Laugardagur, 14. júní 2008
"Iss þú ert allt of auðveld, gerir engar kröfur".
Ég sagði honum að mér fyndist hann æðislegur þegar hann hringdi og tilkynnti mér að hann ætlar að byggja handa mér 100 fermetra bílskúr sem mun hýsa, m.a. eitt stk Trans Am og eitt stk Bentley. Þegar ég skrifa þetta blasir við að ég er náttúrlega ekki að gera neinar alvöru kröfur á manninn, hann er að sleppa allt of vel. Ég velti fyrir mér hvaða kröfur ég á eiginlega að gera fyrst hann leggur þetta til sjálfur og samþykkir mína tillögu að inventory án þess að fá svo mikið sem kipp í annað augað eins og gerist þegar hann er alveg að tapa sér.
Við erum bæði of auðveld. Bara tímaspursmál hvenær við hættum þessu rugli og finnum einhvern sem er ekki nokkur einasta leið til að gera til hæfis.
Það er reyndar bara einn galli á því plani. Mig langar ekki í þannig mann.
Mig langar í þennan sem ég á núna.
Mér finnst Skriðdrekaljónið nefnilega ekki boring eða auðveldur þegar hann er sem hugur minn og gerir allt rétt, mér finnst hann bara þess meira virði og þykir meira og meira vænt um hann. Kannski er feillinn sem ég geri að taka hluti sem ættu að vera sjálfsagðir og finnast þeir æðislegir.
Well.. þegar maður fær ekki eitthvað hættir það að vera sjálfsagt og kannski kom Skriðdrekaljónið úr hliðargötu á mígandi siglingu og klessti á mig á 500 km hraða svo ég myndi læra hvernig heilbrigðir og eðlilegir karlmann haga sér, eins og ljónið var aðeins byrjað að kenna mér á undan honum.
Kannski þarf ég bara svolítið að læra að meta hlutina út frá heibrigðum forsendum og hætta að þykja það svona stórkostlegt að karlmanni finnist gott að vera góður við mig. Að karlmaður sem ég sef hjá komi fram við mig af virðingu og taki tillit til þess hvað ég þarf, í staðinn fyrir að hugsa eingöngu um sjálfan sig.
Then again.. kannski á mér bara alltaf eftir að þykja það svona æðislegt.
Hann verður þá að venjast því að eiga konu sem finnst hann æðislegur.
HRYLLILEG örlög náttúrlega.
Ég er búin að vera í vinnubúðum frá því á fimmtudagskvöldið, barnlaus og kærastalaus.
Ég sakna hans.
Þegar ég loka augunum sé ég hann brosa - og fleira.. sem ég kann ekki við að skrifa um hér..