www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Crash and..
Fimmtudagur, 05. júní 2008
  • Hann fer snemma að sofa á kvöldin
  • Er ekki með sjónvarp í svefnherberginu (thank you lord)
  • Er mjög góður ökumaður
  • Reykspólar á Corvettu með mig í bílnum (..jesús)
  • Vaknar snemma og fer frammúr
  • Finnst vinnan mín kúl og skilur að ég þurfi að sinna henni
  • Heldur utanum mig þegar við förum að sofa, fast, eins og hann sé að passa mig

Sennilega dó ég í alvörunni á laugardagskvöldið og against all odds.. fór ég ekki til helvítis.

Who knew.

Ég held að aðeins mjög húkkt lesendur komist nálægt því að skilja hvað það gerði mér þegar hann reykspólaði. Þegar hann keyrði útúr reyknum.. ég var.. gone.

Anna says: þegar ég talaði við hann á sunnudeginum sagði hann mér að hann væri þrítugur
Anna says: og ég sagði að hann væri aaallt of ungur fyrir mig
Moldin says: hahaha
Anna says: og hann sagði "róleg. Hvað ert þú gömul?"
Moldin says: og þú sagðir 58?
Anna says: nei ég sagði 37
Moldin says: veistu, ég hefði ekki orðið neitt meira eða minna undrandi þó hann hefði verið geimvera í sumarfríi
Moldin says: ... that´s just the person you are, það er fátt sem þú gerir sem kemur í opna skjöldu, þú ert búin að setja barinn það hátt
Moldin says: kanski jú ef hann hefði verið 13, þá hefðu ég nú farið að efast um að þú værir að segja satt :D
Anna says: hann er góður við mig
Moldin says: I´m happy for you darling ... what ever makes you happy, proceed without fear
Anna says: proceed without fear?
Anna says: af hverju sagðir þú þetta?
Moldin says: ég heyrði smá óvissu, beiðni um 'má ég, á ég'
Anna says: þú þekkir mig svo vel
Anna says: og..
Anna says: má ég?
Moldin says: já
Moldin says: fearless
Anna says: takk
Anna says: smile

Honum finnst ég fyndin núna, með stjörnur í augunum. Hefur aldrei kynnst svona áður. Hann skilur ekki hvað þetta er auðvelt, hvað ég er auðveld, og hann á erfitt með að trúa því að ég sé for real af því honum finnst ég æðisleg - og ég held að honum finnist það í alvörunni. Hann skilur ekki af hverju það er ekki vesen á mér, af hverju ég er ekki að þykjast ekki vilja hitta hann, af hverju ég er ekki holding back og hann á sennilega eftir að fá leið á mér af því ég er að gera allt rangt og hann þarf ekkert að hafa fyrir þessu. Ég held að karlmönnum finnist það boring.

Hann er samt ekki holding back sjálfur og ekki að leika leiki, og mér finnst það æðislegt.

Hann er hard core karlmaður en samt lætur hann mig finna hvað honum finnst gott að hafa mig hjá sér.

Einföld verkaskipting: hann urrar, ég mala.


| anna | 12:15 |
comments

Hey, nýtt ljón! smile

Nr. 1 | posted by: z | 6.06.2008 | 10:32:08 | [+] |

Já, þegar maður er búin að prufa að eiga ljón getur maður ekki farið til baka. Þau eru svo yndisleg.

Þetta er skriðdrekaljón sem borðar hesta - og urrar á mig og bítur mig í rassinn smile

Nr. 2 | posted by: anna | 6.06.2008 | 12:07:22 | [+] |

Lærðu nú af minni reynslu. Aldrei, aldrei, aldrei segja eitthvað fallegt um karlmann á blogginu þínu. Þeir ofmetnast auðveldlega þessar elskur. melodramatic

Nr. 3 | posted by: Eva | 6.06.2008 | 16:25:43 | [+] |

En.. en.. en hann er æðislegur wave

Nr. 4 | posted by: anna | 6.06.2008 | 18:27:55 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web