www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Hugrekki
Sunnudagur, 08. júní 2008

Um daginn sá ég frétt á mbl.is um könnun sem var gerð til að athuga af hverju karlmenn um fertugt höfðu ákveðið að vera alltaf einhleypir. Grunn ástæðan fyrir þessu er ótti. Þeir eru hræddari við að giftast konu sem þeir eiga enga samleið með en að giftast aldrei.

Ég er búin að vera að velta þessu soldið fyrir mér því mér fannst þetta stórmerkilegt en það var líka eitthvað í þessu sem vantaði, en ég gat ekki áttað mig á hvað það var. Í gær var ég að tala við Evu um karlmennsku - og fattaði.

Ég veit ekki um eina konu sem vill eiga huglausan mann.

ahead.jpg

Þegar það koma upp aðstæður þar sem maður getur ekki séð hvað er framundan.. þá þarf maður að hafa hugrekki til að halda áfram ef tilfinningin er rétt.

Það versta, það lang versta sem getur gerst núna, er ef ég beila af því ég er of hrædd við hvað gerist. Ég myndi sennilega alltaf sjá eftir því.

Það næst versta sem getur gerst, er ef hann beilar og ég geng í gegnum ástarsorg.

Ég lifi það af. Það yrði svakalega sárt, en ég lifi það af - og ég vil það frekar en að eyða tíma í að velta fyrir mér hvort ég lét frábæran mann sem mér líður svona vel með fara.. bara af því ég var.. chicken.

Á mínu heimili er heilsteiktur kjúklingur kallaður "froskur". Sumar konur tala um að þær þurfi að kyssa marga froska áður en þær finna prinsinn. Kannski eru þetta ekki froskar sem þær eru að kyssa, kannski eru þeir bara.. chicken.


| anna | 15:00 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web