Fimmtudagur, 05. júní 2008
Alveg vissi ég að þetta færi illa. Ég var búin að panta ísbjörn til landsins. Hann átti að vera ungur og óspjallaður og planið var að fremja galdur og fórna honum bílnum mínum til dýrðar.
Nei. Bæði var ísbjörninn afhentur seint og illa - á rangan stað og of seint því bíllinn minn bilaði áður en hann kom - og svo var hann drepinn af einhverjum sækó mönnum áður en ég náði til hans. Og ég fæ ekki bílinn minn í viku!
Alltaf sama sagan. Það er Al Gore sem stendur á bak við þetta. Ég veit það.
Maðurinn hatar mig.
Þegar ég fæ bílinn minn aftur mun ég byrja á að senda hann í alþrif og til að vera viss um að alheimurinn skilji hvað það er erfitt fyrir mig að vera án hans á ég sennilega eftir að stela geit úr húsdýragarðinum og fórna henni bílnum til dýrðar.
Þangað til ég fæ annan ísbjörn.