrir þéttbýlið. Það gætu orðið stutt hjónabönd.
"Meintur ísbjörn reyndist vera Sigríður Jónsdóttir, 32 ára kona frá Bíldudal."
Ég er búin að leggja hvítu kápunni minni. Ef þessir ribbaldar skjóta þennan ísbjörn líka ætla ég að skipta yfir í geitur og heimta fulla endurgreiðslu.