www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Loksins
Föstudagur, 20. júní 2008

Ég hef fundið tilgang Margeirs í lífinu.

Viðurkenni að þetta er óvenjulegt og venjulega finnur fólk sinn tilgang sjálft, en Margeir er dvergur svo ég fann tilganginn fyrir hann. Fékk hugmyndina þegar ég las frétt um erfðabreyttar pöddur sem framleiða olíu.

Margeir er padda. Það er algjörlega sársaukalaust af minni hálfu að láta erfðabreyta honum - í alvöru. Hann er stærri en einfrumungur og ef ég miða við hvað hann prumpar mikið getur hann pottþétt framleitt mjög mikið úr nærri engu. Ég gef honum nær aldrei að borða.

Þegar ég verð búin að láta erfðabreyta Margeiri þannig að hann skilar frá sér hráolíu væri hægt að klóna hann. Eftir fimm ár verður einn Margeir á hverju heimili og engin þarf að borga krónu í bensín lengur!

Hey! Kannski er líka hægt græja rassinn á honum þannig að hann geti búið til demanta úr grjóti!

Shit. Það er ekki fyndið hvað ég fæ mikið af góðum hugmyndum stundum.


| anna | 0:46 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web